Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 54
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 Tökur standa nú yfir í Búlgaríu á kvikmyndinni The Expendables 3. Það ríkir mikil leynd yfir myndinni en kvikmyndafyrirtækið Lions- gate, sem framleiðir myndina, hefur staðfest að Sylvester Stallone, Jason Statham, Jet Li, Terry Crews og Arnold Schwarzenegger leiki í myndinni. Líklegt þykir að stór- leikararnir Wesley Snipes, Antonio Banderas, Mel Gibson og Harrison Ford komi einnig við sögu í mynd- inni. Leikstjóri The Expendables 3 er Patrick Hughes sem leikstýrði meðal annars myndinni Western Red Hill sem kom út árið 2010. Handritshöfundar eru þau Katrin Benedikt, Creighton Rothenberger og Stallone sjálfur. Kvikmynda- fyrirtækið Lionsgate vill að svo stöddu ekki segja of mikið um söguþráð myndarinnar en í stuttu máli fjallar hún um svik og hefndir milli Barney Ross (Stallone), Lee Christmas (Statham) og annarra í genginu við illmennið Conrad Stonebanks (Gibson) sem endar með blóðbaði og miklum hasar. Myndin verður frumsýnd vestan- hafs 15. ágúst 2014. Sylvester Stallone snýr aft ur með látum Tökur standa nú yfi r á The Expendables 3 í Búlgaríu. HARÐUR Sylvester Stallone snýr aftur í The Expendables 3. NORDICPHOTOS/GETTY Bandarískir táningar rændu og rupluðu Kvikmyndin The Bling Ring verður frumsýnd annað kvöld. Myndin er í leikstjórn Sofi u Coppola og er byggð á sannsögulegum atburðum. SANNSÖGU- LEGT Sögu- þráður kvik- myndarinnar The Bling Ring er byggður á raunverulegum atburðum. Hross í oss er kvikmynd í leikstjórn Benedikts Erlingssonar, en hún verður frumsýnd miðviku- daginn 28. ágúst næstkomandi. Myndin er grimm sveita rómantík um hið mennska í hrossinu og hrossið í manninum. Ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum. Sama dag er kvikmyndin Elysium frumsýnd, en hún skartar Matt Damon í aðalhlutverki. Árið 2154 eru til tvær stéttir manna; mjög auðugt fólk sem býr í geimstöðinni Elysium og svo hinir sem búa á yfirfullri Jörðinni, sem er öll í rúst. Percy Jackson: Sea of Monsters er heitið á annarri myndinni sem gerð er um ævintýri sonar gríska sjávarguðsins Póseidons, en hún er sjálf- stætt framhald myndarinnar The Lightning Thief frá árinu 2010. Myndin var frumsýnd í gær. Kick-Ass 2 er framhald á fyrri mynd leikstjórans Jeff Wadlow. Eftir að hafa sýnt klikkað hugrekki sem sjálfskipaða ofurhetjan Kick-Ass hrindir Dave Lizewski af stað nýrri bylgju sjálfskipaðra grímu- klæddra ofurhetja. Myndin var frumsýnd í gær. Á morgun, þann 23. ágúst, eru tvær myndir frumsýndar. Annars vegar teiknimyndin Turbo, sem fjallar um snigil sem dreymir stórt, og kvik- myndin World‘s End, sem fjallar um æskuvini sem fara á pöbbarölt á barinn World‘s End. - ósk Hross í oss frumsýnd á miðvikudag Myndir við allra hæfi frumsýndar í vikunni í kvikmyndahúsum um land allt. HROSS Í OSS Ingvar E. Sigurðsson, Steinn Ármann Magnús- son, Helgi Björnsson og Kristbjörg Kjeld eru meðal leikenda. Kvikmyndin The Bling Ring verður frumsýnd í kvikmyndahúsum hér á landi annað kvöld. Myndin er byggð á raunverulegum atburðum og segir frá hópi táninga sem brýst inn á heimili frægra einstaklinga. Söguþráður myndarinnar er á þann veg að táningurinn Marc Hall hefur nám í nýjum skóla í Kaliforníu. Hann kynnist fljótlega Rebeccu Ahn, sem er afar upptekin af lífi fræga og ríka fólksins og er leikkonan Lindsay Lohan í sér- stöku dálæti hjá henni. Eitt kvöld tekur parið upp á því að brjótast inn á heimili hótelerfingjans Paris Hilton og ræna ýmsum fatnaði og skartgripum. Tvíeykinu þykir ránið svo vel lukkað að það heldur innbrotunum áfram og nú í slagtogi við fleiri vini sína: Nicki Moore, Chloe Tayner og Sam Moore. Leikstjóri myndarinnar er Sofia Coppola, sem hefur áður leikstýrt myndum á borð við Some where, Lost in Translation og The Virgin Suicides. Coppola skrifar jafn- framt handrit myndarinnar og bróðir hennar, Roman Coppola, framleiðir hana. Hvatinn að gerð myndarinnar var grein sem birtist í tímaritinu Vanity Fair og fjallaði um ránin. „Þegar ég las greinina fannst mér sagan hljóma nánast eins og söguþráður kvikmyndar. Ég kom mér í samband við blaða- manninn og því meira sem ég fékk að vita, því áhugaverðara fannst mér efnið. Mér fannst sagan segja svo mikið um samtíma okkar og samtímamenningu,“ sagði Coppola. Tökur á The Bling Ring hófust í mars í fyrra og var heimili Hilton á meðal tökustaða. Með helstu hlutverk myndarinnar fara Katie Chang, Israel Broussard, Emma Watson, Claire Julien, Taissa Farmiga og Leslie Mann. Myndin var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes nú í ár og hlaut fínar viðtökur. Watson, Brouss- ard og Chang þykja þá sýna frábæran leik. The Bling Ring hlýtur sextíu prósent í einkunn á vef síðunni Rottentomatoes og 66 prósent á vefsíðunni Metacritic. - sm The Bling Ring er byggð á sögu hóps ungs fólks sem gekk undir nöfnunum Hollywood Hills Burglar Bunch og The Burglar Bunch í fjölmiðlum. Hópurinn samanstóð aðallega af sjö táningum sem brutust inn á heimili ríkra og frægra á tímabilinu frá október 2008 og fram í ágúst 2009. Hópurinn rændi skartgripum, fatnaði og peningum að andvirði 360 milljóna króna. Athygli vakti að táningarnir voru flestir vel efnaðir. Hópurinn braust meðal annars ítrekað inn á heimili Paris Hilton, en einnig inn til leikkvennanna Megan Fox, Rachel Bilson og Lindsay Lohan, raunveru- leikastjörnunnar Audrinu Patridge og á heimili Orlandos Bloom og Miröndu Kerr. Forsprakki hópsins var Rachel Lee, sem skipulagði flest innbrotin, en aðrir meðlimir hópsins voru Nick Prugo, Diana Tamayo og systurnar Alexis Neiers, Gabrielle Neiers og Tess Taylor. Systurnar fengu í kjölfarið eigin raunveru- leikaþátt sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni E!. Táningarnir fengu flestir tveggja ára fangelsisdóm fyrir innbrotin og hafa flestir afplánað dóminn. Leikkonan Emma Watson leikur Nicki í The Bling Ring, en persónan er byggð á Alexis Neiers. Watson lét þau orð eitt sinn falla að hún hefði átt í stökustu vandræðum með að samsama sig persónu sinni. „Sumt sem hún segir er svo brjálað og fjar- stæðukennt að mér þótti það hrein áskorun að fá það til að hljóma sannfærandi,“ sagði leikkonan. Fjarstæðukenndur söguþráður SMÁSTIRNI Tess og Alexis Neiers við frumsýningu myndarinnar Hot Tub Time Machine árið 2010. Þær fengu einnig eigin raunveruleikaþátt. Reykjavík Skútuvogur 1 Sími 562 4011 Akureyri Draupnisgata 2 Sími 460 0800 Reyðarfjörður Nesbraut 9 Sími 470 2020 Glæsileg Gorenje 6 kg þvottavél Tilboðsverð 99.900 kr. Gorenje W6423 • LED-skjár • Sjálfhreinsibúnaður • Sparnaðarkerfi 17 mínútna hraðþvottur • „My favorite“-kerfi • Stórt hurðarop, 34 cm Einstaklega hljóðlát • Orkunýtni A+++ • 5 ára ábyrgð PI PA R\ TB W A · S ÍA · 1 32 19 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.