Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 2
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 ÁRNI ÞÓR SIGFÚSSON, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir um 2,8 millj- arða tap Reykjaneshafnar á fimm árum tilkomið vegna þess að tekjur hafi staðið á sér. Þegar verkefni í Helguvík fari af stað muni dæmið snúast fljótt við. ÁRMANN FANNAR MAGNÚSSON, formaður Ungmennafélagsins Eyfell- ings sem á Seljavallalaug, segir moldviðri hafa verið skapað um laugina. Hún sé í ágætu ástandi. LAUFEY MARÍA JÓHANNSDÓTTIR, formaður Sambands íslenskra fram- haldsskólanema, sagði í vikunni nemendur komna að þolmörkum vegna verkfalls framhaldsskólakenn- ara. Mikil hætta væri nú á brott- hvarfi úr skólunum. ÞYRÍ STEINGRÍMSDÓTTIR, lögmaður hjá Acta, segir íslenskt læknasamfélag svo lítið og mikil tengsl innan samfélagsins að erfitt sé að finna hlutlausan sér- fræðing í skaðabóta- málum vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu. ➜ SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON forsætisráðherra kynnti á miðvikudag frumvörp um skuldaleiðréttingar og séreignarsparnað. Ráðherrann sagði hjólin fara að snúast þegar fólk geti farið inn á vef ríkisskattstjóra 15. maí og skráð sig. FRÉTTIR 2➜12 SKOÐUN 16➜18 SPORT 68 FIMM Í FRÉTTUM BROTTHVARF OG SKULDANIÐURFELLINGAR SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR INNRÁS Í SKANDINAVÍU 68 Ísland á 24 knattspyrnumenn í sænsku og norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. NONNI MÆJU KVEÐUR 68 Einn besti körfuboltamaður landsins, Jón Ólafur Jónsson, er búinn að henda skónum upp í hillu. VIÐSKIPTI Christopher Carmichael, 26 ára Kanadamaður, kom hing- að til lands í byrjun ársins ásamt vini sínum Jerome Jarre, stjörnu samskiptamiðilsins Vine. Allt ætl- aði um koll að keyra í Smáralind þegar Jarre mætti þangað því hundruð ungmenna söfnuðust þar saman til að berja hann augum. Carmichael hreifst svo af landi og þjóð að hann langar til að búa hér til frambúðar og stofna fyrir- tæki. Á Facebook-síðu sinni held- ur hann því fram að Ísland geti bjargað heiminum með notkun rafmyntarinnar umdeildu, Aurora- coin, sem Íslendingar gátu í fyrsta sinn notað á miðnætti, aðfaranótt þriðjudags. Reyndar telur hann að mögulega ætti Ísland að búa til sína eigin útgáfu af myntinni þar sem engin leynd hvíldi yfir því hver væri á bak við hana. Aðspurður segist Carmichael ekki tengjast Auroracoin með beinum hætti. „Það var skrítið þegar ég kom hingað í janúar. Þá var ég að tala um að einhver ætti að búa til nýjan gjaldmiðil og skrifaði á Reddit [vefsíðuna] um að fólk ætti að koma með Bitcoin og Dotcoin til Íslands. Það væri eina landið þar sem aðstæður væru fullkomnar fyrir rafmynt til að ná fótfestu. Þremur vikum síðar til- kynnti einhver að hann væri að stofna Auroracoin. Ég trúði því ekki og hélt að það tæki mörg ár fyrir Íslendinga að búa til eitt- hvað þessu líkt,“ segir Carmichael, sem hefur fylgst með Íslandi síðan bankahrunið varð 2008. „Ísland þarf augljóslega á nýjum gjaldmiðli að halda. Öll stjórnvöld í heiminum reyna að halda aftur af rafmynt af ýmsum toga og passa upp á að hún verði ekki of stór í sniðum,“ segir hann en Seðla- banki Íslands og fleiri stofnanir hafa varað við myntinni. „Menn voru ekki heldur sammála því að jörðin væri hnöttótt. Í gamla daga var fólk drepið fyrir að koma fram með hugmyndir sem hljómuðu klikkaðar en núna getum við talað um þær, sem er svalt.“ Hann bætir við að Ísland gæti vel orðið efnahagsveldi í heimin- um. „Fyrsta landið sem mun leyfa svona gjaldmiðli að þrífast mun byggja upp nýja tækni fyrir fjár- málakerfið sem hefur ekki sést áður, þannig að peningar munu flæða inn í landið frá öðrum lönd- um. Þess vegna tel ég, að vegna fámennisins á Íslandi gæti raf- mynt haft gríðarmikla fjárhags- lega kosti fyrir hverja einustu manneskju.“ freyr@frettabladid.is Telur rafmynt henta Íslendingum afar vel Kanadamaðurinn Christopher Carmichael, vinur Vine-stjörnunnar Jerome Jarr, telur að Ísland geti bjargað heiminum með notkun rafmyntar eins og Auroracoin. Á ÍSLANDI Christopher Carmichael er yfir sig hrifinn af Íslandi og ætlar að búa hér í framtíðinni. Íslendingar geta sótt sér sína 31,8 aura hver á slóðina Auroracoin.org í gegnum kennitölu sína. Eitthvað hefur verið um það að kennitölur fólks hafa gengið kaupum og sölum, til dæmis í Háskóla Íslands. Auk þess er myntin sjálf seld, meðal annars í opnum Aurora-hópi á Facebook. Þar eru ýmsar vörur sömuleiðis boðnar til sölu fyrir Auroracoin, þar á meðal leikjatölva, mánaðaráskrift af Skjá einum og ljósmyndavél. Dæmi eru einnig um að fólk hafi skipt Auroracoin yfir í aðra rafmynt, Bitcoin, og fengið fyrir hana Bandaríkjadali greidda út á Paypal en á þeim reikningi er hægt að senda peninga á milli fólks í gegnum tölvupóst. Manneskjan á bak við Auracoin, sem gengur dulnefninu Baldur Friggjar Óðins- son, segir myntina vera tækifæri til að segja skilið við verðbólgu, gjaldeyrishöft og gengisfellingu hins hefðbundna fjármagnskerfis. Kennitölur ganga kaupum og sölum AURORACOIN Gengur kaupum og sölum á netinu. SJÁVARÚTVEGUR „Það ljóta er að enginn reiknaði með þessu,“ segir Aðalsteinn Baldursson, formaður Fram- sýnar stéttarfélags á Húsavík, um lokun fiskvinnslu í bænum þar sem sextíu manns starfa. Eins og fram kom í fréttum RÚV áformar útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækið Vísir að flytja alla fisk- vinnslu sína til Grindavíkur og loka vinnslum á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi. Starfsmönnum var tilkynnt í gær að lokað yrði eftir mánuð en að þeim byðist öllum starf við fisk- vinnsluna í Grindavík. Aðalsteinn segir ákvörðunina vera áfall fyrir bæjarfélagið og á Húsavík ríki mikil sorg og reiði. „Fólk hefur fest rætur hér og fjárfest í eignum. Það bjóst enginn við þessu enda nýbúið að kaupa nýja flæðilínu og talað um að byggja vinnsluna upp sem nýtískulegt frystihús. Þetta er því bæði áfall fyrir starfsfólkið og bæinn enda er þetta vinnustaður sem önnur fyrirtæki þjónusta og leggur mikið til sam- félagsins í sköttum og gjöldum,“ segir Aðalsteinn og spyr í leiðinni hvernig standi á því að menn hafi enga samfélagslega ábyrgð. „Þeir fara með kvótann á einu bretti burt, kvóta sem varð til hér á Húsavík.“ - ebg Formaður stéttarfélags á Húsavík spyr hvar samfélagslega ábyrgðin sé: Fiskvinnslu lokað fyrirvaralaust AÐALSTEINN BALDURSSON GRINDAVÍKURHÖFN Öll starfsemi Vísis verður eftirleiðis í Grindavík. Reiði og sorg ríkja í bæjarfélögum þar sem starf- semi leggst af. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÖKUM EKKI SÉNS EINS OG MEÐ REYKINGAR 4 Formaður bæjarráðs Kópavogs segir heil- brigðiseft irlitið verða að ákveða hvort Waldorf- skólinn fái aft ur starfsleyfi í Lækjarbotnum þar sem brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun mælist yfi r mörkum. REKTOR VILL SAMEINAST HÍ 6 Rekstraráætlun Landbúnaðarháskóla Íslands gerir ráð fyrir sjötíu milljóna króna niðurskurði á næsta ári. Skólinn sendi menntamálaráðuneytinu nýja rekstraráætlun fyrir 2014 til 2016 í gær, sem á að takast á við erfi ða fj árhagsstöðu skólans. NÆSTU KYNSLÓÐIR BORGA REIKNINGINN 6 Lektor og aðjunkt við Háskóla Íslands segja að stjórnvöld verði að hækka skatta í fram- tíðinni til að bæta sér upp tap af skattfrjálsum séreignarsparnaði. Þeir eru sammála um að það borgi sig að greiða niður verðtryggð fasteignalán með sparnaði. FÁ RÍKI Í HEIMINUM TAKA FÓLK AF LÍFI 12 Samkvæmt nýrri skýrslu frá samtökunum Amnesty International hefur aft ökum í heim- inum fj ölgað um fi mmtán prósent. Langfl estir eru teknir af lífi í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HUNDRAÐ ÍSLENSKIR FÁNAR 20 Sýning á tillögum um þjóðfána. HVERS EIGA BÖRN AÐ GJALDA 28 Rætt við Ásdísi Bergþórsdóttur sem kærði skóla- stjóra sonar síns til Persónuverndar. UMLUKINN DULÚÐ 32 Skyggnst inn í líf Nick Cave. VILL KJÓSA BORGARSTJÓRA BEINT 36 Halldór Auðar Sveinsson, oddviti Pírata, í Pólitíkinni. FLÆKJUSAGAN 42 Illugi Jökulsson skoðar val á eftirmönnum. MENNING 56➜58 PIRRAÐUR Á PASSÍUSÁLMUNUM 56 Megas um börnin hans Hallgríms. KVEÐJA DOMUS VOX 57 Matthildur og Ingibjörg halda kveðjutónleika. EKKI LITLAR LENGUR 62 Kíkt aftur í tímann á nokkrar leik- konur sem stigu sín fyrstu skref á rauða dreglinum barnungar. MIKIL FEGURÐ GETUR VERIÐ ÓHUGNANLEG 64 Ásgrímur Már sýnir teikningar sínar á HönnunarMars. LÍFIÐ 62➜74 ROKKAR HAGRÆÐINGARHÓPSINS ÞAGNAÐIR 16 Þorsteinn Pálsson um kerfi sbreytingar og hagræðingu. YELLOWSTONE, HEILÖG VÉ– ÍSLAND, VIRKJANASVÆÐI 18 Ómar Ragnarsson um náttúruvernd og virkjanir. STRÍÐSÆSINGUR OG EINHLIÐA FRÉTTAFLUTNINGUR 18 Jón Ólafsson um frásögn af viðhorfum og misskilning. HELGIN 20➜48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.