Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 102
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson rekur hér eitt af sárafáum dæmum sem sagan kann að greina frá um að öflugir leiðtogar óttist ekki að velja öfluga eftirmenn, ólíkt til dæmis Alex Fergu- son! Í heitum pottum nú um stundir, að minnsta kosti þar sem karlmenn koma saman, eru fá umræðuefni vin-sælli þessa dagana en vandræði enska fótboltafélagsins Mancheser United. Og virðist hver hafa sína kenningu á því af hverju þau stafa. Sjálfum þykir mér í ljósi sögunnar að sökudólgurinn sé raunar alveg augljós, nefnilega fyrr- verandi þjálfari liðsins, Alexander Chap- man Ferguson og enginn annar. Hann var eins og menn vita hinn ógnarsterki leið- togi liðsins í 27 ár og hafði einstaka hæfi- leika, metnað og viljastyrk í sínu starfi. Því vann hann líka óteljandi sigra. En að lokum áttaði hann sig á því að þetta væri orðið ágætt og ákvað að hætta, og þá féll Ferguson kylliflatur í einmtt þá gryfju sem virðist næstum óhjákvæmilegt að sterkir og sigursælir leiðtogar detti oní þegar ferli þeirra er að ljúka – það er að segja, hann valdi minnipokamann sér að eftirmanni. Til þess einfaldlega að eftirmaðurinn myndi áreiðanlega ekki skyggja á hann þegar fram liðu stundir. Öflugir leiðtogar „Sá útvaldi“ í tilfelli Fergusons reyndist vera David Moyes, þjálfari sem á rúmum áratug gerbreytt yfirbragði Everton-liðs- ins frá því að vera dálítið mistækt stórlið sem alltaf öðruhvoru vann ágæta sigra yfir í að verða þrautseigt miðlungslið þar sem árangur yfir miðju í ensku deildinni var talið mjög ásættanlegur, því við meiru mætti alls ekki búast. Moyes er sem sagt ekki sigurvegari í eðli sínu, heldur er hann svona maður sem er góður í að bíta á jaxl- inn og fær sitt kikk í lífinu út úr því að vera hrósað fyrir að gefast ekki upp þótt allt- af blási á móti. Meðvitað eða ómeðvitað valdi Ferguson þennan mann sem arftaka sinn því hann vissi að það væri engin leið að Moyes gæti fylgt eftir sigurgöngu hans sjálfs. Og það er mannlegt að vilja tryggja sér háan stall í sögunni, þótt stundum hafi það í för með sér að hinn öflugi leið- togi skilji eftir sig sviðna jörð þar sem enginn er lengi vel í stakk búinn til að að reisa hið fallna merki. Það má sjá þessa til- hneigingu hinna öflugu leiðtoga úti um allt í sög- unni, bæði í stóru og smáu, og íslensk dæmi um einmitt þetta blasa líka við ef einhver nennir að skyggnast eftir þeim. Í ein- hverjum heita pottinum um daginn fórum við hins vegar að velta fyrir okkur hvort ekki mætti finna dæmi um hið gagn- stæða, leiðtoga sem þvert á móti velja sér sjálfir öfluga eftirmenn og eru ekkert smeykir við samkeppni frá þeim í hinni sögulegu vitund. En þrátt fyrir að brjóta um þetta heilann heillengi, þá tókst í rauninni aðeins að finna eitt dæmi um slíkt – en þar er reyndar um að ræða röð fimm öflugra foringja sem allir völdu sér sjálfir ágæta eftirmenn. Nema sá síðasti. Valdamenn Árið 96 eftir Krist var Rómarkeisarinn Dómi- tíanus myrtur af nánum aðstoðarmönnum sínum og lífvörðum sem fengið höfðu nóg af geðþóttastjórn hans og grimmi- legum ofsóknum gegn raunveruleg- um og ímynduðum óvinum. Enginn samsærismannanna var sjálfur í stakk búinn til að hrifsa til sín keisaratign- ina og þá kom öldungaráðið til skjalanna og valdi einn úr sínum röðum til keisara, hálfsjötugan og heilsu- veilan og barnlausan öld- ungaráðsmann sem Nerva hét. Hann féllst á að verða keisari og næstu tvö árin vann hann af stakri sam- viskusemi að því að koma á röð og reglu eftir róstu- sama stjórnartíð Dómi- tíanusar. Hann hafði ekki aðeins verið harðstjóri hinn versti, heldur látið stjórnsýslu reka á reiðan- um og eytt mjög um efni fram, svo við mörg vandamál var að glíma. Til að tryggja sér stuðn- ing hersins ættleiddi Nerva vin- sælan hershöfðingja sem stýrt hafði um skeið liði Rómar í Germaníu eða Þýskalandi, Markús Úlpíus Trajanus hét sá, fæddur á Spáni en raunar af gamal- grónum ítölskum ættum. Og þegar Nerva dó eftir aðeins tæp tvö ár á sínum óvænta valdastóli, þá varð Traj- anus átakalaust keisari í ríkinu. Trajanus þykir vera einn af hinum glæstari keisurum Rómaveldis. Stjórnsýsla á hans dögum þótti með sérstökum fyr- irmyndarblæ, hann stóð fyrir mörgum þjóðþrifaverk- um og lét til dæmis setja lög um umönnun þeirra sem minnst máttu sín, svo sumir vilja ganga svo langt að telja hann einn af upphafsmönnum velferðarríkja nútímans. Persónulega þótti hann prúð- ur og vandaður maður. Reyndar hafði Trajanus svo gott orð á sér að eftir kristni varð ríkistrú í Rómaveldi varð til sú saga að Gregoríus páfi mikli reist hann upp frá dauðum stundarkorn svo skíra mætti hann til kristindóms, því það gengi ekki að svo ágætur keisari lægi ókristnað- ur í gröf sinni. Á sínum eigin dögum var Traj- anus þó þekktastur fyrir hernaðarbrölt sitt. Í nærri hundrað ár hafði orðið lát á útþenslustefnu Rómverja sem bættu engu við ríki sitt nema Englandi. En Trajanus kvaddi út legíónir sínar og lagði fyrst um Róm hina svonefndu Dakíu, sem nú heitir Rúmenía, og fór svo í austurveg og knésetti Parþa sem ríktu yfir hinu forna Persaveldi, frá þeim tók Trajanus Mesó- pótamíu eða Írak og væri fróðlegt að vita hver hefði orðið þróun þar ef landsvæðið hefði kannski næstu aldirnar orðið rómverskt. En af því varð ekki. Á heim- leið úr herferð sinni til Mesó- pótamíu andaðist Trajanus 63 ára gamall og eftir- maður hans ákvað að ekki væri ómaksins vert að halda svæðinu, svo Róm- arher hélt þaðan allur brott. Þessi eftirmaður var Publíus Aelíus Hadrí anus, liðlega fertugur frændi Traj- anusar sem hafði verið ætt- leiddur af keisaranum og konu hans, hinni djúpvitru Pompeiu Plótínu, þegar hann missti föður sinn tíu ára gamall. Þeim hjónum hafði ekki orðið barna auðið, og kann að hafa spilað þar inní að Trajanus var sterk- lega grunaður um að hrífast meir af sætum strákum en konu sinni. En vel var valið: Hadríanus var mesti efnispiltur og reynd- ist prýðilega á keisarastóli, þar sem hann sat rúm tutt- ugu ár. „Sat“ er reyndar ekki vel að orði komist, því Hadríanus var á stöð- ugum ferðalögum um ríki sitt og fór allt norður til Skotlands, þar sem hann lét reisa hinn fræga Hadríanus- armúr svo vernda mætti róm- verska þegna á Englandi fyrir árásum skoskra villimanna. Að treysta friðinn í ríkinu voru reynd- ar hans ær og kýr. Hadríanus var samkynhneigður og átti ekki börn með konu sinni, frekar en Trajanus, en þegar hann var kominn á sjötugsaldur og orðinn heilsuveill ættleiddi hann Ant- onínus nokkurn sem síðar hlaut viðurnefnið Píus, hinn trúi. Og Antonínus varð keisari við lát Hadríanusar. Ekki nóg með það, Antonínus hafði nefnilega átt tvo syni sem báðir voru þá dánir ungir að árum og Antonínus ætt- leiddi því um leið sjálfur efnispilt sem Hadríanus hafði valið honum. Föðurástin blindaði Antonínus Píus er einn þeirra Rómarkeisara sem erfiðast er að muna eftir, því á löngum valda- tíma hans bar harla fátt til tíðinda. Það ríkti eiginlega friður og ró um ríkið allt, stjórn Antonínusar þótti mild og vitur og hann hafði mestu óbeit á hernaði. Kannski erfði hann friðin að mestu leyti frá Hadríanusi og kannski hefði hann mátt sýna betur tennurnar á landamærun- um, altént var friðurinn úti þegar eftirmaður hans tók við, hans ættleiddi sonur Markús Árelíus, og hann mátti standa í eilífum styrjöldum og skærum við ættbálka í Mið-Evrópu sem vildu sækja inn á rómversk- ar lendur. Markús Árelíus tókst á við allt mótlæti af því þolgæði sem kemur best fram í skrifum hans sjálfs af heimspeki- legu tagi, og lét hvergi hlut rík- isins, en hann gerði ein skelfileg mistök: Hann kunni ekki að velja sér eftirmann eins og þeir fjórir keisaranir á undan honum. Markús Árelíus átti nefni- lega sjálfur son og föðurástin blind- aði honum sýn, hann ímyndaði sér að strákurinn Commódus væri fær um að gegna keisara- tign, en það fór á annan veg: Þegar Commódus tók við reyndist hann óhæft fífl og harðstjóri, og gósentíð hinna fimm „kjörkeisara“ var liðin. Eða „góðu keis- aranna“ eins og þeir eru líka kallaðir – þótt ekki séu kannski allir sammála um það, Dakíumenn sem Trajanus þrælaði og drap í tugþúsundatali myndu seint fallast á að telja hann sérlega „góðan“. En þau rúmu 80 ár sem þessir keisarar ríktu er þó sem sé eitt af sárafáum dæmum um að öflugir leiðtogar óttist ekki að velja sér öfluga eftirmenn. Ólíkt Alex Ferguson! AÐ KUNNA AÐ VELJA SÉR EFTIRMENN Hann ímyndaði sér að strákurinn Commódus væri fær um að gegna keisaratign, en það fór á annan veg: Þegar Commódus tók við reyndist hann óhæft fífl og harðstjóri, og gósentíð hinna fimm „kjörkeisara“ var liðin. „GÓÐU KEISARARNIR“ Nerva Trajanus Hadríanus ANTONÍNUS PÍUS MARKÚS ÁRELÍUS Nafn Valdatími Árafjöldi Nerva 96-98 2 Trajanus 98-117 19 Hadríanus 117-138 21 Antonínus Píus 138-161 23 Markús Árelíus 161-180 19 lÍs en kus 2004 - 2014 35% afsláttur 35% afsláttur 14.995 Tilboð 50% afsláttur 50% afsláttur 50% afsláttur 50% afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.