Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 111
LAUGARDAGUR 29. mars 2014 | TÍMAMÓT | 51
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
EMMA GUÐMUNDSDÓTTIR
áður til heimilis að Miðbraut 6,
Seltjarnarnesi,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 23.
mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 2. apríl kl. 15.00.
Karítas Kristjánsdóttir Orest Zaklynsky
Gunnar Kristjánsson Anna M. Höskuldsdóttir
María Vigdís Kristjánsdóttir Haraldur Halldórsson
Eggert Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér,
börnum, tengdabörnum og fjölskyldum
þeirra samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns,
SIGURÐAR RAGNARS
GUÐBRANDSSONAR
blikksmíðameistara,
Njarðarvöllum 6,
áður Aðalgötu 19 í Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunarþjónustu
Reykjanesbæjar og Sjúkrastofnunar Suðurnesja fyrir einstaka
umönnun og alúð. Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Einarsdóttir
börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI ÞÓR BACHMANN
er lést sunnudaginn 23. mars á
hjúkrunarheimilinu Skjóli, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. apríl
kl. 15.00.
Edda H. Bachmann Kristján Rúnar Svansson
Sjöfn H. Bachmann
Hrönn H. Bachmann
Sif H. Bachmann Leone Tinganelli
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
NJÁLL ÞORGEIRSSON
Fannborg 8, Kópavogi,
áður til heimilis á Laufásvegi 10,
Stykkishólmi,
lést fimmtudaginn 27. mars.
Guðríður Þórðardóttir
Þórður Viðar Njálsson Auður Stefnisdóttir
Jóhanna Sigríður Njálsdóttir Ellert Vigfússon
Þorgeir Ingi Njálsson Kristjana Aradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVAVA ÞORBJARNARDÓTTIR
Öldugötu 33 í Reykjavík,
lést þriðjudaginn 18. mars. Hún verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 2. apríl kl. 13.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á
Landspítalann.
Guðný Bernhard Reynir Bjarnason
Þorbjörg Bernhard
Helga Kristín Bernhard Gísli Jón Magnússon
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Elsku ættingjar og vinir. Innilegustu
þakkir fyrir auðsýnda samúð og fyrir allan
þann stuðning sem við höfum fengið í
veikindum og við andlát elsku mömmu
okkar og tengdamömmu,
HELGU ÞÓRU TH.
KJARTANSDÓTTUR
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
gjörgæslu LSH, deild 12-E og Grensásdeild LSH fyrir einstaka
umönnun. Sá kærleikur sem við höfum verið umvafin og sem
mömmu hefur verið sýndur er okkur ómetanlegt veganesti.
Hrefna, Kjartan og Emilía
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
ERLINGS N. GUÐMUNDSSONAR
Hörðubóli, Dalabyggð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
heimaþjónustu heilsugæslunnar í Búðardal
og starfsfólki dvalarheimilisins Silfurtúns fyrir
góða umönnun.
Ragnhildur Beatrice Erlingsdóttir Sigurjón Hannesson
Kristrún Erna Erlingsdóttir Baldur Kjartansson
Guðríður Erlingsdóttir Stefán Hólmsteinsson
Líneik Dóra Erlingsdóttir
Guðmundur Erlingsson Ninna Karla Katrínardóttir
Una Auður Kristjánsdóttir Hjalti Samúelsson
barnabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GEIR ÞORSTEINSSON
húsasmíðameistari,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut föstudaginn 21. mars. Útför hans
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
1. apríl kl. 13.00.
Eygerður Bjarnadóttir
Þorsteinn Geirsson Ragnheiður Gunnarsdóttir
Örn Geirsson Steinunn Hreinsdóttir
Kristín Sigríður Geirsdóttir Ársæll Þorleifsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
SIGRÍÐUR SVAVA RUNÓLFSDÓTTIR
frá Keflavík,
síðast Hörgshlíð 4, Reykjavík,
lést 26. mars síðastliðinn.
Runólfur, Þórunn, Inga, Gunnhildur,
Friðfinnur, Einar og Páll Skaftabörn
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín,
INGVELDUR GÍSLADÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju kl.
13.00 þriðjudaginn 1. apríl. Blóm og kransar
vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Minningarsjóð
hjúkrunarþjónustu Karitas í síma 551-5606 milli kl. 9 og 11.
Fyrir hönd barna, tengda- og barnabarna,
Eyjólfur Pétursson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug vegna andláts
og útfarar okkar elskulegu systur,
mágkonu og frænku,
BIRNU HELGADÓTTUR
frá Leirhöfn.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilis Droplaugarstaða fyrir
hlýhug og góða umönnun.
Hildur Helgadóttir Sigurður Þórarinsson
Dýrleif Andrésdóttir
Pétur Einarsson
og systkinabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
GUNNLAUGS PÉTURSSONAR
Sóleyjarima 19.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dagdeildar
Eirar og allra þeirra lækna og hjúkrunarfólks
sem önnuðust hann í gegnum árin.
Ásdís Arinbjarnardóttir
Birna Guðný Gunnlaugsdóttir Sigurjón Sigurjónsson
Pétur Þór Gunnlaugsson
Bryndís Gunnlaugsdóttir Páll G. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
EIN SVEIT AF MÖRGUM Í Skólahljómsveit Austurbæjar eru um 150 nemendur sem skiptast í þrjár sveitir.
Nú, árið 2014, eru liðin 60 ár síðan
ákvörðun var tekin um að stofna
skólahljómsveit í Reykjavík.
Í tilefni af því ætlar Skólahljóm-
sveit Austurbæjar að hefja afmælis-
árið með tónleikum í Norðurljósasal
Hörpu í dag klukkan 16.
Í Skólahljómsveit Austurbæjar eru
um 150 nemendur sem skiptast í þrjár
sveitir, A, B og C, sem raðað er í eftir
aldri og getu nemendanna. Að þessu
sinni mun C-sveitin eða elsti hópurinn
fá til liðs við sig eldri nemendur sem
eru enn í tónlistarnámi til að styrkja
og efla sveitina. Það verður því rúm-
lega 60 manna hljómsveit sem mun
fylla salinn af blásaratónum.
Stjórnandi er Vilborg Jónsdóttir
sem er að ljúka tíunda ári með sveit-
inni. „Tónleikarnir í kvöld eru bara
upphaf afmælisársins, við munum
minnast þess betur í haust og verðum
þá með minni hópa og ýmislegt annað
í gangi en hefðbundna tónleika,“ segir
hún. „Á tónleikunum í dag kemur
fram hefðbundin lúðrasveit, en seinna
sýnum við á okkur fleiri hliðar.“
Vilborg segir nemendur Austurbæj-
arskóla áhugasama um að taka þátt í
starfi hljómsveitarinnar, alltaf séu
nokkrir á biðlista og fjöldi nemenda
í tónlistarnámi í skólanum sem er í
samstarfi við Tónskóla Sigursveins
og Tónlistarskólann í Reykjavík. „Ég
er með 120 nemendur í námi hjá okkur
og ellefu kennara, þannig að tónlist-
arlífið er blómlegt í Austurbæjarskól-
anum.“
Kynnir á tónleikunum í dag verð-
ur Halla Margrét Jóhannesdóttir. Á
efnis skránni verða blönduð verkefni;
úr heimi kvikmynda, úr poppinu,
íslensk tónlist, útsett tónlist og frum-
samin fyrir blásarasveitir.
fridrikab@frettabladid.is
Upphaf á afmælisfagnaði
Skólahljómsveit Austurbæjar heldur tónleika í Hörpu í dag til að minnast 60 ára afmælis
hljómsveitarinnar. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Vilborg Jónsdóttir.