Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 29. mars 2014 | FRÉTTIR | 11
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi krabba-
meina í ristli og endaþarmi mun
tvöfaldast á næstu 45 árum verði
ekkert að gert. Fjölgunin er
vegna hækkandi aldurs þjóðar-
innar. Þetta segir Tryggvi Stef-
ánsson, skurðlæknir og sérfræð-
ingur í skurðaðgerðum á ristli og
endaþarmi.
Hann segir að grípa eigi til
reglubundinnar skimunar hjá
einstaklingum eldri en 55 ára. „Krabba-
meinsmeðferðin sem við erum að veita
er alltaf að verða dýrari og dýrari og
lyfjakostnaður hefur aukist. Kostnaður-
inn við að skima einn árgang á ári
væri 400 milljónir en kostnaður
heilbrigðiskerfisins vegna ristil-
krabba sem lengra er genginn er
einn og hálfur milljarður króna
árlega. Það er fyrir utan þann
kostnað samfélagsins sem liggur
utan spítalanna sjálfra.“
Tryggvi segir að hægt sé að
helminga tíðni krabbameins í ristli
á 10 árum. Stjórnvöld verði að taka
af skarið og láta fjármagn fylgja reglu-
bundinni skimun í sama mæli og gert
hefur verið við skimun leghálskrabba og
brjóstakrabba. - ssb
Skurðlæknir sérfróður um ristil og endaþarm segir að stórar fjárhæðir muni sparast með skimun fyrir krabba:
Krabbamein í ristli tvöfaldast næstu 45 ár
TRYGGVI BJÖRN
STEFÁNSSON
Á KRABBAMEINSDEILD Með skimun er talið að megi helminga
tíðni krabbameins í ristli. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Barnageðlækna-
félag Íslands ítrekar áhyggjur
sínar af stöðu geðheilbrigðis-
þjónustu fyrir börn og unglinga á
Norður- og Austurlandi í tilkynn-
ingu frá félaginu.
Á síðastliðnu ári voru gerðar
skipulagsbreytingar á geðheil-
brigðisþjónustu fyrir börn og
ungmenni á svæðinu og í kjölfar
þess sögðu yfirlæknir og sál-
fræðingur barna- og unglinga-
geðdeildar FSA upp störfum þar
sem þrengt hafði verið að henni
og hún síðan lögð niður.
Í tilkynningunni leggur félagið
áherslu á að þörf sé á áframhald-
andi þjónustu á svæðinu. - ebg
Þörf á þjónustu við börn:
Ítreka áhyggjur
af slæmri stöðu
FSA Skipulagsbreytingar voru gerðar á
geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
HJÁLPARSTARF Á þeim 25 árum
sem liðin eru frá stofnun SOS
Barnaþorpanna
á Íslandi hafa
landsmenn stutt
starf samtak-
anna um rúma
fjóra milljarða.
Um tólf þús-
und Íslendingar
eru styrktarað-
ilar.
„Þegar maður
skoðar listann
yfir þá sem gerðust styrktarfor-
eldrar á fyrstu árunum, í kring-
um 1990, kemur skemmtilega á
óvart hve margir þeirra eru enn
að styrkja börn. Svona á barna-
hjálparstarf að vera. Árangurinn
er svo áþreifanlegur,“ segir Ragn-
ar Schram, framkvæmdastjóri
SOS Barnaþorpanna á Íslandi. - ebg
12.000 styrkja Barnaþorp:
Um fjórir millj-
arðar til SOS
RAGNAR
SCHRAM
VERSLUN Tískufatakeðjan Lindex
ætlar að opna 470 fermetra versl-
un í verslunarmiðstöðinni Glerár-
torgi á Akureyri þann 16. ágúst
næstkomandi.
Samningur þess efnis hefur
verið undirritaður af hálfu Eikar
fasteignafélags, eiganda verslun-
arhúsnæðisins, og forráðamanna
Lindex.
Verslunin verður staðsett í
norðurhluta Glerártorgs. For-
ráðamenn Lindex gera ráð fyrir
að um tólf ný störf skapist á
Akureyri við opnunina. - hg
Ný verslun á Akureyri:
Lindex opnar
á Glerártorgi
LINDEX Fyrsta verslun keðjunnar hér á
landi var opnuð í Smáralind árið 2011.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gefðu sparnað
í fermingargjöf og
Landsbankinn bætir
6.000 krónum við
Þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á
Framtíðargrunn Landsbankans greiðir bankinn 6.000 króna
mótframlag inn á sama reikning. Þannig viljum við hvetja
til sparnaðar.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn