Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 11

Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 11
LAUGARDAGUR 29. mars 2014 | FRÉTTIR | 11 HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi krabba- meina í ristli og endaþarmi mun tvöfaldast á næstu 45 árum verði ekkert að gert. Fjölgunin er vegna hækkandi aldurs þjóðar- innar. Þetta segir Tryggvi Stef- ánsson, skurðlæknir og sérfræð- ingur í skurðaðgerðum á ristli og endaþarmi. Hann segir að grípa eigi til reglubundinnar skimunar hjá einstaklingum eldri en 55 ára. „Krabba- meinsmeðferðin sem við erum að veita er alltaf að verða dýrari og dýrari og lyfjakostnaður hefur aukist. Kostnaður- inn við að skima einn árgang á ári væri 400 milljónir en kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna ristil- krabba sem lengra er genginn er einn og hálfur milljarður króna árlega. Það er fyrir utan þann kostnað samfélagsins sem liggur utan spítalanna sjálfra.“ Tryggvi segir að hægt sé að helminga tíðni krabbameins í ristli á 10 árum. Stjórnvöld verði að taka af skarið og láta fjármagn fylgja reglu- bundinni skimun í sama mæli og gert hefur verið við skimun leghálskrabba og brjóstakrabba. - ssb Skurðlæknir sérfróður um ristil og endaþarm segir að stórar fjárhæðir muni sparast með skimun fyrir krabba: Krabbamein í ristli tvöfaldast næstu 45 ár TRYGGVI BJÖRN STEFÁNSSON Á KRABBAMEINSDEILD Með skimun er talið að megi helminga tíðni krabbameins í ristli. NORDICPHOTOS/AFP HEILBRIGÐISMÁL Barnageðlækna- félag Íslands ítrekar áhyggjur sínar af stöðu geðheilbrigðis- þjónustu fyrir börn og unglinga á Norður- og Austurlandi í tilkynn- ingu frá félaginu. Á síðastliðnu ári voru gerðar skipulagsbreytingar á geðheil- brigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á svæðinu og í kjölfar þess sögðu yfirlæknir og sál- fræðingur barna- og unglinga- geðdeildar FSA upp störfum þar sem þrengt hafði verið að henni og hún síðan lögð niður. Í tilkynningunni leggur félagið áherslu á að þörf sé á áframhald- andi þjónustu á svæðinu. - ebg Þörf á þjónustu við börn: Ítreka áhyggjur af slæmri stöðu FSA Skipulagsbreytingar voru gerðar á geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn. FRÉTTABLAÐIÐ/KK HJÁLPARSTARF Á þeim 25 árum sem liðin eru frá stofnun SOS Barnaþorpanna á Íslandi hafa landsmenn stutt starf samtak- anna um rúma fjóra milljarða. Um tólf þús- und Íslendingar eru styrktarað- ilar. „Þegar maður skoðar listann yfir þá sem gerðust styrktarfor- eldrar á fyrstu árunum, í kring- um 1990, kemur skemmtilega á óvart hve margir þeirra eru enn að styrkja börn. Svona á barna- hjálparstarf að vera. Árangurinn er svo áþreifanlegur,“ segir Ragn- ar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. - ebg 12.000 styrkja Barnaþorp: Um fjórir millj- arðar til SOS RAGNAR SCHRAM VERSLUN Tískufatakeðjan Lindex ætlar að opna 470 fermetra versl- un í verslunarmiðstöðinni Glerár- torgi á Akureyri þann 16. ágúst næstkomandi. Samningur þess efnis hefur verið undirritaður af hálfu Eikar fasteignafélags, eiganda verslun- arhúsnæðisins, og forráðamanna Lindex. Verslunin verður staðsett í norðurhluta Glerártorgs. For- ráðamenn Lindex gera ráð fyrir að um tólf ný störf skapist á Akureyri við opnunina. - hg Ný verslun á Akureyri: Lindex opnar á Glerártorgi LINDEX Fyrsta verslun keðjunnar hér á landi var opnuð í Smáralind árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gefðu sparnað í fermingargjöf og Landsbankinn bætir 6.000 krónum við Þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn Landsbankans greiðir bankinn 6.000 króna mótframlag inn á sama reikning. Þannig viljum við hvetja til sparnaðar. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.