Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 24

Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 24
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 EMBLA UM FORDÓMA GAGNVART FÖTLUÐU FÓLKI Fötlunin er ekki vandamálið Það sem hefur markað líf mitt eru fordómar. Fötlunin sem slík hefur ekki markað líf mitt því ég hef aldrei verið ófötluð. Oft gleymi ég að ég sé fötluð en man það um leið og ég fer út því allir glápa á mig eða enginn talar við mig. Fólk fattar ekki að það er vandamálið en ekki að ég geti ekki hlaupið eða þurfi aðstoð við dagleg verkefni. Fatlað fólk er alltaf svo duglegt Ég er dugleg að keyra bílinn minn, dugleg að borða kvöldmat, dugleg að fara í háskóla, dugleg að búa ein. Meira að segja þegar ég fór að djamma 17 ára og langt undir lögaldri, þá var ég samt voða dugleg. Þetta veldur því að hugtakið dugleg hefur enga merkingu fyrir mig í dag, því ég geri bara venjulega hluti eins og allir aðrir en er samt svo dugleg af því að ég er fötluð. Ögrar staðalmyndinni Ég klæði mig upp í kjóla, mála mig og fer í háa hæla til að kaupa mér ákveðna stöðu og ögra staðalmyndinni um fatlaða fólkið í flíspeysunni. Viðbrögðin láta ekki á sér standa. „Vá, hvað þú ert fín, bara með varalit og allt. Voðalega ertu dugleg að vera í háum hælum, svo fín.“ Í leiðinni næ ég að ögra staðalmyndinni um lesbíur. Tvær flugur í einu höggi. Það eina sem ég vissi um Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur áður en ég hitti hana var að hún er fötluð, samkynhneigð kona á þrítugsaldri og hún skrifar ögrandi pistla um fordóma gegn fötluðum á blogginu Tabú, ásamt Freyju Haraldsdóttur. Hún nemur félags- og kynjafræði við Háskóla Íslands, býr á stúdentagörðum og ég sá bíl á bílastæðinu með númeraplötunni „Emblan“. Meira vissi ég ekki en þetta dugði til að ég gerði mér hugmyndir um að hún væri sterk og kröftug hetja. Vá, hvað hún er sjálfstæð og dugleg, hugsaði ég. Þessar hugmyndir eru eitthvað sem ég þurfti að taka til endurskoðunar eftir að Embla tók mig í klukkustundar kennslu- stund í fordómum gegn fötluðu fólki. Embla býður mér inn og er með súkkulaði á borð- um eins og hún var búin að lofa. Aðstoðar- kona hennar útbýr kaffibolla fyrir mig og fer svo inn í herbergi á meðan við spjöllum. Þörf til að setja fólk í box Fyrsta spurningin kemur frá mér ósjálf- rátt. Hvernig lýsir fötlun þín sér? „Af hverju þarftu að vita það? Ekki spyrðu hvernig ég sé samkynhneigð,“ segir Embla glottandi og slær mig strax út af laginu. „Það er áhuga- vert af hverju fólk hefur svona mikla þörf á að vita allt um fötlun mína og af hverju það telur leyfilegt að spyrja að því. Þetta er einhver þörf til að setja mann í box og þess vegna er fatlað fólk spurt mörgum sinnum á dag út í fötlun sína. Aldrei myndi ég spyrja konu yfir fimmtugt hvort hún sé með þvag- leka þrátt fyrir að ég viti að það sé algengt vandamál eða fullorðinn karlmann hvort hann sé með risvandamál. En það er fyndið hvað það pirrar marga að fá ekki skilgrein- ingu á fötlun minni.“ Var ekki hugað líf Eftir smá stríðnisþögn segir Embla mér að hún sé greind með hreyfihömlunina CP sem hefur áhrif á hreyfigetu allra útlima. Þegar Embla fæddist var henni vart hugað líf og foreldrum hennar var tilkynnt að hún gæti aldrei gengið eða talað, en það getur hún hvort tveggja í dag. Foreldrar hennar þurftu beinlínis að fara á móti straumnum við upp- eldið. „Þau ákváðu ekkert fyrirfram og gengu út frá því að ég gæti allt. Ég veit ekki hvernig líf mitt væri ef þau hefðu hlustað á alla læknana og ráðgjafana. Það er alltaf verið að passa að fatlaðir og foreldrar þeirra hafi ekki of miklar væntingar en það er miklu hættulegra að hafa engar væntingar.“ Fordómar hafa markað líf mitt Embla fór að láta sig varða réttindi fatlaðs fólks þegar hún kynntist öðrum fötluðum við íþróttaiðkun á unglingsárunum. Þá upp- götvaði hún að fordómarnir sem hún hafði alltaf upplifað á eigin skinni væru ekki hennar persónulega vandamál, heldur lentu allir hinir líka í þeim. Fordómarnir væru samfélagslegt vandamál. „Það sem hefur markað líf mitt eru for- dómar. Fötlunin sem slík hefur ekki markað líf mitt því ég hef aldrei verið ófötluð. Oft gleymi ég að ég sé fötluð en man það um leið og ég fer út því allir glápa á mig eða eng- inn talar við mig. Fólk fattar ekki að það er vandamálið en ekki að ég geti ekki hlaupið eða þurfi aðstoð við dagleg verkefni.“ Fatlað fólk er svo duglegt Embla segir fordóma gegn fötluðu fólki vera flókna því þeir þyki í lagi og maður verði ekki var við þá nema finna þá á eigin skinni. „Það er pólitískt rétt að vorkenna fötluðu fólki. Okkur er kennt að vera góð við þá sem minna mega sín en birtingarmynd þessarar gæsku er mjög erfið fyrir sjálfs- myndina. Ég hef aldrei fengið að vera full- Fæ aldrei að vera fullorðin Embla Guðrúnar Ágústsdóttir segir fötlunina aldrei hafa hamlað sér heldur fordómana sem hún finnur í samfélaginu. Hún er kona, kynvera, háskólastúdent og ýmislegt annað. En samfélagið sér hana eingöngu sem duglega og fatlaða hetju. Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Á STÚDENTAGÖRÐUM Embla flutti á Skógarveg fyrir rúmu ári en þar eru margar fjölskylduíbúðir fyrir stúdenta. Hún segist njóta þess að hafa börnin í kringum sig því það geri umhverfið svo líflegt. Hún er alin upp í Mosfellsbæ en vildi flytja miðsvæðis, nær skólanum og vinunum, og fannst ómögulegt að halda matarboð heima hjá mömmu og pabba. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI orðin. Mér er klappað á kinnina eins og smá- barni og ég þyki svo krúttleg. Það er talað við mig með blíðri krúttröddu, ef það er þá yrt á mig. Þegar ég fer út í búð þá er vin- kona mín spurð „vill hún poka?“. Svo erum við fatlaða fólkið alltaf svo dugleg. Það er sama hvað það er. Ég er dugleg að keyra bíl- inn minn, dugleg að borða kvöldmat, dugleg að fara í háskóla, dugleg að búa ein. Meira að segja þegar ég fór að djamma 17 ára og langt undir lögaldri, þá var ég samt voða dugleg. Þetta veldur því að hugtakið dugleg hefur enga merkingu fyrir mig í dag, því ég geri bara venjulega hluti eins og allir aðrir en er samt svo dugleg af því að ég er fötluð. Fólk heldur að það sé að hrósa en það væri gaman ef það fyndi sig ekki knúið til að líta alltaf á mig sem hetju.“ Fatlað fólk enn talið skrítið Á þessu augnabliki roðnar blaðamaður eilít- ið og lítur undan. Reynir að krafsa í bakk- ann. Er fólk ekki bara óöruggt og veit ekki alveg hvernig það á að nálgast fatlað fólk? „Ég skil ekki hvað þú ert að tala um,“ svarar Embla skellihlæjandi. „Tekur þú viðtal við Kristínu Eysteinsdóttur og hrósar henni fyrir hvað hún sé dugleg að geta verið leik- hússtjóri þrátt fyrir að vera samkynhneigð? Veistu ekki hvernig þú átt að nálgast hana? Vandamálið er kannski að fatlað fólk er ekki nægilega sýnilegt í samfélaginu. Maður glápir ekki á homma leiðast eða á svartan mann labba fram hjá manni. Jú, það er mannlegt að kíkja á eitthvað sem er skrítið. Og það segir okkur að fötlun er enn skrítin á Íslandi. Ef fatlað fólk væri að vinna við ýmis störf, í bankanum, á spítalanum og í skólunum þá held ég að allir myndu missa áhugann á að glápa á það.“ Ögrar staðalmyndum En er eitthvað sem þú getur ekki gert, Embla? „Myndir þú spyrja Kristínu Eysteinsdóttur að þessu?“ (Embla hlær og blaðamaður roðnar aftur). „Ég geri það sem ég get og vil gera. Ég þarf oft að finna leiðir til þess en ef það er flókið þá lít ég á það sem áskorun. Það er skemmtilegast þegar ég næ að ögra fólki.“ Hvernig ögrar þú fólki? „Ég klæði mig í kjóla, mála mig og fer í háa hæla til að kaupa mér ákveðna stöðu og ögra staðal- myndinni um fatlaða fólkið í flíspeysunni. Viðbrögðin láta ekki á sér standa. „Vá, hvað þú ert fín, bara með varalit og allt. Voðalega ertu dugleg að vera í háum hælum, svo fín.“ Færð þú þessi viðbrögð þegar þú mætir í vinnuna á háum hælum? Í leiðinni næ ég að ögra staðalmyndinni um lesbíur. Tvær flug- ur í einu höggi. Samfélagið lítur samt á mig sem fyrst og fremst fatlaða. Svo kannski samkynhneigða og síðan sem konu. Mikið væri hressandi að vera einu sinni kölluð „lessan“ í staðinn fyrir „fötluðu stelpuna“. Ég læt mig líka dreyma um að vera yfir- heyrð eins og aðrar konur á mínum aldri um hvort ég eigi kærasta eða hvort ég ætli ekki að koma með kríli. Ég er aldrei spurð slíkra spurninga.“ Út úr skápnum fimmtán ára Ég er fljót að grípa orðið. Ertu í sambandi? „Ég hef verið í sambandi en ekki eins og er. Ef það kemur er það bara gaman, en ég er ekki allar helgar að bíða eftir því. Einhvern tímann langar mig að eignast börn. Ég hlakka til að sjá hvað samfélagið gerir í því – það fer örugglega á hliðina. Barnið ég, að eignast barn. Það er merkilegt hvað fólk hefur miklar skoðanir á barneignum fatlaðs fólks. Tengt því þá er ekki litið á fatlað fólk sem kynverur. Þegar ég kom út úr skápnum fimmtán ára, þá fannst fólki það skrítið og velti fyrir sér hvernig ég, kynlausa konan, gæti vitað hvort ég væri samkynhneigð. Ég hef mikinn áhuga á fötluðu fólki sem kynverum og væri gaman að starfa tengt því í framtíðinni enda margt sem á eftir að vinna þar. Kannski fer ég til Ástralíu eftir kynjafræðina, læri kynfræði og starfa sem ráðgjafi með fötluðu fólki.“ Sprengja kerfið og hólfin Embla hefur ekki látið samfélagið hafa áhrif á væntingar sínar til lífsins og draumarnir eru ótakmarkaðir. Líka draumurinn um for- dómalaust samfélag. „Mig langar svo að komast á þann stað að okkur detti ekki í hug að tala svona eða koma svona fram við fatlað fólk. En að við þurfum ekkert að vanda okkur eða einbeita okkur að gera það ekki heldur sé það ósjálf- rátt. Í staðinn fyrir að troða öllum í kerfið og passa í eitthvað hólf, þá vil ég miklu frekar sprengja það upp. Taka þetta kerfi og troða því eitthvert annað,“ segir Embla kankvís.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.