Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 44
Brúðkaup LAUGARDAGUR 29. MARS 20146
Veitingahúsaeigandinn og matreiðslumaðurinn Hrefna Sætran gengur í það heilaga
í sumar þegar hún kvænist unnusta
sínum til fimm ára, Birni Árnasyni
ljósmyndara. Athöfnin og veisl-
an verða haldnar í Hvalfirði þann
19. júlí og verður mikið um dýrð-
ir að sögn Hrefnu. „Við spáðum
mikið í staðsetninguna og kom-
umst að þeirri niðurstöðu að það
væri skemmtilegast að smala öllum
saman fyrir utan bæinn og reyna að
fá sem flesta til að gista. Nú þegar
eru flestir búnir að bóka herbergi
eða gera aðrar ráðstafanir en um
180 manns verða í brúðkaupinu.“
Að sögn Hrefnu er Björn trú-
leysingi en sjálf aðhyllist hún mest
búddisma þótt hún eigi sína kristnu
barnatrú. „Lending hjá okkur var
því ásatrúarathöfn. Það er svo létt
yfir þeim og við getum stjórnað
betur hvernig athöfnin sjálf fer
fram. Svo hef ég heyrt að það séu
geggjuð partí í Valhöll sem er eitt-
hvað fyrir mig.“
Óvæntur matseðill
Hrefna og Björn hafa þekkst lengi
þótt einungis séu nokkur ár síðan
þau hófu sambúð. „Við höfum
þekkst síðan við vorum unglingar
enda áttum við sameiginlega vini.
Við urðum þó fyrst par árið 2009, þá
bæði 28 ára gömul. Það ár hittumst
við í miðbæ Reykjavikur og hófum
að spjalla saman. Við sáum strax
að við áttum vel saman enda með
svipaðan húmor sem skiptir miklu
máli. Síðan tókum við bara íslensku
leiðina á þetta; eignuðumst yndis-
legu börnin okkar og spáðum svo
í giftingu eftir það. Bjössi bað mín
uppi á spítala eftir fæðingu dóttur
okkar og ég sagði strax já. Það var
mjög falleg stund.“
Veitingar og ljósmyndir skipta
verðandi brúðhjón miklu máli.
Hrefna hefur sjálf komið að ótal
brúðkaupsveislum og þekkir vel
hvað virkar og hvað ekki. „Nú veit
ég hins vegar ekki hvað verður
boðið upp á. Nokkrir kokkar sem
vinna hjá mér á Fiskmarkaðn-
um og Grillmarkaðnum sjá alfar-
ið um matseðilinn þannig að við
vitum ekkert hvaða kræsingar bíða
okkar.“
Gefa sér tíma
Þrátt fyrir tiltölulega stutta sam-
búð segir Hrefna að þau hafi bæði
lært mikilvægi þess að gefa sér tíma
fyrir hvort annað en ekki síður að
hugsa um sjálf sig sem einstaklinga.
„Ánægður einstaklingur gefur svo
miklu meira af sér en óánægður
einstaklingur. Svo er líka mikilvægt
að gera sér grein fyrir því að maður
breytir víst engum og maður þarf
að læra að elska hinn aðilann, bæði
kostina og gallana. Gott samband
krefst mikillar vinnu sem maður
stimplar sig aldrei út úr.“
Þrátt fyrir að hafa eytt miklum
tíma í undirbúning veislunnar eru
fatamál verðandi brúðhjóna ekki
leyst. „Hingað til hefur aðaláhersl-
an verið á matinn og veisluna. Við
erum þó með okkar hugmyndir um
hvernig við viljum líta út og erum
að vinna í því með hjálp góðrar vin-
konu okkar sem er snillingur þegar
kemur að útliti. Svo er ég búin að
velja brúðarvöndinn.“
Verðandi brúðhjón vinna ekki
bara að undirbúningi eigin brúð-
kaups. Í haust kemur út matreiðslu-
bók með vinsælustu réttum Grill-
markaðarins. Björn tekur allar
myndir í bókinni en uppskriftirnar
koma frá Hrefnu og Guðlaugi, með-
eiganda hennar í Grillmarkaðnum.
- sfj
Gefa sér tíma fyrir hvort annað
Mikið verður um dýrðir í Hvalfirðinum í sumar þegar Hrefna Sætran og Björn Árnason gifta sig þar að ásatrúarsið. Við undirbúning
brúðkaupsins er mest áhersla lögð á veisluna og veitingar en verðandi brúðhjón fá ekki að sjá matseðilinn fyrr en í veislunni.
„Við sáum strax að við áttum vel saman enda með svipaðan húmor sem skiptir miklu
máli,“ segir Hrefna Sætran sem giftist Birni Árnasyni í sumar. MYND/VALLI
Eitt frægasta brúðkaup sögunnar var þegar Elizabeth
Taylor og Richard Burton gengu í það heilaga í mars
1964 eða fyrir nákvæmlega fimmtíu árum. Það var á
þeim tíma fimmta hjónaband Taylor en alls gifti hún sig
átta sinnum, þar af Burton tvisvar.
Samband þeirra var eldheitt og storma-
samt. Elizabeth, sem var fædd árið
1932, átti þá langan kvikmynda-
feril að baki, fyrst sem barna-
stjarna. Hjónaböndin voru
skammlíf, það fyrsta lifði
í átta mánuði. Sá hét
Conrad Hilton og var
sonur eiganda Hil-
ton-hótelanna.
Michael Wilding
var eiginmaður
númer tvö, tutt-
ugu árum eldri
en leikkonan
og hjónaband-
ið entist í fimm
ár. Mike Todd var
stóra ástin í lífi
Liz, ekki síður en
Burton. Hann lést
aðeins ári eftir gift-
ingu þeirra.
Besti vinur Mikes
Todd, Eddie Fisher, varð
næsti eiginmaður Liz en
hann var í hjónabandi með
Debbie Reynolds þegar þau
byrjuðu saman. Þau voru hjón þar
til hún kynntist Burton. Liz og Burton
voru bæði í hjónabandi þegar þau byrjuðu
saman og voru jafnan forsíðuefni blaða,
enda bæði stórstjörnur á hvíta tjaldinu.
Taylor átti í mörgum frægum ástarsam-
böndum utan hjónabanda. Sjálf sagðist
leikkonan hafa átt þrjár stórar ástir í lífinu,
Todd, Burton og skartgripi.
Lendingin hjá
okkur var
ásatrúarathöfn. Það er
svo létt yfir þeim. Svo hef
ég heyrt að það séu
geggjuð partí í Valhöll.
Sögufrægt brúðkaup
fyrir 50 árum
Það var 15. mars
1964 sem Liz Taylor
og Richard Burton
giftu sig í fyrra skiptið
en brúðkaupið vakti
heimsathygli, enda
frægar stjörnur.
25 ára
reynsla
Sími 561 2031 • www.veislan.is
Heildarlausn í brúðkaupið þitt