Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 36
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
„Í núgildandi kerfi liggja upplýsingar ekki
á borðinu heldur þarf að sækja sérstaklega
um þær. Draumaumhverfið er þannig að
þetta verði allt saman sett út á Netið fyrir
utan viðkvæm persónugögn. Það eru engin
vitræn rök gegn því að halda upplýsing-
um frá fólki. Svo geta einhverjir komið og
unnið úr þessum gögnum. Gert eitthvað
við þau. Ég á t.d. vin sem er með vefsíðu
þar sem hann birtir upplýsingar um leigu-
húsnæði. Þar er hægt að leita og flokka og
fá skilaboð þegar eitthvað kemur upp sem
maður hefur áhuga á. Þetta er bara gert
með því að sækja upplýsingar af öðrum
síðum og taka þær saman. Þetta er hluti af
þessari pælingu að dreifa upplýsingum og
dreifa valdinu þannig að þetta sé ekki allt
á höndum hins opinbera,“ segir Halldór.
Hann nefnir Orkuveituna einnig sem
dæmi um aukið gegnsæi. „Við erum með
þá stefnu að gera bókhald opinbert, þar
með talið fyrirtækja í eigu borgarinnar.
Það myndi opna fyrir aðhald og skapa
hvata til þess að hagræða því þá gætu allir
séð hvar menn væru að eyða peningum.“
Nýr í pólitík
Píratar á Íslandi buðu fyrst fram í síðustu
alþingiskosningum og margir í hreyfing-
unni hafa aldrei komið nálægt stjórnmál-
um áður. „Ég hef ekki verið virkur áður í
einhverju pólitísku starfi. Það vildi bara
þannig til að ég heillaðist af því sem Pírat-
ar voru að gera fyrir síðustu kosningar. Ég
þekkti fólk sem var þarna og núna er ég
kominn hingað,“ segir Halldór. Hann segir
að reynsluleysi Pírata hafi bæði góð og
slæm áhrif á flokkinn. „Góðu áhrifin eru
að fólk er ekki með fyrirframgefnar hug-
myndir. Það hristir sig saman og er óhrætt
við að vera það sjálft. Læra á meðan það
gerir þessa hluti og finna sig í þessu starfi.
Það slæma birtist kannski í pínu agaleysi
en það er líka gott að sumu leyti,“ segir
Halldór. „Við vinnum [málefnavinnu] í
sameiningu í mjög opnu ferli þar sem allir
sem vilja fá að vera með.“
Vill kjósa borgarstjóra sérstaklega
Halldór vill að borgarstjóri verði kos-
inn í beinni kosningu. „Borgarstjóri
myndi þá sækja umboð sitt beint til
allra borgarbúa. Miðað við núverandi
sveitar stjórnarlög þá er þetta staða
framkvæmdastjóra og æðsta yfirmanns
stjórnsýslunnar. Það er hann sem ber
ábyrgð á því að ákvörðunum sé fylgt
eftir. Miðað við þetta er eðlilegt að okkar
mati að hann sæki umboð sitt beint til
borgarbúa í sérstökum kosningum,“
segir Halldór.
Vinsælir meðal yngri kjósenda
Píratar sækja mikið fylgi til yngri kjós-
enda og virðast höfða sérstaklega til þess
aldurshóps. „Við erum ekki endilega að
höfða markvisst til þessa aldurshóps. En
það virðist vera að okkar áherslur höfði
betur til þessa hóps. Þetta er fólk sem er
ekki alið upp í því að fylgja hinum eða
þessum flokkum eða ríkjandi kerfi í ein-
hverri blindni. Okkar áherslur eru hins
vegar að höfða til allra aldurshópa og til
allra landsmanna. Það er okkar markmið,“
segir Halldór.
Viðtalið við Halldór er hægt að sjá í
þættinum Pólitíkin á vísir.is
Aukið gegnsæi dregur úr spillingu
Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í Reykjavík, vill auka íbúalýðræði í borginni og opna stjórnsýsluna. Hann segir að
með auknu gegnsæi sé hægt að draga úr spillingu og koma í veg fyrir sóun á peningum skattgreiðenda.
STJÓRNMÁLAÞÁTTTAKA,
MENNTUN OG HELSTU STÖRF
Viðtalið við Halldór er
hægt að sjá í þættinum
Pólitíkin á visir.is
visir.is
Höskuldur Kári Schram
hoskuldur.schram@frettabladid.is
Á AÐ SELJA
ORKUVEITUNA?
Við höfum ekki rætt það sérstak-
lega. Það eru skiptar skoðanir á því
hvert rekstrarformið á að vera. Ég er
persónulega ekki hrifinn af því að fara
geyst í það að einkavæða eitthvað sem
tilheyrir grunnþjónustunni.
FYRSTA VERK SEM
BORGARSTJÓRI
Mitt fyrsta verk væri að boða til op-
ins íbúafundar þar sem allir borgarbúar
geta mætt og fengið upplýsingar um
okkar áherslur og hvað við hefðum fram
að færa. Svo myndi ég halda fleiri fundi
þar sem fólk getur komið og rætt málin.
Það er í samræmi við okkar áherslur að
opna stjórnkerfið fyrir borgarbúum.
Á AÐ LEYFA HÚSTÖKU-
FÓLKI AÐ TAKA YFIR
TÓMAR ÍBÚÐIR?
Mér finnst þetta eitthvað sem megi
skoða út frá lagalegum forsendum og
einnig kostum og göllum. Vandinn er
náttúrulega brýnn og það eru tómar
íbúðir sem er ekki verið að nýta. Mér
finnst ekkert að því að skoða allar
mögulegar lausnir á því. Sérstaklega ef
það er mikill vandi. Hann bitnar mjög
á fólki sem er með lágar tekjur en ekki
það lágar að það komist inn í félagslega
kerfið.
BS í tölvunarfræði
frá HÍ 2003
Forritari hjá
Kaupþingi
Forritari hjá
Arion banka
Forritari hjá
Hagstofu Íslands
Oddviti Pírata í
Reykjavík frá 2014