Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 36

Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 36
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 „Í núgildandi kerfi liggja upplýsingar ekki á borðinu heldur þarf að sækja sérstaklega um þær. Draumaumhverfið er þannig að þetta verði allt saman sett út á Netið fyrir utan viðkvæm persónugögn. Það eru engin vitræn rök gegn því að halda upplýsing- um frá fólki. Svo geta einhverjir komið og unnið úr þessum gögnum. Gert eitthvað við þau. Ég á t.d. vin sem er með vefsíðu þar sem hann birtir upplýsingar um leigu- húsnæði. Þar er hægt að leita og flokka og fá skilaboð þegar eitthvað kemur upp sem maður hefur áhuga á. Þetta er bara gert með því að sækja upplýsingar af öðrum síðum og taka þær saman. Þetta er hluti af þessari pælingu að dreifa upplýsingum og dreifa valdinu þannig að þetta sé ekki allt á höndum hins opinbera,“ segir Halldór. Hann nefnir Orkuveituna einnig sem dæmi um aukið gegnsæi. „Við erum með þá stefnu að gera bókhald opinbert, þar með talið fyrirtækja í eigu borgarinnar. Það myndi opna fyrir aðhald og skapa hvata til þess að hagræða því þá gætu allir séð hvar menn væru að eyða peningum.“ Nýr í pólitík Píratar á Íslandi buðu fyrst fram í síðustu alþingiskosningum og margir í hreyfing- unni hafa aldrei komið nálægt stjórnmál- um áður. „Ég hef ekki verið virkur áður í einhverju pólitísku starfi. Það vildi bara þannig til að ég heillaðist af því sem Pírat- ar voru að gera fyrir síðustu kosningar. Ég þekkti fólk sem var þarna og núna er ég kominn hingað,“ segir Halldór. Hann segir að reynsluleysi Pírata hafi bæði góð og slæm áhrif á flokkinn. „Góðu áhrifin eru að fólk er ekki með fyrirframgefnar hug- myndir. Það hristir sig saman og er óhrætt við að vera það sjálft. Læra á meðan það gerir þessa hluti og finna sig í þessu starfi. Það slæma birtist kannski í pínu agaleysi en það er líka gott að sumu leyti,“ segir Halldór. „Við vinnum [málefnavinnu] í sameiningu í mjög opnu ferli þar sem allir sem vilja fá að vera með.“ Vill kjósa borgarstjóra sérstaklega Halldór vill að borgarstjóri verði kos- inn í beinni kosningu. „Borgarstjóri myndi þá sækja umboð sitt beint til allra borgarbúa. Miðað við núverandi sveitar stjórnarlög þá er þetta staða framkvæmdastjóra og æðsta yfirmanns stjórnsýslunnar. Það er hann sem ber ábyrgð á því að ákvörðunum sé fylgt eftir. Miðað við þetta er eðlilegt að okkar mati að hann sæki umboð sitt beint til borgarbúa í sérstökum kosningum,“ segir Halldór. Vinsælir meðal yngri kjósenda Píratar sækja mikið fylgi til yngri kjós- enda og virðast höfða sérstaklega til þess aldurshóps. „Við erum ekki endilega að höfða markvisst til þessa aldurshóps. En það virðist vera að okkar áherslur höfði betur til þessa hóps. Þetta er fólk sem er ekki alið upp í því að fylgja hinum eða þessum flokkum eða ríkjandi kerfi í ein- hverri blindni. Okkar áherslur eru hins vegar að höfða til allra aldurshópa og til allra landsmanna. Það er okkar markmið,“ segir Halldór. Viðtalið við Halldór er hægt að sjá í þættinum Pólitíkin á vísir.is Aukið gegnsæi dregur úr spillingu Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í Reykjavík, vill auka íbúalýðræði í borginni og opna stjórnsýsluna. Hann segir að með auknu gegnsæi sé hægt að draga úr spillingu og koma í veg fyrir sóun á peningum skattgreiðenda. STJÓRNMÁLAÞÁTTTAKA, MENNTUN OG HELSTU STÖRF Viðtalið við Halldór er hægt að sjá í þættinum Pólitíkin á visir.is visir.is Höskuldur Kári Schram hoskuldur.schram@frettabladid.is Á AÐ SELJA ORKUVEITUNA? Við höfum ekki rætt það sérstak- lega. Það eru skiptar skoðanir á því hvert rekstrarformið á að vera. Ég er persónulega ekki hrifinn af því að fara geyst í það að einkavæða eitthvað sem tilheyrir grunnþjónustunni. FYRSTA VERK SEM BORGARSTJÓRI Mitt fyrsta verk væri að boða til op- ins íbúafundar þar sem allir borgarbúar geta mætt og fengið upplýsingar um okkar áherslur og hvað við hefðum fram að færa. Svo myndi ég halda fleiri fundi þar sem fólk getur komið og rætt málin. Það er í samræmi við okkar áherslur að opna stjórnkerfið fyrir borgarbúum. Á AÐ LEYFA HÚSTÖKU- FÓLKI AÐ TAKA YFIR TÓMAR ÍBÚÐIR? Mér finnst þetta eitthvað sem megi skoða út frá lagalegum forsendum og einnig kostum og göllum. Vandinn er náttúrulega brýnn og það eru tómar íbúðir sem er ekki verið að nýta. Mér finnst ekkert að því að skoða allar mögulegar lausnir á því. Sérstaklega ef það er mikill vandi. Hann bitnar mjög á fólki sem er með lágar tekjur en ekki það lágar að það komist inn í félagslega kerfið. BS í tölvunarfræði frá HÍ 2003 Forritari hjá Kaupþingi Forritari hjá Arion banka Forritari hjá Hagstofu Íslands Oddviti Pírata í Reykjavík frá 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.