Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 16

Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 16
29. mars 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Kerfisbreytingar eru gjarn-an andsvar við stöðnun. Oft er það þó svo að vin-sælla er að tala um þær sem almenna hugmynd en að fram- kvæma þær í einstökum atriðum. Framförum fylgja jafnan vaxtar- verkir. Allir kjósa að njóta ávaxta af kerfisbreytingum en fáir vilja bera ábyrgð á óhjákvæmilegum fylgjum þeirra. Á síðasta ári varð hér meiri hagvöxtur en menn höfðu vænst. Það er smá rós í hnappagat fyrri stjórnar. Nýja ríkisstjórnin er til muna áhugasamari um hagvöxt. Því má reikna með að hann haldi áfram. Vandinn er hins vegar sá að framleiðni er ekki að vaxa að sama skapi. Bilið milli lífskjara hér og í grann- löndunum gæti því haldið áfram að breikka þrátt fyrir vöxt. Ein ástæðan fyrir þessu er sú að ríkisstjórn- in er andvíg þeim kerfisbreyting- um í peningamálum sem líkleg- astar eru til að stuðla að aukinni framleiðni. Vöxturinn verður því einkum í greinum með lága fram- leiðni eins og ferðaþjónustu og svo nýjum orkufrekum iðnaði sem þarfnast ívilnana og sérkjara á kostnað skattborgaranna. Framleiðniaukning er ekki aðeins mikilvæg í atvinnulífinu. Hún er líka brýn í ríkiskerfinu. Þar hefur víða náðst umtalsverð- ur árangur. Aftur á móti er það íhugunarefni við þessar aðstæð- ur hversu lítil athygli beinist að kerfisbreytingum og framleiðni- aukningu í búskap atvinnuveg- anna. Þegar þannig stendur á er enn mikilvægara að knýja á um kerf- isbreytingar á þjónustusviðum ríkisins eigi að komast hjá stöðn- un. Kjarabætur opinberra starfs- manna verða þá í mun ríkari mæli en ella að byggjast á skipulags- breytingum og framleiðniaukn- ingu í ríkiskerfinu sjálfu. Rokkar hagræðingarhópsins þagnaðir Það eru nokkur býsn að menntamálaráðherra hefur verið einn á báti í rökræð- unni fyrir kerfisbreytingum. Hann sendi þau skilaboð strax, (í gömlu merkingu þess orðs), að þær yrðu eitt af stóru verkefnum kjörtímabilsins. Það sem skipti þó meira máli var að hann reynd- ist vera tilbúinn að ræða jöfnum höndum óþægindin og ávinning- inn. Með öðru móti verður kerfis- breytingaboðskapurinn ekki trú- verðugur. Sú umræða sem stað- ið hefur síðan um það eðlilega sjónar mið að íslenskir grunn- og framhaldsskólar skili nemendum út í lífið eða til háskólanáms á jafn mörgum árum og í grannlöndun- um hefur því smám saman fengið hljómgrunn. Kröfur kennara um kjarabætur umfram það sem samdist um á almennum markaði mættu vel- vilja í almenningsálitinu. Það er ekki nýtt. Hitt kom meira á óvart að andsvar menntamálaráðherra um kerfisbreytingu til að mæta þeim kostnaði féll einnig í frjóan akur almenningsálitsins. Samúðin með kröfugerðinni náði einfaldlega ekki til andspyrnu við breytingar. Ugglaust hefði menntamálaráð- herra mátt koma fyrr með tækni- legar útfærslur í einstökum atrið- um. Það væri einfaldlega slæmt ef hann félli á tíma. En það breytir ekki hinu að hann hefur með póli- tískri rökræðu fengið víðtækan stuðning við sjónarmið sín úti í samfélaginu. Almenningur skilur að sérhver launahækkun er pólitísk efnahags- aðgerð. Í þessu tilviki voru þrjár leiðir færar: Ein var framleiðni- aukning í skólakerfinu. Önnur var hækkun skatta. Og sú þriðja að skera niður hjá öðrum þjónustu- sviðum ríkisins. Ráðherrann benti á sanngjörnustu og hagkvæmustu leiðina til lausnar þótt enn sé ekki ljóst hvort hann hefur erindi sem erfiði. Menntamálaráðherra einn á báti Hitt voru ill tíðindi, sem menntamálaráðherra kynnti í vikunni, að áform- uð sameining Landbúnaðar- háskólans og Háskóla Íslands væri komin í saltpækil. Mót- spyrna Bændasamtakanna virð- ist hafa ráðið mestu um það. Þar er sannarlega ekki við menn úti í bæ að eiga sem skella má skolla- eyrum við. Tillögur ráðherrans voru vel rökstuddar og í þágu almanna- hagsmuna. Þeir urðu að víkja fyrir öðrum hagsmunum. Annað- hvort verða skattgreiðendur að borga þann brúsa eða háskóla- kennarar með lægri launum. Eðli- legt hefði verið að stilla Bænda- samtökunum upp andspænis þeim kosti að kostnaðurinn yrði dreginn frá framlögum til landbúnaðarins. Það hefur ekki þótt við hæfi. Á fyrstu mánuðum ríkisstjórn- arinnar stóð hún í skugga svo- nefnds hagræðingarhóps sem talaði hærra og meira en hún. Formanni hans var síðan lyft til þeirra metorða að verða sérstakur aðstoðarmaður forsætisráðherra til að vinna að framgangi umbóta í ríkisrekstrinum. Ætla hefði mátt að þessi hópur hefði tekið hitann og þungann af menntamálaráðherra og verið sverð hans og skjöldur í umræðum um skipulagsbreytingar í skólakerfinu. Að réttu lagi hefði verið ærið tilefni til að halda neyðarfund í hagræðing- arhópnum í vikunni þegar tíðindin bárust um Landbúnaðarháskólann. En er til átti að taka höfðu rokkar hópsins snarþagnað. Hávaðapóli- tík sem endar þannig er heldur haldlítil. Samtök sem hlustað er á! OPEL AMPERA rafbíll Nýskr. 10/12, ekinn 7 þús. km. Sjálfskiptur. Búnaður m.a.: Bluetooth símkerfi, BOSE hljómkerfi, lyklalaust aðgengi, bakkmyndavél, DVD kerfi o.m.fl. Var valinn bíll ársins 2012 í Evrópu. Kletthálsi 11 Sími 525 8000 bilaland@bilaland.is www.bilaland.is Frábært verð 6.480 þús. F ramlagning frumvarpanna um skuldaleiðréttingu á kostnað ríkissjóðs er dálítill sigur fyrir ríkisstjórnina, sem var búin að koma sér í þrönga stöðu með tillögunni um viðræðuslit við Evrópusambandið. Skuldaleiðréttingin er raunar miklu umfangsminni en gefin voru fyrirheit um fyrir kosningar, þegar framsóknarmenn töluðu um 240-300 milljarða „svigrúm“ sem ætti að myndast í samningum við kröfuhafa föllnu bankanna og mætti nota til skuldaniðurfærslu. En þær hugmyndir voru hvort sem er aldrei raunhæfar og margir bentu á það. Nú er gert ráð fyrir að 80 milljarðar fari í skuldaleiðréttinguna. Ekki gekk heldur eftir að skuldaleiðréttingin ætti sér stað án kostnaðar eða áhættu fyrir ríkissjóð. Vissulega hefur verið ákveðið að fjármagna hana með bankaskatti, en deilt er um lögmæti hans og áhættan liggur hjá skattgreiðendum öllum. Sömuleiðis er hætt við að margir sem vonuðust eftir peningum úr þessum potti verði fyrir vonbrigðum af því að þeir fá ekki neitt og aðrir af því að þeir fá minna en þeir héldu. Og þá er alveg eftir að tala um hvort þetta var yfirleitt skynsamlegasta ráðstöfunin á því fé, sem ríkið telur sig geta náð út úr þrotabúum föllnu bank- anna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur lítið gert með varnaðarorð þeirra sem hafa bent á að skuldaleiðrétt- ingin sé líkleg til að valda þenslu og verðbólgu í samfélaginu. Hann ætlaði til dæmis „ekki að láta Seðlabankann stoppa sig“ þegar sú stofnun var með eitthvert múður. Nú þegar útfærslan liggur fyrir eru flestir greinendur samt sammála um að áhrifin verði til þessarar áttar og þannig muni auknar ráðstöfunartekjur heimila vegna skuldalækkunarinnar að einhverju leyti hverfa í gin verðbólgunnar. Forsætisráðherrann er þó greinilega hróðugur með að hafa komið stóra málinu sínu í framkvæmd, þrátt fyrir varnaðarorðin. Hann er strax farinn að tala um hvað gerist næst. Í þættinum Í bítið á Bylgjunni í fyrradag sagði hann að það væri „eðlilegt fram- hald að ráðast í afnám verðtryggingar á neytendalánum“. Sumir muna kannski að í janúar skilaði nefnd forsætisráðherra um afnám verðtryggingar á neytendalánum skýrslu, þar sem meirihluti nefndarinnar, skipaður ýmsum sérfræðingum, komst að þeirri niðurstöðu að afnám verðtryggingar á slíkum lánum væri ógjörningur við núverandi aðstæður og raunar algjört glapræði. Afnámið myndi draga úr hagvexti, þyngja greiðslubyrði lántakenda, valda hruni húsnæðisverðs og setja stöðu lífeyris- sjóðanna í uppnám. Forsætisráðherrann er augljóslega hundfúll með þetta nefndarálit og hefur gert mikið úr því að einn nefndar- maður, Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi, hafi skilað séráliti þar sem hann er sammála forsætisráðherranum um að afnema verðtryggingu í hvelli. Í skýrslu nefndarinnar var raunar ekkert fjallað um þá grund- vallarstaðreynd að verðtryggingin er verðið sem við greiðum fyrir veikan og óstöðugan gjaldmiðil. Án hennar virkar peninga- kerfið ekki. Við losnum aldrei við verðtrygginguna nema skipta um gjaldmiðil – en ríkisstjórnin vill skella í lás dyrunum að eina möguleika Íslands á nýrri mynt. Full ástæða er til að hafa áhyggjur af að forsætisráðherrann, hafandi komið stóru skuldaleiðréttingunni framhjá efasemda- mönnum í samstarfsflokknum og í hópi greinenda og hagfræð- inga, sé svo fullur sjálfstrausts að hann keyri næst afnám verð- tryggingarinnar í gegn. Þá fyrst erum við í vondum málum. Er afnám verðtryggingar næst á dagskrá? Órökrétt framhald Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.