Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 20
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
VERJANDI JAKOBS
eftir William Landay.
Frábær réttarfars-
krimmi. Bókin sem Stephen
King kallaði besta réttar-
drama sem út hefur komið
árum saman.
Á PLÖTUNA
Glamúr í
geimnum með Dj.
flugvél og geimskip.
Platan kom út í lok árs
2013 og var skemmti-
leg frumraun lista-
mannsins.
Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINA Evrópa hlær á
Borgarbókasafninu. Í dag klukkan 15 verður sýnd
myndin Rauðlitaður grár trukkur frá Serbíu.
Á BEINA
ÚTSENDINGU
frá Ísland got
talent en hæfileika-
keppnin hefur slegið
í gegn hjá ungum
sem öldnum. Hún er í
opinni dagskrá á Stöð
2 annað kvöld klukkan
19.45.
HELGIN
29. mars 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Aðalfundir deilda KEA verða haldnir sem hér segir:
Deildarfundur Vestur-Eyjafjarðardeildar
Verður haldinn þriðjudaginn 1. apríl kl 16:00
í Leikhúsinu á Möðruvöllum
Deildarfundur Út-Eyjafjarðardeildar
Verður haldinn þriðjudaginn 1. apríl kl 20:00
í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju
Deildarfundur Austur-Eyjafjarðardeildar
Verður haldinn miðvikudaginn 2. apríl kl 16:00
á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit
Deildarfundur Þingeyjardeildar
Verður haldinn miðvikudaginn 2. apríl kl 20:00
á Veitingahúsinu Sölku á Húsavík
Deildarfundur Akureyrardeildar
Verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl kl 20:00
á Hótel KEA á Akureyri
Á fundunum verða venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins
Deildarstjórnir
Aðalfundur KEA
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
PVC mottur 50x80 cm1.490
Breidd: 66 cm
erVerð pr. lengdarmet
66x120 cm kr 2.790
100x150 cm kr 4.990
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Hallgrímur Helgason, rithöfundur
Bað, afmæli og Billinn
Laugardagur: Leggjast í bað og hlusta á Vikulokin, þ.e.a.s.
ef Birgir Ármannsson er ekki gestur, á alltaf nett erfitt með
að liggja með honum í baði. Fara út með hundinn og svo á
fundinn, og svo er vinkona mín Guðrún Vilmundardóttir
að fagna sextugsafmælinu sínu. Sunnudagur: Flug
til Akureyrar kl. 12.30, held svo þaðan á Sigló þar
sem við Lukka ætlum að vera næsta mánuðinn
í skafrennandi einangrun að skrifa. Stefni á
að ná Gylfaleiknum á Billanum og svo beinni
útsendingu úr Þjóðleikhúsinu um kvöldið.
Ásdís María Viðarsdóttir,
söngkona
Leir og ópera
Leira afmælisgjöf handa bestu
vinkonu minni, Þorbjörgu
Roach, og síðan fer ég á íslensku
óperuna Ragnheiði með hinni
bestu vinkonu minni, mömmu.
Ágúst Bent, rappari
Blautur löns og RFF
Byrja á blautum löns, svo á
HönnunarMars, þaðan á opnun
hjá Sunnu Ben, svo blautari
dinner. Þá liggur leiðin í
RFF-partí og svo loks í þrítugs-
afmæli hjá gömlum manni.
Þorbjörg Marinósdóttir,
rithöfundur
Flensa og barnaföt
Ég var að koma frá New York
með flensu en ef ég hressist
mun ég sitja og flokka barnaföt.
Fer samt á HönnunarMars og í
hádegismat á Coocoos Nest.
„Í ár eru akkúrat 100 ár síðan
fánanefnd auglýsti eftir tillög-
um að þjóðfána Íslands og mér
fannst áhugavert að sjá hvernig
við myndum bregðast við í dag ef
sömu spurningu yrði varpað til
almennings, hvaða tillögur hann
kæmi með,“ segir Hörður Lárus-
son.
Hörður er grafískur hönnuður
og aðstandandi sýningarinnar
Skjótum upp fána sem fer fram í
Gallerí Þoku. Þar má sjá rúmlega
120 tillögur að nýjum þjóðfána
Íslendinga. Tæplega hundrað ár
eru liðin frá því að íslenski fán-
inn var staðfestur með konungs-
úrskurði en þá, árið 1914 bárust 28
tillögur. Af því tilefni ákvað Hörð-
ur að efna til nýrrar samkeppni.
„Ég fékk þau Atla Þór Árnason og
Unnie Arendrup í lið með mér og
við settum upp vefsíðu. Þar buðum
við fólki að senda inn tillögur og
það endaði í 120 tillögum að nýjum
fána,“ segir Hörður, en eingöngu
var í boði að senda inn skriflegar
tillögur sem þau síðan teiknuðu
upp.
Sýningin var opnuð á fimmtu-
daginn og er aðallega hugsuð yfir
Hönnunarmars, sem er nú í full-
um gangi þar til á sunnudag. Þá
eru þessar 100 ára gömlu tillög-
ur, á fánastöngum hér og þar um
borgina um helgina til sýnis. Til
dæmis við Hörpu, Ráðhús Reykja-
víkur, í Lækjargötu og við þessa
fána stendur textaskýring hver á
hugmyndina.
„Ég tek niður gömlu fánana eftir
helgi, en hef sýninguna í Þoku
opna til 6. apríl. Allir velkomnir.“
Hundrað útgáfur af
íslenska fánanum
Hörður Lárusson er grafískur hönnuður sem fer fyrir óformlegri fánanefnd þar
sem hann leitar til almennings eft ir nýjum tillögum að þjóðfána Íslands. Rúmlega
120 tillögur að nýjum fána má berja augum í Galleríi Þoku yfi r Hönnunarmars.
NÝIR FÁNAR Hörður Lárusson veltir fyrir sér hvernig þjóðfáni Íslands myndi líta út ef efnt væri til samkeppni í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hvað? Sýningin Skjótum upp fána
Hvar: Gallerí Þoka, Laugavegur 25
Hversu lengi: Stendur til 6. apríl
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is