Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 116
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
tónleikana. „Þú ættir að geta bætt
við erindum hér,“ segir Megas og
Þórður tekur undir. Þórður seg-
ist hafa unnið að útsetningunni
fram að hádegi en það örlar ekki
á kvíða hjá þeim þó það styttist í
að slegið verði inn. „Nei, ég ákvað
að úthýsa kvíðanum. Hann hefur
ekkert upp á sig,“ segir Megas.
Áfram KR á milli hríða
Lög Megasar við Passíusálmana
voru samin þegar Þórður, sonur
hans, var að koma í heiminn. „Ég
gerði fyrsta sálminn 1969 en árið
1973 ruddist ég í að klára þá. Svo
þetta er í raun seventís-músík. Ég
notaði bara einn orginal tón sem
mér fannst hljóma vel með sálm-
unum. Ég gerði ekkert annað á
meðan. Þá var Þórður að koma
í heiminn en það var ekki orðið
félagslega viðurkennt að faðir-
inn væri viðstaddur fæðinguna.
Svo ég var bara heima að semja.
Svo þegar frúin kom heim með
Þórð nokkrum dögum síðar þá
var aðkoman kannski ekki eins
og nýbökuð móðir vill hafa það.
En ég hafði ekki gefið mér tíma
til að grípa í sóp eða svoleiðis.
Hún heyrði svo lögin ekki fyrr
en áttatíu og eitthvað. En þá taldi
ég að hún væri orðin sátt. Þarna
var alvanalegt að mæður væru í
tíu daga inni eftir fæðingu en ef
móðir fór fyrr fékk hún peninga á
móti þeim dögum sem hún sleppti.
Núna situr pabbinn við hliðina
og hrópar áfram KR, áfram KR.
Þegar ég eignaðist barn árið 1992
sat ég til dæmis við hliðina á móð-
urinni og sagði brandara, það lin-
aði verkina. Móðir þarf auðvitað
á stuðningi að halda í þessu öllu
saman.“
Megas enginn Jesús
Passíusálmarnir eru eins og allir
vita sagan af píslargöngu Krists
„Jesús er mikið að berjast á móti
valdstjórninni í sálmunum. Ég hef
ekki samúð með valdstjórninni.
Ég reyni að tala sem minnst við
þessa menn. Þeir snúa öllu sem
maður segir og reyna að finna
eitthvað á mann.“ Magga Stína
syngur hlutverk Jesú á tónleik-
unum en aðspurður segir Megas
það aldrei hafa komið til greina
að snúa hlutverkunum við. „Hún
hefur alltaf verið Jesús. Ég er
bara sögumaður og Magga Stína
er Jesús. Að snúa því við? Það
væri skandall.“
Tónleikarnir eru mjög umfangs-
miklir eins og áður sagði og mælir
Megas með að fólk komi á þá alla.
„Já, fólk verður auðvitað að vita
hvað gerist næst í sögunni.“ Tón-
leikarnir þrennir eru mjög ólík-
ir í sniðum og spanna skalann
frá hefðbundnari sálmatón yfir í
rokkmúsík. Megas segist þó ekki
geta sagt hver sé sinn uppáhalds
Passíusálmur. „Ég geri ekki upp á
milli barnanna hans Hallgríms.“
Toppnum ekki náð
Það er auðvelt að velta því fyrir
sér hvort fimmtíu sálma flutn-
ingur sé ekki merki um að Megas
ætli að hætta á toppnum og kveðja
Hallgrím Pétursson. Hann segir
þó að það standi ekki til. „Næst
munum við halda okkar eigin
þriggja daga Hróarskelduhátíð
og flytja þá alla í einu, fimmtíu
talsins.“
Fyrstu tónleikarnir verða þann
3. apríl næstkomandi, því næst
10. apríl og lokakafli sálmanna,
sjálf krossfestingin, fer svo fram
á föstudaginn langa. Hægt er að
kaupa miða á einstaka tónleika
eða svokallaðan páskapassa á til-
boðsverði. Tónleikarnir fara fram
í Grafarvogskirkju og miðasala
stendur yfir á midi.is.
Meistari Megas, í lit-ríku gallabuxun-um sínum, ætlar að syngja alla Passíusálma Hall-gríms Péturssonar
á þrennum tónleikum í apríl. Sálm-
arnir eru fimmtíu talsins og hafa
margir hverjir aldrei heyrst áður.
„Ég er alinn upp við að Passíusálm-
arnir suðuðu í útvarpinu heima og
ég lét þá pirra mig. Það var eitt-
hvað við tóninn sem fór í taugarn-
ar á barninu. Prestarnir leiðréttu
líka alltaf flámælið sem er svo fal-
legt. Svo vandist þetta allt saman
og með árunum fór ég að heillast
af tungumálinu, öllum dönskuslett-
unum og bragfræðinni.“
Tilbúinn í fjörutíu ár
Megas hefur flutt Passíusálma
Hallgríms Péturssonar með reglu-
legu millibili síðastliðin fjörutíu
ár. Nú hefur hann blásið til risa-
vaxinnar veislu í tilefni 400 ára
afmælis sálmaskáldsins. Hann
hefur fengið til liðs við sig hljóm-
sveitina Moses Hightower, Caput-
hópinn, Möggu Stínu, strengja-
sveit, rokksveit og þrjá ólíka kóra
en auk þess útsetur sonur hans,
Þórður Magnússon, tónlist föður
síns fyrir stærri sveit. Hilmar
Örn Agnarsson, organisti og kór-
stjóri ,er listrænn stjórnandi tón-
leikanna.
„Það mæðir mikið á Magnúsi,“
segir Hilmar „En hann hefur verið
tilbúinn í fjörutíu ár og ég í fjór-
tán. Svo við erum reynslumiklir.“
Félagarnir fluttu Passíusálmana í
Skálholti árið 2001. „Þá var algjör-
lega fullt út úr dyrum og við gátum
ekkert gert nema að hleypa öllum
inn. Þú lokar ekki Skálholtskirkju
á föstudaginn langa. Þá var mætt
ungt fólk, rokkarar og svona, og allt
upp í áttrætt. Það var setið á gólf-
inu og í stiganum og hvar sem fólk
komst. Allir voru með sálmabækur.
Þessi stund var alveg ógleymanleg.“
Allt að smella saman
Meðan á viðtalinu stendur sitja
Þórður og Megas og skipuleggja
Þóttu Passíusálmarnir pirrandi
Megas heldur upp á 400 ára afmæli Hallgríms Péturssonar með því að frumfl ytja lög sín við Passíusálmana. Prestar fussuðu yfi r
meðferð hans á sálmunum en sjálfur segir hann að gamalt fólk hafi komið til sín og sagt að einmitt svona ætti að fl ytja þá. Þórður
Magnússon, sonur Megasar, sér um útsetningu á tónlistinni enda voru lögin samin þegar hann var að koma í heiminn.
ENN AÐ SKIPULEGGJA Hilmar Örn Agnarsson, Þórður Magnússon og Megas grúska í útgáfu Passíusálmanna frá 1906. Bókina hafði Megas til hliðsjónar þegar hann samdi lögin sín en svo glataðist hún honum. Vinur
gaf honum annað eintak fyrir skömmu sem nýtist vel við skipulagningu tónleikanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég hef ekki samúð
með valdstjórninni. Ég
reyni að tala sem minnst
við þessa menn.
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
MENNING