Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 16
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Nú þegar hillir undir að ríkisstjórn-
arflokkarnir efni helstu og stærstu
kosningaloforð sín fara andstæðingar
stjórnarinnar hamförum í áróðri sínum
gegn ráðstöfunum sem felast í frum-
vörpunum tveimur sem nú liggja fyrir
þinginu. Því er haldið fram að aðgerð-
irnar auki verðbólgu, hækki vexti og
skaði fjárhag ríkis og sveitarfélaga inn
í framtíðina. Aðgerðin, sem er tvíþætt,
almenn og reist á réttlæti og sanngirni,
mun hafa lágmarksáhrif á verðbólgu og
vexti. Hún mun til skamms tíma hafa
nokkur áhrif á sveitarfélögin en allar
líkur eru á að þau áhrif fjari út og að
sveitarfélög og ríki muni til langs tíma
hagnast vegna betri skuldastöðu heim-
ilanna.
Því er nú haldið fram af hálfu and-
stæðinga ríkisstjórnarinnar að þeir
tekjuhæstu og eignamestu muni hagn-
ast mest á aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Því fer fjarri. Hið sanna er að helming-
ur skuldaniðurfellingarinnar gagnast
fólki með heimilistekjur undir sex
milljónum króna á ári eins og til dæmis
tveimur ASÍ-félögum sem halda heimili
saman. 60 prósent upphæðarinnar koma
í hlut fólks með heimilistekjur undir
átta milljónum á ári, svo sem eins og
tveimur kennurum eða tveimur BSRB-
félögum. 80 prósent upphæðarinnar
renna til fjölskyldna sem skulda meira
en helming í íbúðarhúsnæði sínu. Með-
alfjárhæð niðurfærslu á hvert heimili
er rúmlega 1,1 milljón krónur og tæp-
lega helmingur heimila fær niðurfærslu
á bilinu hálf til ein milljón krónur.
Þessir hópar, ASÍ-félagar með meðal-
laun og BSRB/BHR-fólk með meðallaun
þeirra samtaka, sem getið er um hér að
framan, eru samkvæmt grein formanns
Samfylkingarinnar í Fréttablaðinu sl.
mánudag ríka fólkið á Íslandi. Sú skil-
greining kemur kannski ekki svo mikið
á óvart þegar þess er gætt að ríkis-
stjórn sú sem formaðurinn sat í hífði
láglaunafólk upp í milliskattþrep meðan
hún sat að völdum. Þá ráðstöfun hefur
núverandi ríkisstjórn þegar leiðrétt
og hækkað tekjumark þeirra sem eru í
neðsta skattþrepi.
Ríkisstjórnin er þannig alls ósam-
mála formanni Samfylkingarinnar
um að þessir hópar myndi hóp ríkra
Íslendinga. Skattaráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar munu skila fjölskyldunum
í landinu 5 milljörðum króna í auknum
ráðstöfunartekjum. Þannig lýsir núver-
andi ríkisstjórn yfir eindregnum stuðn-
ingi við heimilin í landinu og baráttu
þeirra fyrir bættum lífskjörum.
Ríka fólkið hans Árna Páls
FJÁRMÁL
Þorsteinn
Sæmundsson
þingmaður Fram-
sóknarfl okksins
Sex flokka kona
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður
Fjölskylduhjálpar Íslands, situr í 22.
sæti á lista Framsóknar og flug-
vallarvina í Reykjavík fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar. Þar með
er Framsóknarframboðið orðið það
sjötta sem Ásgerður Jóna haslar sér
völl í svo vitað sé. Hún hefur áður
gegnt embætti varaformanns Frjáls-
lynda flokksins, boðið sig fram með
Flokki heimilanna, setið í stjórn
Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, setið í stjórn Samstöðu
og skipað annað sætið á lista
Nýs afls fyrir Alþingiskosn-
ingarnar árið 2003. Ásgerður
er sannarlega víðförul kona
og því við hæfi að vitna
í Hávamál. Vits er þörf
þeim er víða ratar.
Beggja vegna borðsins
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
oddviti Framsóknarflokksins, segir að
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra hafi verið beggja vegna
borðsins þegar hún undirritaði samn-
ing um flugvöllinn í Vatnsmýri fyrir
hönd ríkisins. Með samkomulaginu
hafi hún verið að leggja blessun sína
yfir gjörðir sem hún fylgdi eftir meðan
hún sat í stóli borgarstjóra.
Á lista Framsóknar og flugvallarvina
er líka fólk sem sæti beggja vegna
borðsins ef breytingar yrðu gerðar
á flugvallarmálum á komandi kjör-
tímabili. Þannig er nefnilega mál
með vexti að frambjóðendur
ofarlega á listanum hafa beina fjár-
hagslega hagsmuni af
því að flugvöllurinn
fari hvergi.
Þurfa ekki á aurnum að halda
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur vakið mikla
athygli fyrir sérálit sitt á skuldaniður-
fellingarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Það þarf engum að koma á óvart
sem fylgst hefur með ferli Péturs í
pólitík að hann fer sínar eigin leiðir
og hefur oft reynst formönnum
sínum óþægur ljár í þúfu. Pétur
segir í áliti sínu að verið sé að gefa
fólki fé sem ekki þurfi á peningnum
að halda og hefur þar líklega rétt
fyrir sér en sýnt hefur
verið fram á að 400
stóreignamenn eigi rétt
á skuldaniðurfellingu.
snaeros@frettabladid.isÓ
lafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í gær
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Þetta var í níunda
sinn sem verðlaunin eru afhent. Athöfnin er alltaf
sérstakt ánægjuefni, enda er verðlaunaafhendingunni
ætlað að beina athyglinni að góðu og fórnfúsu starfi í
þágu samfélags okkar, starfi sem oft fer ekki hátt og er jafnvel
stundað af sjálfboðaliðum utan venjulegs vinnutíma og utan kast-
ljóss fjölmiðlanna.
Sem einn útbreiddasti fjölmiðill landsins lítur Fréttablaðið á það
sem hluta af sinni samfélagslegu skyldu að hampa þessum góðu
verkum og verðlauna þau ekki eingöngu, heldur fjalla um þau í
framhaldinu.
Við valið á verðlaunahöfum
nýtur blaðið liðsinnis lesenda
sinna. Ferlið hefur verið með
sama hætti í níu ár; auglýst er
eftir tilnefningum í byrjun árs og
dómnefnd velur svo úr ábending-
unum sem berast á netinu eða í
pósti. Að þessu sinni bárust hátt
á fjórða hundrað tilnefningar frá lesendum.
Í ár hlýtur Klúbburinn Geysir aðalverðlaun Samfélagsverð-
launanna, 1,2 milljónir króna. Klúbburinn á fimmtán ára starfs-
afmæli í haust og hefur á starfstíma sínum hjálpað fjölda fólks að
fóta sig í lífinu eftir geðræn veikindi. Í tilnefningum frá lesendum
kom fram að sumir þakka Geysi hreinlega líf sitt – þar er unnið
merkilegt og fórnfúst starf, sem full ástæða er til að styrkja og
vekja athygli á.
Hljómsveitin Pollapönk, sem gerði garðinn frægan í Kaup-
mannahöfn um síðustu helgi, fékk Samfélagsverðlaunin í flokkn-
um gegn fordómum. Pollapönkararnir hafa árum saman lagt sitt
af mörkum til að bæta samfélagið með tónlistarflutningi sínum
og textasmíðum sem höfða ekki sízt til yngri kynslóðarinnar. Nú
gafst þeim einstakt tækifæri til að koma sínum jákvæða boðskap
á framfæri við hundruð milljóna Evrópubúa og var vel við hæfi að
samfagna hljómsveitinni við heimkomuna eftir góða frammistöðu í
Eurovision-keppninni.
Í flokknum frá kynslóð til kynslóðar fengu Móðurmál, samtök
um tvítyngi, Samfélagsverðlaunin. Þau hafa í tuttugu ár staðið
að kennslu þar sem börnum á ólíkum aldri er hjálpað að viðhalda
móðurmáli sínu. Bráðlega verða kennd 22 tungumál hjá samtök-
unum og starf þeirra verður æ mikilvægara í sífellt fjölbreytilegra
samfélagi.
Hvunndagshetja ársins er Sigurður Hallvarðsson, sem hefur
þrátt fyrir erfið veikindi safnað háum fjárhæðum til góðgerða-
mála. Í fyrra gekk hann áheitagöngu frá Hveragerði til Reykja-
víkur til að safna fyrir Ljósið og fyrir stuttu notaði hann tímann
í hvíldarinnlögn á líknardeild til að safna fyrir langveik börn í
Rjóðrinu.
Síðast en ekki sízt hlaut Jón Stefánsson, organisti og kórstjóri í
Langholtskirkju, heiðursverðlaun Samfélagsverðlaunanna. Hann
fagnar á árinu 50 ára starfsafmæli og getur litið yfir farinn veg
með stolti, búinn að ala upp margar kynslóðir tónlistarfólks í ótal
kórum og hefur sett mark sitt rækilega á íslenzkt tónlistarlíf.
Hér með er verðlaunahöfunum og öllum þeim sem jafnframt
voru tilnefnd til Samfélagsverðlaunanna óskað innilega til
hamingju. Þau starfa á ólíkum sviðum samfélagsins en hafa sýnt
markvert frumkvæði og eru öðrum góð fyrirmynd.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins afhent í níunda sinn:
Verðlaun fyrir fórn-
fýsi og frumkvæði
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is