Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 59
MIÐVIKUDAGUR 14. maí 2014 | SPORT | 31
FÓTBOLTI Þrjár umferðir eru að
baki í Pepsi-deild karla og helm-
ingur leikjanna átján hefur farið
fram á gervigrasvöllum.
Þetta er vissulega mjög óvenju-
legt ástand og skemmtanagildið er
ekki eins mikið ef marka má töl-
fræðina. Það er nefnilega athyglis-
vert að mun færri mörk eru skor-
uð í gervigrasleikjunum en í þeim
leikjum sem hafa verið spilaðir á
náttúrulegu grasi.
Leikmenn hafa skorað 26 mörk í
níu grasleikjum, eða 2,9 að meðal-
tali í leik, en mörkin hafa aðeins
verið 15 í gervigrasleikjunum níu,
sem gerir bara 1,7 mörk að meðal-
tali.
Þarna munar ellefu mörkum í
jafnmörgum leikjum og þar með
meira en einu marki að meðaltali
í leik. Í fimm leikjum hefur verið
skorað undir tveimur mörkum og
þeir hafa allir farið fram á gervi-
grasi, þar á meðal eina marka-
lausa jafnteflið til þessa í sumar.
Þriðja umferðin var ekki að
hjálpa gervigrasinu í þessari
tölfræðiúttekt enda voru aðeins
skoruð samtals tvö mörk í þremur
gervigrasleikjum í gær og annað
þeirra kom úr vítaspyrnu.
Það voru skoruð fimmtán færri
mörk í fyrstu þremur umferðunum
í ár en í fyrra og leikmenn deild-
arinnar eru búnir að setja nýtt
met í markaleysi í fyrstu þremur
umferðunum í tólf liða deild.
Það hafa öll lið nema eitt spil-
að á gervigrasi í þessum þrem-
ur fyrstu umferðunum en aðeins
nýliðar Fjölnis hafa fengið alla
leiki á grasi. KR og Fram hafa á
móti spilað alla þrjá leiki sína á
gervigrasi, þar af Framliðið alla
leikina á gervigrasinu í Laugardal.
Eins og staðan er núna fer eng-
inn leikur fram á grasi í næstu
umferð um næstu helgi en það
gæti breyst snögglega eins og í
aðdraganda síðustu umferða í
Pepsi-deildinni. - óój
Miklu minna af mörkum í gervigrasleikjunum
Níu af átján leikjum Pepsi-deildar karla til þessa hafa farið fram á gervigrasi og tölurnar segja sína sögu.
ALLIR Á GERVIGRASI Arnþór Ari
Atlason og félagar í Fram hafa
spilað alla þrjá leiki sína í Pepsi-
deildinni í sumar á gervigrasinu í
Laugardal. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Undirlagið skiptir
miklu máli í Pepsi
Hér fyrir neðan er samanburður á marka-
tölfræði í fyrstu þremur umferðum Pepsi-
deildar karla í fótbolta.
LEIKIR Á GRASI
9 leikir, 810 mínútur 26 mörk (2,89 í leik)
Mark á 31 mínútu fresti
LEIKIR Á GERVIGRASI
9 leikir, 810 mínútur 15 mörk (1,67 í leik)
Mark á 54 mínútna fresti
GÓÐ UMFERÐ FYRIR ...
➜ Jóhannes Karl Guðjónsson,
Fram
Framarar unnu sinn fyrsta sigur í
deildinni með marki úr vítaspyrnu
frá Jóa Kalla. Jóhannes átti fínan
leik en gerði það sem skipti máli og
skoraði úr vítaspyrnunni. Það var létt
yfir Safamýrarpiltum í leikslok enda
þurgu fargi af mönnum létt.
Heimi Guðjónsson, FH
Heimi tókst loks að vinna KR aftur í
deildinni og hafði betur gegn góðvini
sínum úr ‚69-árgangi KR, Rúnari
Kristinssyni. KR var fyrir leikinn
í gærkvöldi búið að vinna fjóra
leiki í röð gegn FH í deildinni. Vel
uppsettur leikur hjá Heimi sem vann
sanngjarnan sigur
með FH-liðið.
Lögregluna
Lögreglan á höfuð-
borgar-svæðinu var-
aði vallargesti
við því í gær
að hún yrði
á vaktinni
og myndi
sekta þá
sem legðu
ólöglega.
Vallargestir á
Samsung-vell-
inum fóru illa
út úr rassíu
lögreglunnar
sem skilaði
miklum nettó-
hagnaði eftir
gærkvöldið.
Keflavík 3 3 0 0 6-1 9
Fjölnir 3 2 1 0 6-2 7
FH 3 2 1 0 5-1 7
Stjarnan 3 2 1 0 3-1 7
Fram 3 1 1 1 3-3 4
Valur 3 1 1 1 3-3 4
Víkingur R. 3 1 1 1 2-4 4
KR 3 1 0 2 3-4 3
Fylkir 3 1 0 2 3-5 3
ÍBV 3 0 1 2 3-6 1
Breiðablik 3 0 1 2 2-5 1
Þór 3 0 0 3 2-6 0
NÆSTU LEIKIR
Sunnudagur 18. maí: 17.00 FH - ÍBV, Þór
- Stjarnan, 19.15 Keflavík - KR, Breiðablik -
Fjölnir. Mánudagur 19. maí: 19.15 Víkingur
R. - Fylkir, 20.00 Valur - Fram.
MARKAHÆSTIR
Hörður Sveinsson, Keflavík 2
Elías Már Ómarsson, Keflavík 2
Ólafur Karl Finsen, Stjörnunni 2
Kristján Gauti Emilsson, FH 2
Ármann Pétur Ævarsson, Þór 2
Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni 2
STAÐA
MÁLA
Velkomin í Háskólann á Bifröst
– hvar sem þú ert!
Öflugt meistaranám
Háskólinn á Bifröst býður upp á spennandi meistaranám
í fjarnámi þar sem áhersla er lögð á frumkvæði nemenda
og möguleika þeirra til að takast á við áskoranir framtíðar.
Háskólinn á Bifröst hefur áralanga reynslu í háskóla-
kennslu í fjarnámi sem gefið hefur góða raun. Markmið
skólans er að mennta samfélagslega ábyrga leiðtoga fyrir
fjölbreytt atvinnulíf og samfélag.
• Alþjóðaviðskipti – MS / MIB
• Forysta og stjórnun – MS / MLM
• Alþjóðleg stjórnmálahagfræði – MA
• Menningarstjórnun – MA
www.nam.bifrost.is
Umsóknarfrestur rennur út 15. maí
Meistaranám í fjarnámi: