Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 14. maí 2014 | SKOÐUN | 17
Það er sjálfsagður og lýð-
ræðislegur réttur hvers
manns að taka þátt í
stjórnmálum. Rétturinn
til að bjóða fram til sveitar-
stjórnarkosninga er varinn
með margvíslegum hætti.
Þær hindranir sem fram-
bjóðendur þurfa að yfir-
stíga eru ekki miklar. Í
Kópavogi þurfa framboð
að afla sér að lágmarki 80
undirskrifta frá kjósendum
sem gefa þar með framboð-
inu tækifæri til að nýta sér
þennan dýrmæta lýðræðisrétt sinn;
að taka þátt í stjórn bæjarfélags-
ins. Þessari undirskrift fylgja
engar kvaðir að nokkru leyti. Sjálf
atkvæðagreiðslan á kjördag er enn
sem komið er leynileg, sem betur
fer. Engu að síður eru fjölmargir
sem vilja ekki tengjast stjórnmála-
flokkum á nokkurn hátt. Sjá þá sem
gamaldags, spillta og vinna fyrst
og fremst að sérhagsmunum fárra
í stað þess að hugsa um hag sam-
félagsins.
Undanfarna daga hafa frambjóð-
endur Næstbestaflokksins í Kópa-
vogi safnað um 120 undirskriftum
frá kjósendum sem staðfesta þar
með að þeir styðji okkur til fram-
boðs. Við hétum þessu fólki trún-
aði, að þessar upplýsingar kæmu
Persónunjósnir sjálfstæðismanna í Kópavogi
Samkvæmt fréttum í fjölmiðlunum
þann 8. maí og 12. maí hafa tveir
hælisleitendur sem báðir eru
makar Íslendinga fengið tilkynn-
ingu um að þeim sé vísað úr landi
á grundvelli Dyflinnarreglugerð-
arinnar og hefur
öðrum þeirra
þega r ver ið
vísað úr landi.
„Hjón eru í
hvívetna jafn-
rétthá í hjúskap
sínum og bera
jafnar skyldur
hvort gagnvart
öðru og börnum
sínum. Þeim ber
að sýna hvort
öðru trúmennsku, styðja hvort
annað og gæta sameiginlegra
hagsmuna heimilisins og fjöl-
skyldu.“ (hjúskaparlög 2.gr.)
Þetta ákvæði bendir á hvernig
hjúskaparlögin skilja hugtakið hjú-
skapur. Hjúskapur er ekki brand-
ari eða smábiti af köku. Í hjúskap
axlar fólk ábyrgð og ber skyldur
sem hjón. En það upplifir líka gleði
hjónabandsins og blessun.
Réttindi til hjúskapar eru því
mikilvægur þáttur í lífi okkar
og ekki síst að njóta hjónalífsins
í raun. Við getum rifjað upp hve
mikil umræða átti sér stað í þjóð-
félaginu þegar um hjúskap sam-
kynhneigðs fólks var að ræða. Og
það á að vera það þegar málefnið
er svo mikilvægt.
Hver er rökstuðningurinn?
En eru hjúskaparréttindi og hjóna-
líf hælisleitenda þá öðruvísi en
hjónaband okkar „venjulega“
fólksins?
Nú virðast yfirvöld telja að staða
lögverndaðs hjúskapar sé lægri en
staða Dyflinnarreglugerðarinnar
þegar hælisleitandi er aðili máls-
ins og hjúskaparréttindi þeirra séu
næstum einskis virði og eigi ekki
skilið sérstaka athugun.
Hver er rökstuðningur þess hjá
yfirvöldunum? Hver er skilningur
þeirra á samræmi milli ákvörð unar
um brottvísun maka Íslendinga og
annarra borgaralegra réttinda sem
allir á Íslandi eiga að njóta?
Brottvísun hælisleitanda sem
jafnframt er maki Íslendings er
ekki jafneinfalt mál og vísan í
„Dyflinnarreglugerð“ eða annar
smávandi í hælisumsókn getur
réttlætt, að mínu mati.
Ég óska að yfirvöld sýni fram
á eigin rökstuðning um málið og
biðji þjóðfélagið einnig um sitt álit
áður en brottvísun af þessu tagi
verður framkvæmd aftur.
Hjúskapur
hælisleitenda
HÆLIS-
LEITENDUR
Toshiki Toma
prestur innfl ytjenda
hvergi fram nema hjá kjör-
stjórn sem myndi síðan
eyða þeim að kosningum
loknum. Að engin skuld-
binding fælist í undir-
skriftinni og þær yrðu
hvergi birtar opinberlega.
Að framboð okkar tengdist
ekki neinum af starfandi
stjórnmálaflokkum. Að
frambjóðendur Næstbesta-
flokksins hefðu engin bein
hagsmunatengsl við einstök
fyrirtæki, stofnanir eða
félagasamtök í bænum. Að
við vildum vinna fyrir alla í Kópa-
vogi, en ekki fyrir fáa útvalda.
Fyrirgreiðslupólitík
Nú hefur það fáheyrða gerst, að
umboðsmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi, Bragi Michaels-
son, óskar eftir því að fá afhenta
meðmælendalista allra framboða
til kosninganna í vor. Til hvers
veit ég ekki. Eina skýr ingin sem
hann gaf var sú að þetta hefði
„alltaf verið gert“, sem er auð-
vitað firra. Stjórnmála flokkar
eru löngu hættir þessum ósið
sem er ekkert annað en lágkúru-
legar persónunjósnir. Það er
nefnilega svo að sumir menn og
flokkar telja sig „eiga“ atkvæði
kjósenda í bænum og vilja fá að
vita hverjir ætli að svíkjast undan
merkjum. Þetta eru sömu menn-
irnir og telja sig eiga Kópavog,
að þeir geti gengið í sjóði bæjar-
ins, fengið verkefni, lóðir, djobb
og fyrirgreiðslu eins og þeim
hentar. Þetta er „gamli tíminn“
sem mætir nútímanum. Fyrir-
greiðslupólitíkin sem abbast upp
á heilbrigða skynsemi.
Umboðsmenn Næstbestaflokks-
ins hafna því alfarið að Sjálf-
stæðis flokkurinn fái aðgang að
meðmælendalistum og upplýsi-
ngar um nöfn þeirra 120 íbúa sem
þar er að finna. Byggingaverktak-
inn og skógræktarfrömuðurinn
Bragi Michaelsson verður að finna
þörf sinni til persónunjósna annan
farveg. Hverjir styðja Næstbesta-
flokkinn til framboðs í kosning-
unum í vor er trúnaðarmál milli
framboðsins og kjörstjórnar Kópa-
vogs og verður það áfram. Það
kemur hvorki Sjálfstæðisflokkn-
um né Braga Michaelssyni nokk-
urn skapaðan hlut við.
STJÓRNMÁL
Hjálmar
Hjálmarsson
talsmaður Næst-
bestafl okksins í
Kópavogi
➜ Þetta er „gamli tíminn“
sem mætir nútímanum.
Fyrirgreiðslupólitíkin sem
abbast upp á heilbrigða
skynsemi.
www.kaffitar.is