Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGVeiði MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Atli Bergmann, 512 5457, atli.bergmann@365.is
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Temple Fork Outfitters-stang-irnar (TFO) þykja með þeim betri í dag, sérstaklega þegar
miðað er við verð. Hinn frægi flugu-
veiðimaður Lefty Kreh hefur komið
að hönnun fluguveiðistanga TFO.
Hann hefur útskýrt þá hugmynda-
fræði sem býr að baki því að hanna
góða fluguveiðistöng. „Við hjá TFO
einbeitum okkur að þremur hugtök-
um þegar við hönnum fluguveiði-
stangir. Þau eru nákvæmni, kast-
lengd og lyftikraftur,“ lýsti Kreh.
Hugtakið nákvæmni endurspegl-
ar með hvaða hætti línan, taumurinn
og flugan leggjast á yfirborð vatnsins.
„Tilfinningin fyrir nákvæmni skiptir
kannski litlu þegar rennt er fyrir stór-
fiski en hún getur skipt sköpum í sil-
ungsveiði í vatni eða straumá.“
Kastlengd er afar mikilvæg í
fluguveiði en hugtakið er notað yfir
það hve langt veiðimaðurinn kastar
línunni út með stönginni. „Í sumum
tilfellum skiptir hún ekki máli en í
öðrum skilur hún á milli vel heppn-
aðrar veiði og engrar veiði.“
Lyftikraftur segir til um hvernig
stöngin vinnur og hvort hún ræður
við þungan fisk í miklum straumi og
í erfiðum aðstæðum. „Auðvitað getur
engin ein stöng brugðist við öllum
þessum hugtökum fullkomlega en
TFO-stangirnar eru hannaðar með
það að leiðarljósi að komast sem næst
því,“ segir Kreh.
TFO-stöngin fyrir línu númer átta
lenti í þriðja sæti yfir bestu stangir í
sama flokki árið 2014 hjá Yellowstone
Angler. Að sama skapi var stöngin
valin „Best buy“ eða bestu kaupin.
TFO-stangirnar eru til sölu í Úti-
líf Glæsibæ. Þær eru á 20 prósenta
kynningarafslætti út júní og kosta
þá 59.990 krónur.
Ein skynsamlegustu
stangakaupin í dag
Temple Fork Outfitters-fluguveiðistangirnar eru hannaðar með þrjú hugtök að
leiðarljósi; nákvæmni, kastlengd og lyftikraft. Stangirnar eru á kynningar-
afslætti í Útilífi út júní.
Birkir Mar Harðarson, starfsmaður Útilífs Glæsibæ, með eina af hinum frábæru TFO-veiðistöngum. MYND/STEFÁN
Þessi ævintýralegi afmælis-dagur mun seint líða mér úr minni,“ segir Trausti sem kom
auga á stórlaxinn í Hólmahyl.
Veiði var með eindæmum góð
þetta sumarið og þeir Karl Tómas-
son, frændi Trausta, fóru á veiði-
stað neðan við þjóðveginn hjá Stað-
arskála.
„Þar aðeins neðar er sjóbleikju-
svæðið Dumbafljót og á meðan
Kalli frændi renndi fyrir lax ákvað
ég að sjá hvort sjóbleikjan gæfi sig
á létta fimmu, sem er silungastöng.
Þegar það reyndist ekki vera gekk ég
aftur til Kalla og stóð ofan við hyl-
inn þegar ég sá laxinn,“ segir Trausti,
sem kallaði strax til Kalla frænda
síns að freista þess að ná laxinum.
„Kalli reyndist of langt frá og sagði
mér að kasta í staðinn. Ég gerði það
af rælni og í vantrú á að laxinn tæki
hjá mér en í öðru kasti beit hann á.“
Þegar þarna var komið var klukk-
an hálf tólf á hádegi en eins og í
öllum laxveiðiám er gert hlé á veið-
inni frá eitt til fjögur.
„Ég gerði mér strax grein fyrir að
laxinn væri mjög stór enda teymdi
hann mig fljótt yfir ána og settist
pikkfastur í hylinn. Með litlu sil-
ungastönginni var virkileg raun
að takast á við laxinn og til að gera
langa sögu stutta gaf laxinn sig ekki
fyrr en eftir ríflega þriggja tíma stöð-
ugan slag.“
Lofaði laxinum lífgjöf
Trausti var að niðurlotum kominn
eftir langa og stranga baráttu með
silungastöngina að vopni.
„Laxinn var ótrúlega sprækur
þegar hann kom á land. Hann var
nýrunninn úr sjó, grálúsugur og
feykilega sterkur. Því var baráttu-
þrekið mikið og hann ætlaði sér ekki
að gefast upp. Eftir tuttugu mínútna
slag var ég farinn að tala við fiskinn
og lofaði að ég myndi sleppa honum
í ána á ný.“
Trausti stóð við loforðið við lax-
inn sem tók agnarsmáa Green Brah-
an-flugu og mældist 90 sentimetra
langur.
„Ég hafði miklar áhyggjur þegar
laxinn kom á land því þetta var allt-
of löng barátta fyrir fiskinn. Það tók
mig fáeinar mínútur að koma lífi í
fiskinn aftur og eftir örskotsstund
á bakkanum dýfði ég honum aftur í
ána og klappaði honum og ruggaði.
Loks tók hann við sér og fór beina
leið aftur í hylinn.“
Trausti segir tengsl verða á milli
veiðimanns og fisks þegar átökin
dragast svona á langinn.
„Ég fékk því mikið út úr því að
gefa laxinum líf og fékk gæsahúð
þegar ég sleppti honum aftur. Ég
óttaðist mjög að hann hefði þetta
ekki af því það er erfitt fyrir fisk að
berjast fyrir lífi sínu í þrjár klukku-
stundir. Vitaskuld á maður að vera
með útbúnað sem hæfir hverri á en
aðstæður voru þannig að allt gerð-
ist þetta óvart. Með þyngri línu og
stærri stöng hefði veiðin tekið mun
styttri tíma.“
Langar að slást við stærri fisk
Eftir laxveiði lífs síns sofnaði
Trausti sæll og úrvinda í snotru
veiðihúsi austan við Hrútafjarð-
ará.
„Laxinn var aldrei freistandi
í afmælismat því laxar af þessari
stærðargráðu eru ekkert sérstak-
lega góðir til átu. Það er líka regla í
Hrútafjarðará að sleppa þarf öllum
fiskum sem mælast yfir 70 senti-
metrum.“
Afmælisdagur Trausta varð
enn sætari þegar bræðurnir Svav-
ar og Björgólfur Hávarðssynir gáfu
honum bók sem þeir skrifuðu í
sameiningu um laxinn og mynd-
skreyttu með myndum úr veiði-
ferðum þeirra félaga, innbundna
og gefna út í fjórum eintökum.
„Allt var þetta mikið ævintýri
og fjöldi fólks sem fylgdist með af
árbakkanum. Þrátt fyrir stórfeng-
lega lífsreynslu vildi ég þó alls ekki
lenda í þessu aftur með svona létta
stöng en ég slægi þó ekki hendinni
á móti því að slást við 100 senti-
metra lax þegar fram líða stundir.“
Fékk þann stærsta á afmælisdaginn
Fertugasti afmælisdagur blaðamannsins Trausta Hafliðasonar rann upp bjartur og fagur við Hrútafjarðará 5. júlí í fyrra. Þangað fer
hann árlega í lax dagana 4. til 6. júlí. Á stórafmælinu í fyrrasumar háði hann þriggja tíma orrustu við sinn mesta stórlax hingað til.
Til að setja punktinn yfir i-ið flæktist línan
og þurfti að taka hjólið af. Þarna reyna
Björgólfur og Njörður Árnason að leysa úr
flækjunni, sem tókst.
Baráttan við laxinn tók á enda heilir 90
sentimetrar að lengd.
Trausti með þann stóra í fanginu, báðir orðnir úrvinda eftir ríflega þriggja tíma slag.
MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
Frístundaveiði hefur notið mikilla vinsælda víða um land. Ferða-
menn, jafnt innlendir sem útlendir, hafa sótt í þetta sport í aukn-
um mæli. Frístundaveiðar eru
leyfisskyldar og eingöngu er heim-
ilt að stunda þær með sjóstöng og
handfærum. Leyfin eru veitt aðil-
um í ferðaþjónustu. Leyfin eru háð
tilteknum fjölda fiska á dag á hvert
handfæri eða sjóstöng án þess
að aflinn reiknist til aflamarks.
Aflann má ekki selja.
Frístundaveiðar er vaxandi
þáttur í ferðaþjónustunni en þær
hófust á Vestfjörðum árið 2006.
Veiðarnar hafa gefið milljónir í
ríkis sjóð. Heimilt er að stunda
fiskveiðar í frístundum til eigin
neyslu.
Frístundaveiði vinsæl
Sjóstangaveiðimenn sigla frá Suður-
eyri.