Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 48
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um nýtt og breytt
deiliskipulag í Reykjavík
Efstaleiti 3-9
Tillaga að að nýju deiliskipulagi við Efstaleiti 3-9.
Helstu forsendur eru m.a. að uppfæra og skerpa
skilmála sem varða byggingarreiti, nýtingarhlutfall
og bílastæðakröfur á þeim fjórum lóðum sem
deiliskipulagið nær yfir. Einnig að gefa möguleika
á auknu byggingarmagni og þéttari götumynd að
Listabraut og bílastæðum fækkað með áherslu á
vistvænni samgöngumáta.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Borgartún 28
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kirkjutúns
vegna lóðarinnar nr. 28 við Borgartún. Í breytingunni
felst að fyrirhuguð bygging á lóð er breytt úr
þjónustubyggingu í íbúða- og þjónustubyggingu,
hæðum er fjölgað um eina en þó mun heildarhæð
fyrirhugaðrar byggingar ekki aukast frá því sem
áður var skipulagt. Fyrirkomulagi bílastæða er
breytt, þeim er raðað upp með nýjum hætti.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Kjalarnes, Saltvík
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar
Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst
m.a. stækkun á byggingarreit og breyting á
nýtingarhlutfalli sem yrði allt að 0,30. Hæð bygginga
verða ekki heimilaðar hærri en nú er.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Sólvallagata 67
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarskóla
vegna lóðarinnar nr. 67 við Sólvallagötu. Í
breytingunni felst m.a. að gerður er byggingarreitur
fyrir fjórar færanlegar kennslustofur, byggingareitur
viðbyggingar á þriðju hæð er rýmkaður sem nemur
stigahúsi og hækkaður um 40cm.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Frostaskjól 2
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis
KR, Frostaskjóls 2-6 vegna lóðarinnar nr. 2
við Frostaskjól. Í breytingunni felst stækkun á
byggingarreit til að hægt verði að bæta við tveimur
færanlegum stofum á bílastæði íþróttahúss KR á
norðvesturhluta lóðar
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkur-
borgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga
kl. 8:20 – 16:15 frá 14. maí 2014 til og með 25. júní
2014. Einnig má sjá tillögurnar á vefsíðunni, www.
reykjavik.is, skipulag í kynningu Eru þeir sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við
tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa
eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en
25. júní 2014. Vinsamlegast notið uppgefið netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 14. maí 2014
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar Búmanna
Fundurinn verður haldinn á skrifstofu félagsins
að Kletthálsi 1, 2 hæð.
Fundurinn verður fimmtudaginn 22. maí 2014 og hefst kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Félagsmenn og
aðrir áhugasamir Reykvíkingar eru velkomnir á fundinn.
Stjórnin.
Aðalfundur
Kópavogsdeildar Búmanna
Fundurinn verður haldinn á skrifstofu félagsins að Kletthálsi 1,
2 hæð. Fundurinn verður miðvikudaginn 21. maí 2014 og hefst
kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Félagsmenn og
aðrir áhugasamir Kópavogsbúar eru velkomnir á fundinn.
Stjórnin.
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar
hjá Akraneskaupstað:
• Störf kennara í Grundaskóla
• Deildarstjórastarf á Leikskólanum Akraseli
• Starf aðstoðarmatráðs á Leikskólanum Teigaseli
• Starf deildarstjóra á Leikskólanum Teigaseli
• Störf leiðbeinenda á Leikskólanum Teigaseli
Nánari upplýsingar um fyrrgreind störf er að finna á vef
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is.
Hægt er að skila umsóknum rafrænt eða í þjónustuver
á 1. hæð, Stillholti 16-18.
Einstaklega glæsilegt 233,4 m2 einbýlishús á þremur hæðum með bílskúr við Sólvallagötu 63 í Reykjavík.
Forstofa, hol, tvær stofur, borðstofa og eldhús á aðalhæð. Hol, stórt hjónaherbergi, tvö barnaherbergi og
baðherbergi á efstu hæð. Sérinngangur, hol, tvö herbergi, stórt þvottahús, salerni og geymsla á neðstu hæð.
Húsið hefur fengið gott viðhald og verið mikið endurbætt á vandaðan hátt á undanförnum árum.
Verð kr. 110.000.000.
Allar nánari upplýsingar gefa
Einar Páll Kjærnested, s. 899-5159 og Kjartan Hallgeirsson, s. 824-9093.
Ein ar Páll Kjær ne sted,
lög gilt ur fast eigna sali
Sverrir Kristinsson, lög gilt ur fast eigna sali
Sólvallagata 63 - 101 Reykjavík
Einstaklega glæsilegt 233,4 m2 einbýlishús á þremur hæðum með bílskúr við Sólvallagötu 63 í Reykjavík.
Forstofa, hol, tvær stofur, borðstofa og eldhús á aðalhæð. Hol, stórt hjónaherbergi, tvö barnaherbergi og
baðherbergi á efstu hæð. Sérinngangur, hol, tvö herbergi, stórt þvottahús, salerni og geymsla á neðstu hæð.
Húsið hefur fengið gott viðhald og verið mikið endurbætt á vandaðan hátt á undanförnum árum.
Verð kr. 90.000.000.
Allar nánari u r gefa
Einar Páll Kjærn sted, s. 899-5159 tan Hallgeirs on, s. 824-9093.
Aflagrandi 40
3ja herbergja íbúð með yfirbyggðum svölum
Falleg 80,1 fm. íbúð í þessu eftirsótta fjölbýlishúsi í Vesturbæ
Reykjavíkur. Yfirbyggðar suðursvalir með glæsilegu útsýni.
Rúmgóð stofa með útgangi á svalir til suðurs. Eldhús með
fallegri ljósri innréttingu. Baðherbergi með þvottaaðstöðu,
flísalagt í gólf og veggi. Eikarparket á gólfum. Geymsla innan
íbúðar auk sér geymslu í kjallara. Tvær lyftur. Húsvörður.
Verð 28,4 millj. Íbúð merkt 0501. Verið velkomin.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG FRÁ KL. 17.30-18.00
OPI
Ð H
ÚS ELDRIBORGARAR
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 42,5 millj.
Ásakór 152 0 3 Kópavogur
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
OPIÐ HÚS
Miðvikud. 14. maí 17:30 - 18:00
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Glæsileg íbúð samtals 157,3 fm
Tvennar svalir, suður og vestur.
Stæði í bílakjallara
Glæsilegt opið eldhús
Leikskóli og grunnskóli í göngufæri.
fasteignir
tilkynningar
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Heil húseign við Úlfarsbraut.
Að innan er eignin fokheld
Að utan er búið að einangra og
klæða með álplötum.
Eignin telur 7 íbúðir, sex stæði í
bílageymslu og sameign.
Raðhúsalengja með fjórum 231 fm
raðhúsum við Drekavelli í Hafnafirði
Húsin eru fokheld að innan og
steinuð að utan.
Grófjöfnuð lóð.
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar S. Jónsson, Sölufulltrúi
gunnar@miklaborg.is sími: 899 5856
DrekavellirÚlfarsbraut
113 Reykjavík 221 Hafnarfjörður
| 14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR20