Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSINGVeiði MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 20144
Veiði er skemmtileg fjölskylduskemmtun og finnst flestum börnum
gaman að veiða fisk. Í Reykjavík og nágrenni eru góð veiðivötn og getur
verið gaman að skjótast til dæmis eftir vinnu, hvort sem er með alla
fjölskylduna eða veiðimaðurinn einn með sjálfum sér.
Hér eru nokkur vötn þangað sem stutt er að fara til veiða fyrir íbúa höf-
uðborgarsvæðisins.
Elliðavatn
Vinsælasta veiði-
vatn höfuðborgar-
svæðisins og afar
gjöfult. Í vatninu
eru bleikja, urriði,
lax og stöku sjó-
birtingur. Bleikjan
var ríkjandi í vatn-
inu en síðasta ára-
tug hefur urriðinn
sótt í sig veðrið og
er nú að verða algengasta fiskitegundin í vatninu. Veiðitímabilið hefst á
sumardaginn fyrsta ár hvert og lýkur því 15. september. Eingöngu er leyfð
veiði með flugu, maðk og spúni, en í Hólmsá má aðeins veiða á flugu.
Meðalfellsvatn
Lax og sjóbirtingur ganga úr Laxá í Kjós í vatnið. Mest veiðist af smá-
bleikju í Meðalfellsvatni en einnig nokkuð af urriða, sjóbirtingi og laxi.
Þar sem mikið er af smábleikju í vatninu er gaman að fara með börn
þangað að veiða en leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spón.
Vífilsstaðavatn
Vatnið er vinsælt á meðal veiðimanna og þykir mörgum ómissandi að
fara þangað á vorin til að fá fyrstu tökur ársins. Þess má geta að Vífils-
staðavatn er tilvalið til að æfa fluguköst. Í vatninu er einkum urriði og
bleikja. Mest er um smábleikju en einnig veiðist töluvert af stærri fiski.
Fiskurinn úr vatninu er mjög góður matfiskur.
Reynisvatn
Reynisvatn er skemmtilegur staður fyrir fjölskylduna til að veiða á, ekki
síst fyrir byrjendur sem hafa kannski ekki mikla þolinmæði. Um árabil
hefur bæði regnbogasilungi og laxi verið sleppt í vatnið og eru veiðileyfi
seld á staðnum en þau gilda til ársloka 2014.
Kleifarvatn
Eitt af stærstu vötnum landsins og er frægt fyrir stórfisk en þar eru bæði
bleikja og urriði. Veiði er heimil í öllu vatninu og þar má veiða allan sól-
arhringinn á flugu, maðk og spún.
Heimild: veidikortid.is
Veiði í næsta nágrenni
Vífilsstaðavatn er tilvalið til að æfa fluguköstin en vatnið er
vinsælt á meðal veiðimanna. MYND/VILHELM
Það er fátt skemmtilegra en að veiða með fjölskyldunni í fallegri íslenskri náttúru.
Nær allir geta veitt sem gerir veiði
að sérlega skemmtilegri afþreyingu
fyrir unga sem aldna. Margar fjöl-
skyldur hafa stundað veiði í ára-
tugi og þá safnast gjarnan nokkrar
kynslóðir saman við árbakkann þar
sem þeir eldri
kenna þeim
y ng r i rét t u
aðferðirnar.
Ein þeirra stór-
fjölskyldna sem
veitt hafa saman
í áratugi er fjöl-
skylda Maríu Önnu
Clausen en hún og eig-
inmaður hennar, Ólafur
Vigfússon, reka saman versl-
unina Veiðihornið. María segir öll
sumur undirlögð af veiði og þar taka
allir fjölskyldumeðlimir þátt. „Þetta
byrjaði með foreldrum mínum en
þau hófu að veiða á bryggjunni fyrir
vestan þegar þau voru börn. Síðar
fluttu þau til borgarinnar og þá hélt
veiðin áfram í hinum ýmsu vötnum
og ám. Við systkinin erum því alin
upp við veiðar og í öllum útilegum
voru veiðistangir teknar með. Við
veiddum helst silung og stundum
var hann eldaður um kvöldið eða
þá bara tekinn með heim. Sjálf er
ég meira fyrir að veiða lax en sil-
ung þótt öll veiði sé auðvitað mjög
skemmtileg.“
Stöngin alltaf með
Seinna meir þegar María og Ólafur
eignuðust börn voru þau tekin með
í útilegurnar og auðvitað voru veiði-
stangir með í för. „Fyrstu árin ferð-
uðumst við mikið saman, foreldrar
mínir, við hjónin og börnin okkar.
Þá voru þrjár kynslóðir saman við
árbakkann og veiddu. Pabbi hafði
mikla ánægju af því að segja okkur
og strákunum til við veiðarnar og
fékk mikið út úr því ef
börnin veiddu vel.“
María
segir afar
mikilvægt
fyrir börn að
kynnast nátt-
úrunni og að veiðar séu góð leið til
þess. „Börn í dag eru ekki eins mikið
úti í náttúrunni og áður fyrr. Veið-
ar gefa þeim kost á að eiga góðar
stundir með fjölskyldu sinni. Það
skiptir svo miklu máli; að njóta þess
að vera saman úti í náttúrunni.“
Fjörugt sumar
Gott veiðisumar er fram undan hjá
þessari miklu veiðifjölskyldu. Hún
hefur átt sama hollið í Eystri-Rangá
í rúmlega 20 ár þar sem hún veiðir
lax. Auk þess hefur hún veitt mikið
í Stóru-Laxá, Soginu og Norðurá.
María segir stefnuna einnig vera
setta á Vatnsdalsá, auk þess sem
þau hjónin ætli í Hítará. „Ég er líka
meðlimur í kvennahópi sem hefur
veitt saman undanfarin tíu til tólf
ár. Ég fer með þeim í veiði í maí og
svo aftur í ágúst. Svo kíkir maður á
Þingvelli í sumar, enda stutt að fara
og skemmtilegt að veiða þar.“
Hún segir ekki erfitt að kveikja
áhuga barna og unglinga á veiði.
„Ég held að aðalatriðið sé bara að
fara af stað og vera um leið ekk-
ert að pressa of mikið á þau. Börn
þurfa ekki að veiða allan dag-
inn heldur fá að gera þetta á eigin
forsendum. Yfirleitt finnst þeim
gaman að veiða og þá er fínt að
byrja með f lotholt og f lugu eða
f lotholt og maðk, eða bara spún.
Svo er alltaf hægt að leika sér á
bakkanum og finna sér eitthvað
að gera því börn hafa sjaldnast út-
hald í að veiða allan daginn. Það
ýtir oft undir áhuga þeirra ef þau
eiga veiðistöng sjálf. Þeim finnst
gaman að eiga græjurnar og velja
sjálf með hvaða hætti þau kasta
út.“
Njóta þess að vera saman
Mikið veiðisumar er í vændum hjá fjölskyldu Maríu Önnu Clausen. Stangaveiði skipar stóran sess í lífi stórfjölskyldunnar þar sem
þrjár kynslóðir hafa löngum safnast saman við árbakkann. Veiðar eru góð leið til að kynna náttúruna fyrir börnum og unglingum.
Veiðihjónin ásamt sonum sínum þremur
við Norðurá.
Þrjár kynslóðir saman við Þingvallavatn árið 1990. María heldur á syni sínum.
MYND/ÚR EINKASAFNI
María með væna bleikju úr Vatnsdalsánni
árið 2012.
ÚT Á GRANDA
Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940 | Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 9–16.
Bátar
Jaxon slöngubátur 290 cm.
4 manna,3 hólf + uppblásinn
kjölur. Eiginþyngd 45 kg.
Breidd 150 cm. Lengd 290cm.
Burðargeta 510kg.
Þolir allt að 10 hö.mótor, árar,
pumpa, harður botn, 2 bekkir,
kemur í tösku, 2 ára ábyrgð.
CE vottaðir . Fæst einnig
320 cm Verð 249.000 kr
Verð 229.000 kr.
RAFMAGNSMÓTOR
FYLGIR FRÍTT MEÐ
að verðmæti
49.900 kr.
meðan birgðir endast.
Veiðihjól
Snowbee U bátur
Snowbee U bátur,
þriggja hólfa
Fullt verð 27.900 kr
Vortilboð 19.900 kr.
Strandveiðisett
Jaxon 15 feta stöng, 6 legu stórt hjól,
250m af 100 punda ofurlínu, taumar,
sökkur, beitutegja, beita og nælur
fylgja. Fullt verð 43.390 kr .
Tilboð 34.900 kr.
Okkar lang besta strandveiðisett !
Ódýrt byrjenda strandveiðisett
Jaxon 15 feta stöng, 6 legu hjól,
250 metrar af 35 punda línu,
taumar, sökkur og nælur .
Fullt verð 23.800 kr
Tilboð 19.900 kr.
Polaroid veiðigleraugu
Polaroid gleraugu
í miklu úrvali
Verð frá 2.990 kr.
Jaxon Marion er ódýrt en gott
3 legu hjól frá Jaxon fæst í
tveimur stærðum
Verð 3.590 kr
Nýtt strandveiðihjól frá Jaxon.
6 legur, 2 spólur sem taka mis
mikið magn af línu og eru
sér hannaðar til að köstin verði
sem lengst, rústfríar legur.
Tekur um 300 metra af 0.40mm
línu Verð 15.900 kr
Jaxon Dolphin Strandveiðihjól
ódýrasta stóra strandveiðihjólið
okkar. 3 Legur auka spóla.
Tekur 250 metra af 0,40mm línu.
Verð 5.990 kr
Stórt og öflugt strandveiðihjól
með 6 legum og auka spólu.
Fæst í tveimur stærðum 650 og
750 sem tekur um 300 metra af
0.40 línu. Verð 8.950 kr
Flugustangarsett - Diskabremsuhjól - Línur
Flugustangarsett frá Jaxon.
Monolith er nýjasta stöngin
frá Jaxon. Lína 4-5-6-7- eða 8.
Gott diskabremsuhjól,lína
að eigin vali og góður
hólkur .
Fullt verð 38.900 kr
Tilboð 29.900 kr.
Meiri uppl.á veidiportid.is