Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 6
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvers vegna fl úðu þingmenn Pírata
skrifstofur sínar?
2. Hver er nýr formaður Rithöfunda-
sambandsins?
3. Hversu mörg prósent Íslendinga
kaupa oftast pítsu þegar skyndibiti
verður fyrir valinu?
SVÖR:
1. Vegna myglusvepps. 2. Kristín Helga
Gunnarsdóttir. 3. 42,5 prósent.
Svavar Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Sveitarstjórnarkosningar 2014
Reykjavík
www. utkall.is
Í ÞÁGU VÍSINDA
Þær sækja skilagögn til þeirra
sem ákveða að taka þátt.
Umslögin má einnig setja
ófrímerkt í póst.
ANDRÝMI
– NÝR VETTVANGUR ORÐLISTARFÓLKS Í BÓKMENNTABORG
Alþjóðlegt ljóðakvöld með Danielu Seel frá
Þýskalandi, Söruh Brownsberger frá Bandaríkjunum
og Elíasi Knörr frá Galisíu.
Þau munu flytja eigin ljóð og varpa fram spurningunni:
,,Á að flytja ljóð?”
Síðan er orðið frjálst.
TILBOÐ Á BARNUM
SAMKOMUSTAÐUR
ORÐLISTARFÓLKS
14. MAÍ KL. 20-22TJARNARBÍÓ
ODDVITAR Allir sem einn vilja stækka griðasvæði hvala og segja að verkfærið til þess sé þrýstingur og samtal við kollegana í
landsmálunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FERÐAÞJÓNUSTA Stækka ber griða-
svæði hvala á Faxaflóa til að
byggja undir hvalaskoðun sem
þungamiðju í ferðaþjónustu í
Reykjavík, er skoðun oddvita
allra stjórnmálaflokka sem bjóða
fram í Reykjavík fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar. Borgar-
yfirvöld geta beitt þrýstingi til að
ná því markmiði fram.
Þetta kom meðal annars fram
á stefnumóti um framtíð hvala-
skoðunar og ferðaþjónustu við
Reykjavíkurhöfn sem Samtök
ferðaþjónustunnar (SAF) stóðu
fyrir í Hörpu í gær með oddvit-
um flokkanna.
Grímur Sæmundsen, for-
maður SAF, sagði blikur á lofti
vegna árekstra hvalaskoðunar
og hrefnuveiða á Faxaflóa. Veið-
arnar þrengdu verulega að grein-
inni og til þess að ferðaþjónusta
blómstraði við Reykjavíkurhöfn
yrði að færa út griðasvæði hvala.
Hann bað um aðstoð oddvitanna í
þeirri baráttu.
Til að gera langa sögu stutta
ríkir þverpólitísk sátt um forgang
hvalaskoðunar umfram hvalveiðar
á Faxaflóa. Lítils háttar áherslu-
munur er á milli framboðanna en
það var haft á orði á fundinum að
svo eintóna væru oddvitarnir í
málinu að það hefði drepið fund-
inn; í raun segði þetta sig sjálft.
Þeirri spurningu var varpað
fram hvernig borgaryfirvöld gætu
beitt sér í málinu, þar sem valdið
hvíldi hjá Sigurði Inga Jóhanns-
syni sjávarútvegsráðherra.
Oddvitar núverandi meirihluta,
þeir Dagur B. Eggertsson, Sam-
fylkingu, og S. Björn Blöndal,
Bjartri framtíð, urðu til svars
og minntu á að borgaryfirvöld
hefðu reynt með afgerandi hætti
að þrýsta á ráðherra í fyrrasumar
þegar Sigurður Ingi ákvað að fella
úr gildi ákvörðun forvera síns,
Steingríms J. Sigfússonar, um
stærra griðasvæði hvala og færði
það til fyrra og núverandi horfs.
Hér vísa Dagur og S. Björn til
þess að borgarráð Reykjavíkur
óskaði þá eftir rökstuðningi ráðu-
neytisins vegna ákvörðunar um að
minnka griðasvæðið á Faxaflóa.
Kom jafnframt fram að borgar-
yfirvöld þurftu í þrígang að kalla
eftir viðbrögðum ráðuneytisins og
uppskáru fyrir rest að upphafleg
fréttatilkynning um ákvörðunina
var send borgarráði.
svavar@frettabladid.is
Þverpólitísk sátt um
stækkun griðasvæðis
Oddvitar allra framboðanna sem bjóða fram í Reykjavík í komandi borgarstjórnar-
kosningum telja sjálfsagt og eðlilegt að griðasvæði hvala á Faxaflóa verði stækkað.
Borgaryfirvöld hafa þrýst á stjórnvöld vegna málsins en uppskorið tómlæti.
● Á rúmum 20 árum hefur hvalaskoðun vaxið upp í að verða stærsta
afþreyingargrein ferðaþjónustunnar í Reykjavík og sú þriðja stærsta á
Íslandi.
● Á hverju ári starfa meira en 200 manns við greinina og skilar hún
rúmum 4 milljörðum króna í gjaldeyristekjur.
● Fjórði hver erlendur ferðamaður sem kemur til landsins fer í hvala-
skoðun og á síðasta ári nýttu rúmlega 200 þúsund manns sér þessa
afþreyingu, þar af 115 þúsund í ferðum frá Reykjavík.
➜ 115.000 í hvalaskoðun frá Reykjavík
Dagur B.
Eggertsson
Sveinbjörg B.
Sveinbjörnsdóttir
Þorleifur
Gunnlaugsson
Líf
Magneudóttir
Halldór
Halldórsson
Halldór Auðar
Svansson
S. Björn
Blöndal
ÍSRAEL, AP Ehud Olmert, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ísraels,
þarf að sitja sex ár í fangelsi vegna
mútumáls, sem mun vera eitt hið
stærsta í sögu landsins.
Olmert var forsætisráðherra
Ísraels frá 2006 til 2009, en hafði
gegnt ráðherraembættum auk þess
að vera borgarstjóri í Jerúsalem
frá 1993 til 2003.
Hann verður þar með fyrstur
ísraelskra forsætisráðherra til
þess að hljóta
fangelsisdóm, en
á síðustu árum
hafa ísraelskir
dómarar dæmt
forseta lands-
ins, ráðherra
og nokkra þing-
menn til fangels-
isvistar.
Olmert var dæmdur sekur um
að hafa þegið svimandi háar mútu-
greiðslur gegn því að liðka til fyrir
byggingarframkvæmdum þegar
hann var borgarstjóri í Jerúsalem.
„Opinber embættismaður sem
þiggur mútur jafnast á við svik-
ara,“ sagði David Rozen dómari
þegar hann kvað upp dóminn í gær.
Olmert sagði af sér árið 2009
þegar málið komst í hámæli. Hann
hélt samt enn fast við það í gær að
hann væri saklaus og hefði aldrei
þegið mútur. - gb
Ehud Olmert, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, dæmdur í mútumáli:
Hlaut sex ára fangelsisdóm
EHUD OLMERT
DÓMSMÁL Hjördís Svan Aðalheiðar-
dóttir var í gær dæmd í 18 mánaða
fangelsi í Danmörku vegna brota
á umgengnisrétti og fyrir að fara
með börn sín þrjú þrisvar ólög-
lega til Íslands. Auk þess var hún
dæmd til að greiða allan málskostn-
að. Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort dómnum verður áfrýjað.
Hjördís hefur setið í gæsluvarð-
haldi í Horsens frá því í byrjun
febrúar. Hún hefur staðið í ára-
langri forræðisdeilu við dansk-
an barnsföður sinn, Kim Gram
Laursen. Hann fer með forsjá
barnanna samkvæmt úrskurði
þarlendra yfirvalda. Hjördís hafði
umgengnisrétt við börnin en virti
ekki að skila þeim aftur til föður
síns í ágúst í fyrra. Þess í stað flaug
hún með börnin til Noregs og flaug
þaðan með börnin hingað til lands.
Í síðasta mánuði vann Laursen
mál gegn Hjördísi í Héraðsdómi
Reykjavíkur og var dæmt að hann
fengi dætur þeirra þrjár afhentar á
næstu vikum. Dómnum hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar. - ebg
Dómstóll í Kolding í Danmörku hefur dæmt í forræðismáli Hjördísar Svan:
Dæmd í átján mánaða fangelsi
DÆMD Í FANGELSI Dómstóll í Dan-
mörku hefur dæmt Hjördísi Svan í 18
mánaða fangelsi.
VERÐLAUN Fyrirtækið Icelandic
Water Holdings, sem flytur út
vatn undir merkinu Icelandic
Glacial, hlaut umhverfisverðlaun
Ölfuss sem veitt voru í gær.
„Icelandic Water Holdings upp-
fyllir með prýði öll þau viðmið og
kröfur sem settar voru fram við
valið og gera fyrirtæki verðug
þess að hljóta umhverfisverð-
laun Ölfuss,“ sagði Sigurður Ingi
Jóhannsson, umhverfis- og auð-
lindaráðherra, við afhendingu
verðlaunanna. - fb
Umhverfisverðlaun afhent:
Iceland Glacial
verðlaunað
VEISTU SVARIÐ?