Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR
Sigrún segir að norski hópurinn ætli að hitt-ast 29. maí í Nesbyen í
Noregi, dvelja þar langa helgi
og halda upp á tíu ára afmæli
Íslandsferðarinnar. Sigrún ætlar
sjálf að fagna með Norðmönn-
unum ásamt eiginmanni sínum,
Guðmundi Vikari Þorkelssyni.
„Hópurinn hefur hist einu sinni
á ári í Nesbyen og heldur þá
litla Íslandshátíð en að þessu
sinni verður hún veglegri þar
sem þetta er afmælisár. Íslenski
fáninn verður í fyrirrúmi og
allir klæðast íslenskum lopa-
peysum. Einn úr hópnum tekur
til dæmis alltaf lagið á íslensku.
Einnig verða skoðaðar myndir
sem teknar voru í Íslandsferð-
inni og ferðin rifjuð upp,“ segir
Sigrún og bætir við að þetta
fólk hafi farið um alla Evrópu á
húsbílum en Íslandsferðin hafi
verið toppurinn á öllum ferða-
lögunum.
ÍSLENSKI FÁNINN Í ÖNDVEGI
Sigrún segir að hún hafi ekki
átt hugmyndina að Íslands-
hátíðinni, Norðmennirnir hafa
alfarið séð um hana. „Það hefur
alltaf verið vel mætt á þessar
hátíðir og fólk hefur skemmt
sér konunglega. Þessi norski
hópur heldur mjög vel saman
og það hafa myndast góð tengsl
á milli þeirra. Slökkviliðið í Nes-
byen hefur lánað stóran fána
sem strengdur er á milli staura
og merkir svæðið sem hátíðin
fer fram á. Allir bílarnir eru
sömuleiðis skreyttir íslenska
og norska fánanum. Venjulega
slá menn upp mikilli matar-
veislu en erfiðlega hefur gengið
að fá íslenskan mat sendan til
Noregs. Það þarf ýmis leyfi fyrir
matarsendingum en það hefði
verið skemmtilegt að bjóða
upp á eitthvað íslenskt. Mig
langaði að fá íslenskan bjór
til að gefa fólkinu að smakka
og sendi ósk um það til bjór-
framleiðenda á Íslandi en hef
ekki fengið nein svör. Það væri
virkilega ánægjulegt ef einhver
vildi gefa eitthvað íslenskt fyrir
þessa hátíð en netfangið mitt
er iceland66n@gmail.com,“
segir Sigrún.
Í FALLEGU LANDSLAGI
„Það er alveg sérstök stemn-
ing hjá þessum Íslandsvinum
og ég hlakka mikið til að hitta
hópinn. Við tökum ferju yfir til
Noregs en þurfum síðan að aka
í fimm til sex klukkustundir til
Nesbyen. Þessi bær er umvaf-
inn fjöllum og þar er óhemju-
fallegt landslag. Þess utan hafa
oft verið slegin hitamet þarna
því veðursældin er slík,“ segir
Sigrún og bætir við að Nesbyen
sé í tveggja klukkustunda akstri
norður frá Ósló.
„Ég veit að það eru allir
spenntir en þetta er allt fólk
sem er komið yfir fimmtugt og
kemur alls staðar að frá Noregi.
Þau sem koma lengstu leiðina
keyra um 3.000 km til að kom-
ast á staðinn.“
ÍSLANDSVINIR HALDA HÁTÍÐ
AFMÆLI Sigrún Haraldsdóttir býr í Danmörku en hefur ferðast um alla Evrópu á húsbíl. Fyrir tíu árum stóð hún fyrir ferð 120
húsbíla til Íslands. Frá Noregi komu 22 bílar en eigendur þeirra halda Íslandshátíð í lok maí til að minnast ferðarinnar.
ÍSLANDSHÁTÍÐ Norðmennirnir hafa haldið Íslandshátíð á hverju ári frá því þeir heimsóttu Ísland fyrir tíu árum. Nú verður hún óvenju vegleg.
HÚSBÍLAR Sigrún, ásamt eiginmanni
sínum Guðmundi, hefur ferðast víða á
húsbíl.
Loksins laus úr viðjum hvunn-
dagsins og sameinuð undir blá-
himni. Hvað gerið þið þá?
■ Byrjið á að verða eitt með nátt-
úrunni og segja skilið við daglegar
venjur.
■ Veljið rólegan, fáfarinn stað í
rómantísku umhverfi.
■ Allt sem þið gerið saman í
útilegunni ætti að endurspegla
einfaldleika. Einbeitið ykkur að
grunnþörfunum og látið þær hafa
forgang; hvíld, mat, drykk, hreyf-
ingu og kynlíf.
■ Missið tímaskynið ef hægt er og
notið sólarganginn til að fylgjast
með tímanum. Ekki spá í hversu
langan tíma hlutirnir taka. Lifið
fyrir núið.
■ Látið kylfu ráða kasti og gerið
eitthvað óvænt. Leyfið huganum
að reika og skiljið áhyggjur, skipu-
lag og verkefnalista eftir heima.
■ Gerið ekkert. Leggist á bakið
og horfið á skýin saman. Einbeitið
ykkur að hljóðum náttúrunnar
og því sem fyrir augu ber. Slíkar
stundir skapa dýrmætar minningar.
■ Takið ykkur blund saman og
njótið miðdagshvíldar. Það er
einkar yndislegt eftir göngutúr eða
saðsama máltíð. Sjáið hvað gerist
ef þið takið ykkur kríu nakin.
■ Sofið þar til líkami og hugur er
úthvíld eða vaknið óvænt við sól-
arupprásina. Kúrið áfram saman
þótt langt líði á morgun og veitið
hvort öðru fulla athygli.
■ Útilegur eru frábærar til að efla
nánd og tengsl meðal elskenda.
Hvað er enda rómantískara en
að horfa á sólsetrið saman, grilla
sykurpúða yfir opnum eldi og kela
undir tjaldhimni?
■ Takið með eftirlætis vínið og
vínkæli, útikerti eða ljósaseríu,
osta, ber og hvaðeina til að skapa
rómantísk huggulegheit.
RÓMANTÍSK ÚTILEGA
Dekkjaverkstæði
Ný pólýhúðaðar felgur
Ný dekk
Dekkjahótel Pólýhúðun
Umboðssala fyrir notuð dekk og felgur
PÓLÝHÚÐUM FELGUR
Láttu okkur
geyma dekkin
fyrir þig.
587 3757
dekkjasalan@dekkjasalan.is
Erum hérna
www.dekkjasalan.is
Verðskrá, upplýsingar og myndir á…
Lánum dekk og felgur á meðan