Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 46
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
Eitt best geymda leyndarmál
mannauðsstjórnunar á Íslandi er
Cranet-rannsóknin sem Háskólinn í
Reykjavík hefur framkvæmt á þriggja
ára fresti frá árinu 2003. Markmið
rannsóknarinnar er að skoða mann-
auðsstjórnun í íslenskum fyrirtækjum
og stofnunum.
Þjálfun starfsmanna –
áhrifaþættir
Fjölmarga áhugaverða punkta er að
finna í niðurstöðum rannsóknar-
innar. Sem dæmi má nefna að þegar
stjórnendur eru spurðir hvaða þættir
eru helst ráðandi varðandi ákvarð-
anatöku um þjálfun og fræðslu
starfsmanna, nefnir um helmingur
svarenda að ný viðfangsefni í fyrir-
tækinu ráði mestu. Aðeins lægra
hlutfall nefnir frammistöðu starfs-
manna en þá getur fræðslan bæði
verið umbun eða til að auka færni
sem ekki er talin næg. Þessi svör
koma í sjálfu sér ekki á óvart.
Það sem kemur aftur á móti á óvart
er að um helmingur svarenda segir
óskir starfsmanna vera ráðandi þátt
í ákvarðanatökunni. Vissulega geta
óskir starfsmanna og fyrirtækisins
farið saman þegar kemur að þjálfun
og er það vel en samt sem áður væri
áhugavert að skoða þennan þátt
betur. Og það sem kemur mest á
óvart í svörum þátttakenda er að ein-
ungis um 25 prósent þeirra nefna að
stefnumörkun og framtíðarsýn fyrir-
tækisins sé mikilvægur áhrifaþáttur
þegar kemur að ákvarðanatöku um
fræðslu og þjálfun. Þetta væri virki-
lega áhugavert að skoða betur, það
er af hverju fyrirtæki taka ekki meira
mið af stefnu og framtíðarsýn þegar
kemur að ákvarðanatöku – af hverju
tekur fræðsla og þjálfun starfsmanna
ekki meira mið af stefnu fyrirtækisins
en raun ber vitni?
Síðan svara um 15 prósent því til
að framboð námskeiða sé áhrifaþátt-
ur og er það vel skiljanlegt, námskeið
eru auglýst, fá athygli, verða umtöluð
og fleira.
Kostnaður 2 prósent
af launaveltu
Hér leynast gríðarleg tækifæri til betri
nýtingar fjármuna, aukinnar fram-
leiðni og uppbyggingar fyrirtækisins
til framtíðar. Oft er talið að kostn-
aður við fræðslu og þjálfun sé um 2
prósent af brúttólaunaveltu fyrirtækja
á Íslandi, sem eru gríðarlega miklir
fjármunir.
Þroski mannauðs-
stjórnunar á Íslandi
Hin
hliðin
MARTHA ÁRNA-
DÓTTIR, FRAM-
KVÆMDASTJÓRI
DOKKUNNAR
Harpa / Skeifan 6 / Keflavíkurvöllur / 5687733 / epal@epal.is / epal.is
Tilboðsverð:
138.800kr*
Fullt verð: 198.500kr
FTSE 100
6.873,08 +21,33
(0,31%)USD 113,49
GBP 191,04
DKK 20,845
EUR 155,6
NOK 19,136
SEK 17,292
CHF 127,49
JPY 1,1097
13.05.2014 Ofan á allt saman er til
umfjöllunar stóra kosningaloforðið –
heimsmetið sem eftir á að afgreiða og er
í miklum ágreiningi innan stjórnarflokk-
anna eins og sést meðal annars á
því að stjórnarmeirihlutinn skilar
einungis minnihlutaálitum úr
efnahags- og viðskiptanefnd.
Bjarkey Gunnarsdóttir
þingmaður Vinstri grænna á Alþingi í gær.
110%
Ríflegar hækkanir
Félag íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir harðlega
launastefnu Icelandair í nýjasta fréttariti sínu. Þar
kemur meðal annars fram að laun stjórnarformanns
Icelandair Group hafi hækkað um 110% frá árinu
2010. Þá hafi laun forstjóra Icelandair hækkað um
60,5% og laun forstjóra Icelandair Group hækkað
um 13% á sama tíma en sá hafði 44,2 milljónir í
árslaun í fyrra. Þeir segja starfsmenn ekki fá að njóta
velgengninnar með fyrirtækinu þrátt fyrir góða afkomu
og ríflegar hækkanir stjórnenda og eigenda.
957 MILLJÓNIR
4,3 milljarðar fyrir lóðir
Landsbankinn keypti byggingarrétt
við Austurhöfn fyrir nýjar höfuð-
stöðvar sínar á 957 milljónir króna
nú í maí. Söluaðilinn er félagið
Situs ehf. sem er í eigu ríkissjóðs og
Reykjavíkurborgar. Situs hefur selt
fjórar lóðir síðan í mars 2013 á sam-
tals 4,3 milljarða króna.
Save the Children á Íslandi
FRJÁLSI Á LISTA
Lífeyrissjóður ársins
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið
valinn lífeyrissjóður ársins á Íslandi
af fagtímaritinu Acquisition Inter-
national. Þetta kemur fram í sérstakri
útgáfu tímaritsins um verðlaunin
sem eru veitt á hverju ári þeim sem
þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði
síðastliðna 12 mánuði. Frjálsi lífeyris-
sjóðurinn er rúmlega 136 milljarðar
króna að stærð.