Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 56
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 28
BAKÞANKAR
Halla Þórlaug
Óskarsdóttir
Lanvin átti kvöldið
Bandaríski ballettinn blés til vorveislu í Metropolitan-óperuhúsinu í New York
á mánudagskvöldið. Tískurisinn Lanvin stóð að viðburðinum og voru kjólar úr
smiðju merkisins, í öllum regnbogans litum, áberandi á rauða dreglinum.
GRÆN OG VÆN Leikkonan
Emmy Rossum mætti í
grænum síðkjól frá Lanvin.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GUL GYÐJA Söngkonan Kelly
Rowland ljómaði í veislunni.
ORÐIN FULLORÐIN Ung-
stirnið Selena Gomez bauð
upp á fallegan kjól úr smiðju
Lanvin.
GLITRANDI STJARNA Stór-
leikkonan Sigourney Weaver
lét sig ekki vanta.
SMART Leikkonan Zoe Kravitz
skartaði stílhreinum kjól frá
Lanvin.
ÍÐILFÖGUR Fyrirsætan Anne
Vyalitsyna í æðislegum síð-
kjól.
KANN AÐ PÓSA Fyrirsætan
Coco Rocha mætti í eld-
rauðum Lanvin-kjól.
„MEINFYNDIN OG HELDUR
HÚMORNUM ALLA LEIÐ.“
-T.V.,
BÍÓVEFURINN.IS
-V.G. DV
BAD NEIGHBOURS
LÁSI LÖGGUBÍLL
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
HARRÝ OG HEIMIR
GRAND BUDAPEST HOTEL
KL. 8 - 10.10
KL. 5.40
KL. 10
KL. 6 - 9
KL. 6 - 8
KL. 5.45
BAD NEIGHBOURS
BAD NEIGHBOURS LÚXUS
LÁSI LÖGGUBÍLL
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
RIO 2 2D ÍSL. TAL
HARRÝ OG HEIMIR
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 3.30 - 5.40 - 8 - 10.10
KL. 3.30
KL. 5.30 - 8 - 10.25
KL. 5 - 8 - 10
KL. 3.30
KL. 3.30 - 6 - 8
Miðasala á:
“IT COULD BE HIS BEST FILM SO FAR” -
THE GUARDIAN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
CHICAGO SUN-TIMES
ENTERTAINMENT WEEKLY
WASHINGTON POST
PORTLAND OREGONIAN
TOTAL FILM EMPIRE
LOS ANGELES TIMESCHICAGO SUN TIMES
THE
BATTLE FOR
THE STREET
BEGINS.
SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE
FROM THE GUYS WHO BROUGHT YOU ‘THIS IS THE END’
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
BAD NEIGHBOURS 5:50, 8, 10:10
VONARSTRÆTI 8 FORSÝNING
LÁSI LÖGGUBÍLL 6
THE OTHER WOMEN 8, 10:20
SPIDERMAN 2 3D 10:35
RIO 2 2D 5:50
T.V. - Bíóvefurinn
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
Forsýning
5%
Nú kveð ég skóla í bili eftir tæp 20 ár á bekknum. Síðastliðnar vikur hef
ég verið á þönum að binda lausa enda.
Hápunkturinn var líklega þegar ég fékk
mastersverkefnið í hendurnar á prent-
stofunni klukkan sex á skiladegi. Þá
hafði ég um það bil fjórtán sekúndur til
stefnu svo ég hjólaði með það í munn-
inum yfir í Háskólann, mætti svo
eldrauð í framan og ældi næstum á
borðið á skrifstofunni af stressi og
áreynslu. En það hafðist.
SVO nú þegar flestallt er komið í
höfn og hálfgert sumarfrí í sjón-
máli líður mér auðvitað eins og allt
sé að fara úr böndunum. Það fyrsta
sem ég gerði til að bregðast við
þessu skyndilega stjórnleysi var
að panta mér alla hugsanlega
læknatíma sem mér datt í hug.
Ég byrjaði á að skella mér til
háls-, nef- og eyrnalæknis og
greiða þar 5.600 krónur fyrir
að panta fyrir mig annan
tíma í ágúst. Næst ætla ég í
tékk til húðlæknis, svo ætla
ég að heilsa upp á tannlækn-
inn minn og að lokum í reglulega leg-
hálsskoðun.
SÝSLUMAÐURINN í Kópavogi má svo
búast við mér á næstu dögum með tékk-
lista. Það er í raun ótrúlegt hvað sá maður
sinnir mörgum erindum. Fyrir utan hvað
hann er illa staðsettur, maður þarf eigin-
lega að vera búinn að safna í góðan lista
áður en maður gerir sér ferð þangað. Og
ég er búin að því.
ÞETTA er allt partur af prúgrammet.
Átakið ber titilinn Betri manneskja 2014.
Hjólið mitt fer heldur ekki varhluta af
þessu átaki, því það er komið með bjöllu
og bögglabera, bremsurnar komnar í lag
og gírarnir líka. Nú get ég sem sagt látið
mig gossa niður Njarðargötuna án þess að
fara með Faðirvorið fyrir fram.
EN allir þessir læknatímar og aukadót
fyrir mig og hjólið mitt kosta skildinginn.
Prúgrammet er ekki frítt. Gleðifréttirnar
í þessum hafsjó útgjalda eru hins vegar
þær að síminn minn er enn á lífi eftir
óvænta sundferð í salernið. Það var ódýr
læknismeðferð.
Öfgakennd yfi rhalning