Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 26
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kolli@365.is, s. 512-5447
FERÐIR Kristjana
Kristjánsdóttir
og Jóhanna
Benediktsdóttir standa
fyrir gönguferðum
fyrir konur á vegum
Útivistar.
MYND/KRISTJANA
KRISTJÁNSDÓTTIR
HORNSTRANDIR Síðustu fimm ár hefur
verið gengið á Hornstrandir. Það verður
einnig gert í sumar. Í sumar verður einnig
bætt við ferðum og gengið á Reykjanesi,
Snæfellsnesi og víðar.
FJÖR Oft skrá sig mæðgur, systur, frænk-
ur og vinkonur í ferðirnar.
VIÐ ALLRA HÆFI Kristjana mælir þó
með að æfa sig fyrir ferðirnar til byggja
upp þol. Skráning er í gegnum vefsíðu
Útivistar.
Það er öðruvísi að ferðast eingöngu með konum. Við höfum ekkert á móti
því að ferðast með körlum en
fyrir nokkrum árum vorum við
Jóhanna Benediktsdóttir beðnar
að leiðsegja hóp sem samanstóð
einungis af konum og upp úr því
spruttu þessar kvennaferðir,“
segir Kristjana Kristjánsdóttir,
fararstjóri í Kvennaferðum Úti-
vistar.
Undanfarin átta ár hafa þær
farið með hóp kvenna í nokkurra
daga gönguferð um mitt sumar
og hafa Hornstrandir orðið fyrir
valinu síðustu fimm árin. Nú
stendur til að fjölga ferðunum.
„Í sumar ætlum við að fara
fimm ferðir. Stóra ferðin verður
sem fyrr vestur á Hornstrandir
í júlí en við byrjum 31. maí á
að ganga gamlar þjóðleiðir á
Reykjanesinu. Í júní förum við á
Snæfellsnes, í ágúst förum við
helgarferð í Dalakofann í Reykja-
dölum og í september stefnum
við á Kistufell eða Búrfell í
Grímsnesi,“ útskýrir Kristjana.
GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR
Hópurinn telur yfirleitt 16 til 18
konur og er ýmist gist í tjöldum
eða í húsi. Ekki þarf að bera
búnaðinn milli gististaða en
þó þarf að ganga með poka og
mælir Kristjana með því að þátt-
takendur æfi sig fyrir ferðirnar
með því að ganga á fjöll í góðum
skóm og með bakpoka.
„Það er betra til að hafa út-
hald og geta notið ferðarinnar.
Við förum þó ekki hratt yfir og
mottóið er ekki að þjóta heldur
njóta. Við stoppum oft og ef
einhver er hæg þá bara hægist
á ferðinni, sem er ekkert mál.
Við mælum samt með því að
ganga til dæmis tvisvar á Esjuna
og taka tímann. Einnig stendur
Útivist fyrir stuttum ferðum úr
Elliðaárdalnum öll miðvikudags-
kvöld, Útivistarræktin, sem eru
öllum opnar og ókeypis. Við höf-
um hvatt konurnar til að nýta
sér þær til æfinga. Einnig eru
farnar dagsferðir á sunnudögum
frá BSÍ. Í þær ferðir er þátttöku-
gjald en þær eru einnig mjög
góð æfing fyrir sumarið.“
MÆÐGUR OG SYSTUR
„Oft eru mæðgur, frænkur, vin-
konur eða systur sem skella sér
saman í ferðina og það er alltaf
mjög gaman og góð stemming.
Margar konur koma einnig utan
af landi til að taka þátt,“ segir
Kristjana. „Þetta hefur alltaf
gengið vel og við höfum aldrei
lent í neinum skakkaföllum í
ferðunum. Stundum höfum við
orðið að breyta dagskránni
vegna veðurs en það er bara
hluti af ferðalaginu og skiptir
ekki máli þegar allir eru vel
útbúnir.“
Áhugasamar geta skráð sig
á vefsíðunni Útivist.is undir
liðnum Kvennaferðir.
NJÓTA FREKAR EN ÞJÓTA
FERÐIR Kristjana Kristjánsdóttir og Jóhanna Benediktsdóttir hafa staðið fyrir
nokkurra daga gönguferð fyrir konur. Í ár verður ferðunum fjölgað.
Sumir eru svo heppnir að geta ferðast þangað sem
þá langar en flest okkar þurfa að láta okkur nægja að
dreyma um fallega og framandi staði eins og Machu
Picchu, Bora Bora og Kiritimati. Nöfnin ein og sér eru
ókunnug og spennandi og ólíklegt að hinn almenni Ís-
lendingur stígi fæti sínum á þessa staði.
Machu Picchu hefur lengi verið eitt helsta aðdráttar-
afl ferðamanna í Perú. Borgin var lengi hulin umheimin-
um og hefur verið kölluð hin týnda borg Inkanna. Hún
er í fögru en hrikalegu umhverfi og ber vott um mikla
hæfni Inka í byggingarlistinni.
Bora Bora er eldfjallaeyja í Frönsku-Pólýnesíu í
Suður-Kyrrahafi. Hagkerfi eyjunnar treystir nánast
algjörlega á ferðamennsku og hún er fræg fyrir lúxus-
dvalarstaði sína. Fyrir þrjátíu árum lét Hótel Bora Bora
byggja svokallaða „búngalóa“ á stultum úti í vatni. Í dag
eru þessir „búngalóar“ eitt helsta sérkenni eyjarinnar.
Kiritimati eða Jólaeyja er 388 ferkílómetrar að
flatarmáli og er ein eyjanna í Línueyjaklasanum. Þar
er stunduð fiskirækt og þar eru stærstu kókospálma-
lundir eyjanna. Fimm þorp eru á eyjunni, þar af eitt í
eyði. London er aðalþorpið og þar er höfn eyjunnar.
Tabwakea er fjölmennast en þorpið Paris er yfirgefið. Á
eyjunni eru líka þorpin Banana og Poland.
FRAMANDI STAÐIR
Flesta langar að ferðast til framandi staða en fæstir gera það nema í huganum.
KIRITIMATI Á eyjunni eru fimm þorp, London, Paris, Tabwakea,
Banana og Poland.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Eru flugur, flær eða
maurar að ergja þig
og bíta?
áhrifaríkur
og án
allra
eiturefna.
Allt að
8 tíma
virkni.
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hjá N1
www.gengurvel.is
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Stærð 36 - 46/48
Verð 8.900 kr.
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Lífstíls og decor vefverslun
www.facebook.is/kolkaiceland