Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 10
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
www.hi.is
LAGADEILD
Inntökupróf í Lagadeild Háskóla Íslands fyrir grunnnám í lögfræði
haustið 2014 verður haldið í Reykjavík föstudaginn 13. júní 2014.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní og sótt er um rafrænt á heimasíðu HÍ www.hi.is. Allir
þeir sem skrá sig til náms við Lagadeild HÍ verða sjálfkrafa skráðir í inntökuprófið að uppfylltum
inntökuskilyrðum.
Umsækjendur skulu hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf
frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) telst sambærilegt stúdentsprófi. Umsækjendur skulu
skila inn staðfestu afriti af stúdentsprófsskírteini eða rafrænu stúdentsprófsskírteini úr Innu til
Nemendaskrár HÍ, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 Reykjavík eigi síðar en 5. júní.
Nánari upplýsingar um inntökuprófið verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur 3 ½ tíma. Niðurstaðan úr inntökuprófinu gildir 80% og
meðaleinkunn á stúdentsprófi gildir 20%. Þeir 150 nemendur sem bestum árangri ná, fá rétt til
náms í Lagadeild HÍ á haustmisseri 2014.
Þeir sem ekki öðlast rétt til náms í Lagadeild, eiga þess kost að skrá sig í nám við aðrar deildir HÍ
til 1. ágúst.
Umsækjendur eru hvattir til að kynnar sér nánari upplýsingar um prófið og dæmi um
prófspurningar sem finna má á heimasíðu Lagadeildar, www.lagadeild.hi.is.
Inntökupróf í Lagadeild HÍ
Rúmfatalagerinn er með frábær
garðhúsgögn af mörgum gerðum og í margs konar litum.
Þú finnur alveg örugglega stílinn og gæðin sem henta þér,
því í úrvali okkar má finna allt frá góðum plasthúsgögnum
til úrval harðviðar- og tekkhúsgagna. Við erum stolt af því
að öll harðviðarhúsgögn okkar eru gerð úr FSC-vottuðum
viði. Það er trygging þín fyrir því að þú styðjir
sjálfbæra skógrækt. FSC vottun merkir að skógurinn
sem tréð er úr er skoðaður af óháðum aðilum og
metinn samkvæmt þeim umhverfislegu, félagslegu
og hagrænu reglum og viðmiðum sem Forest
Stewardship Council setur ábyrgri skógrækt.
FSC eru alþjóðleg samtök sem ekki eru
rekin í hagnaðarskyni og þar vinna
umhverfissamtök, framfarasinnaðir
eigendur skóga og fyrirtæki saman
að því að bæta eftirlit með
skógum heimsins.
www.fsc.org
FSC® N001715
®
www.rumfatalagerinn.is
ÚKRAÍNA Vladímír Pútín Rússlands-
forseti hét því í gær að virða úrslit
forsetakosninganna í Úkraínu, sem
haldnar verða á morgun. Hann
sagðist vilja frið í Úkraínu og hvatti
enn á ný stjórnina í Kænugarði til
þess að ræða við uppreisnarmenn í
austanverðu landinu.
Hann viðurkenndi jafnframt að
refsiaðgerðir Vesturlanda vegna
afstöðu Rússa gagnvart Úkraínu
væru farnar að bíta. Rússneskt
efnahagslíf hefði beðið skaða af.
Hann sagðist vonast til þess að
ná að bæta tengsl Rússlands við
Vesturlönd, bæði Bandaríkin og
aðildarríki Evrópusambandsins,
en þau tengsl hafa verið harla
stirð undanfarið.
Á hinn bóginn sakaði hann Vest-
urlönd alfarið um að eiga sökina á
„ringulreiðinni og borgarastyrjöld-
inni“ í Úkraínu. Rússland ætti þar
enga sök. Rótin að ólgunni lægi í því
að leiðtogar Vesturlanda hefðu stutt
uppreisnarmenn sem gerðu stjórn-
arbyltingu gegn Viktor Janúkovítsj
forseta. „Þeir studdu stjórnarbylt-
inguna og steyptu landinu út í glund-
roða, og nú reyna þeir að koma sök-
inni á okkur og láta okkur hreinsa
til eftir sig,“ sagði Pútín á ráðstefnu
fjárfesta í Pétursborg í gær.
Rúmlega tuttugu frambjóðend-
ur sækjast eftir forsetaembætt-
inu í Úkraínu, en sigurstrang-
legastur þykir auðkýfingurinn
Petro Porosjenkó, sem er á bandi
Vesturlanda frekar en Rússlands.
Næstmest fylgi virðist ætla að
fara til Júlíu Tímosjenkó, fyrr-
verandi forsætisráðherra, sem
sat í fangelsi þangað til henni var
sleppt úr haldi í vetur.
Fái enginn frambjóðenda hrein-
an meirihluta verður efnt til ann-
arrar umferðar forsetakosning-
anna innan fárra vikna. Ljóst þykir
samt að sigurvegari kosninganna
komi úr röðum þeirra sem ekki
vilja styrkja tengslin við Rússland.
Hörð átök brutust út í gær
skammt frá þorpinu Rúbísjne í aust-
anverðu landinu og kostuðu meira
en tuttugu manns lífið. Varnar-
málaráðuneyti Úkraínu segir að þar
hafi allt að fimm hundruð uppreisn-
armenn ráðist á liðsmenn stjórnar-
hersins. Ráðuneytið segir að allir
hinir látnu séu úr röðum uppreisn-
armanna. gudsteinn@frettabladid.is
Pútín lofar
að virða
kosningarnar
Átök í austanverðri Úkraínu kostuðu tugi manna lífið í
gær. Forsetakosningar verða haldnar á morgun og þykir
auðkýfingurinn Petro Porosjenkó sigurstranglegastur.
RÚSTIR Í ÚKRAÍNU Íbúi í þorpinu Semjonovka, skammt frá borginni Slovjansk,
gengur fram hjá húsi sem eyðilagðist í sprengjuárás. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Save the Children á Íslandi
Yfi r tuttugu
sækjast eft ir
forsetaembættinu í Úkraínu.
20