Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 101
LAUGARDAGUR 24. maí 2014 | MENNING | 65
SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
14.00 Ásbjörg Jónsdóttir heldur
útskriftartónleika sína í Kaldalóni í
Hörpu en hún útskrifast með BA-
gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla
Íslands í vor.
15.00 Danska tríóið Krebs/Schmidt/
Anderson mun leika á KEX Hosteli
á ókeypis síðdegistónleikum. Með
tríóinu leikur píanóleikarinn Agnar
Már Magnússon. Þetta eru fyrstu
sunnudagssíðdegistónleikar KEX Host-
els og hálfgerð tilraun. Ef vel tekst
til og djassáhugamenn koma á tón-
leikana þá er ætlunin að gera fleiri
tilraunir síðar í sumar.
17.00 Vortónleikar kvennasöng-
hópsins Boudoir í Fella- og Hólakirkju.
Kvennasönghópurinn Boudoir var
stofnaður nú sl. haust af faglærðum
söngkonum og konum sem einnig eru
starfandi sem einsöngvarar, þ.e ein-
göngu konum eins og nafnið bendir
til, en Boudoir þýðir reyndar kvenna-
dyngja, sem er gamalt franskt orð
yfir búningsherbergi eða sal sem ein-
göngu var ætlað konum. Flutt verður
afar fjölbreytt efnisskrá allt
frá eldra og klassískara og
rómantísku yfir í nútíma
dægurlög. Aðgangseyrir
er 2.000 krónur.
17.00 Íslenskar
perlur í Hörpu.
Sönglög, þjóð-
lög og ballöður.
Á tónleikunum
fá áheyrendur
að kynnast
sígildri íslenskri
tónlist. Listrænn
stjórnandi tón-
leikanna er
óperusöngvarinn
Bjarni Thor Kristinsson
og kostar miðinn 3.900
krónur.
Sýningar
12.00 Listvinafélag Hallgríms-
kirkju kynnir sýningu Anne Thorseth
myndlistarmanns í fordyri kirkjunnar.
Sýningin verður opnuð klukkan 12.00
eftir messu. Verk Anne Thorseth
sýna að hún vinnur með málverkið
og teikninguna af ástríðu. Verkin eru
íhugul og leita í birtuna með upphafs-
punkt í lífinu sjálfu; hún sækir inn-
blástur í aldagömul þemu um tilvist
mannskepnunnar og örlög. Litir verk-
anna tjá andlegt ástand og víxlverkun
litanna við rými, form og tíma. Þessi
sjónræna tjáning fléttar saman flókið
samspil tilverunnar og listarinnar.
14.00 Æsa Sigurjónsdóttir, list-
fræðingur og sýningarstjóri, verður
með leiðsögn um sýninguna SPOR Í
SANDI í Listasafni Íslands, Fríkirkju-
veg 7. Arfleifð Sigurjóns Ólafssonar
markar djúp spor í sögu norrænnar
höggmyndalistar. Á sýningunni gefur
að líta ólíkar hliðar listamannsins í
90 mikilvægustu verkum hans. Allir
velkomnir.
Uppákomur
13.00 Á sunnudaginn kemur
verður önnur umferð Íslandsmótsins
í torfæru haldin í Jósepsdal. Það er
Akstursíþróttafélag Suðurnesja sem
heldur keppnina, en helmingur ágóð-
ans af keppninni mun renna beint
til Styrktar félags krabbameinssjúkra
barna. Keppnin hefst í Jósepsdal,
beint á móti Litlu kaffistofunni. Frítt
er fyrir börn, 12 ára og yngri, en full-
orðnir greiða 1.500 kr. í aðgangseyri.
Gott er að koma tímanlega á staðinn.
Aðalstyrktaraðili torfærunnar er Poul-
sen ásamt Bílum og hjólum.
Leikrit
20.00 KÚBUS kynnir tónleikhúsið
Gekk ég aleinn. Tónlist eftir Karl Ottó
Runólfsson, útsetningar eftir Hjört
Ingva Jóhannsson í sviðsetningu Frið-
geirs Einarssonar. Verkið er sýnt í
Iðnó og kostar miðinn 2.500 krónur.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
„Við viljum búa til samfélag þar
sem við deilum ráðum og reynslu
okkar á milli og vekjum athygli
annarra á því af hverju fólk velur
að verða grænmetisætur og hvern-
ig það lifir,“ segir Sæunn Ingi-
björg Marínósdóttir, einn stofn-
enda Samtaka grænmetisæta á
Íslandi, en samtökin fagna eins
árs afmæli um þessar mundir.
Af því tilefni er aðalfund-
ur samtakanna haldinn í dag,
klukkan 14, í húsnæði Lif-
andi markaðar í Borgartúni.
„Það ríkir mikill misskilningur
um það hvernig grænmetisætur
lifa. Við erum fjölbreyttur hópur
sem borðar ekki kjöt af hinum
ýmsu ástæðum, ekki eingöngu út
frá dýraverndunarsjónarmiðum,“
útskýrir Sæunn, og bætir við að
starfið í samtökunum sé bæði
félagslegt og hagsmunatengt.
„Það eru allir velkomnir í samtök-
in og á aðalfundinn, þó að þeir séu
ekki grænmetisætur eða séu að
stíga fyrstu skrefin í þessu,“ segir
Sæunn, sem leggur áherslu á að
um fjölbreyttan hóp sé að ræða.
- ósk
Grænmetisætur oft misskildar
Aðalfundur Samtaka grænmetisæta á Íslandi er í Lifandi markaði klukkan 14 í dag.
GRÆNMETISÆTUR KOMA SAMAN
Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir og
Sigvaldi Ástríðarson eru á meðal s tofn-
enda Samtaka grænmetisæta á Íslandi,
en aðalfundur samtakanna er í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI