Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 24. maí 2014 | FRÉTTIR | 17
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofnun veitti
Ísfélagi Vestmannaeyja áminningu fyrir
að nota úrgangsolíu í fiskimjölsverksmiðju
útgerðarfyrirtækisins á Þórshöfn á Langa-
nesi.
Áminningin var veitt í janúar eftir að
Umhverfisstofnun barst ekki staðfesting á að
brennslu úrgangsolíu væri hætt.
Vísaði stofnunin til hagsmuna almennings
af heilnæmu umhverfi. Þetta kemur fram
í úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis-
og auðlindamála en þangað kærði Ísfélagið
áminninguna frá Umhverfisstofnun.
Ísfélagið vildi að tillit væri tekið til þess að
endurunna olían, sem málið snýst um, væri
20 prósentum ódýrari en svartolía og að fyr-
irtækið sparaði 29 milljónir króna á ári með
notkun hennar, sem yrði í náinni framtíð í
samræmi við íslensk lög.
Umhverfisstofnun minnti á að ekki hefði
verið gripið til annarra þvingunarúrræða
gagnvart Ísfélaginu en áminningar.
Þá hafi stofnunin stöðvað brennslu á olíuúr-
gangi hjá öllum öðrum rekstraraðilum fiski-
mjölsverksmiðja á landinu.
Úrskurðarnefndin hafnað kröfu Ísfélags-
ins og því stendur áminningin sem veitt var
félaginu. - gar
Spara með brennslu úrgangsolíu í verksmiðju en Umhverfisstofnun segir það óheilnæmt fyrir íbúana:
Ísfélaginu veitt áminning fyrir úrgangsolíu
VERKSMIÐJAN Á ÞÓRSHÖFN Ísfélagið vill halda
áfram að spara með úrgangsolíu sem Umhverfisstofn-
un segir ólöglega. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐSKIPTI Penninn skilaði 123
milljóna króna hagnaði á rekstr-
arárinu 2013-2014, að því er fram
kemur í tilkynningu. Er þetta í
fyrsta sinn í nokkur ár sem fyrir-
tækið er rekið með hagnaði.
Eignir Pennans í lok rekstrar-
ársins, 28. febrúar síðastliðinn,
námu 1.805 milljónum króna
Skuldir námu 1.369 milljónum
og eigið fé var 436 milljónir. Til
stendur að opna nýja verslun
Pennans á Laugavegi 77 í byrjun
júní. - rkr
Opna verslun í byrjun júní:
Hagnaður var á
rekstri Pennans
HEILBRIGÐISMÁL Rætt hefur verið
að hefja notkun „tékklista“, líkt
og notaðir eru í flugi áður en
vélar taka á loft, á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Steinn Jóns-
son, formaður
Læknafélags
Reykjavíkur,
segir fólki hafa
orðið tíðrætt
um hugmynd-
ina eftir að fram
kom mann-
drápsákæra rík-
issaksóknara á
hendur hjúkrunarfræðingi Land-
spítalans. Kæran vekti alvarlegar
spurningar um verklag á spítal-
anum.
Að mati Steins er nauðsynlegt
að skerpa á öllum reglum innan
spítalanna er lúta að sambæri-
legum atvikum. Málið sé mikið
umhugsunarefni fyrir allt heil-
brigðisstarfsfólk. - sáp
Spurningar vakna á LSH:
Gætu byrjað að
nota tékklista
STEINN JÓNSSON
ALÞJÓÐAMÁL Fjórtán nemendur
frá Jafnréttisskóla Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna á Íslandi útskrif-
uðust á fimmtudag við hátíðlega
athöfn. Átta konur og sex karlar
eru í hópnum og er þetta í annað
sinn sem skólinn útskrifar nem-
endur eftir að hann varð hluti af
Háskóla SÞ fyrir ári, að því er
kemur fram í tilkynningu.
Nemendurnir sem útskrifuð-
ust eru frá Malaví, Mósambík,
Úganda og Palestínu, sem eru þau
lönd sem Ísland leggur höfuð-
áherslu á í alþjóðlegri þróunar-
samvinnu.
Á Íslandi starfa fjórir skólar
undir hatti Háskóla SÞ: Jarðhita-
skólinn, Sjávarútvegsskólinn,
Landgræðsluskólinn og Jafnrétt-
isskólinn. - fb
Fjórtán manns luku prófi:
Útskrift frá
Jafnréttisskóla
HÁTÍÐLEG ATHÖFN Átta konur og sex
karlar útskrifuðust við hátíðlega athöfn
á fimmtudag. MYND/UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
LÖGREGLUMÁL
28 prósent óku of hratt
Að sögn Lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu voru í vikulokin mynduð
umferðarlagabrot 23 ökumanna í
Rofabæ í Reykjavík. „Fylgst var með
ökutækjum sem var ekið Rofabæ í
vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á
einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru
82 ökutæki þessa akstursleið og því ók
meira en fjórðungur ökumanna, eða
28 prósent, of hratt eða yfir afskipta-
hraða,“ segir á vef lögreglunnar. Meðal-
hraði þeirra sem of hratt óku var 44
kílómetrar á klukkustund, en á svæðinu
er 30 kílómetra hámarkshraði.
www. utkall.is
Í ÞÁGU VÍSINDA
BÍÐUR ÞÚ
MEÐ TILBÚIÐ
SKILAUMSLAG?
Hringdu eða sendu póst á Þjónustumiðstöð
rannsóknaverkefna og björgunarsveitirnar
koma og sækja umslagið til þín.
Skilaumslagið má setja
ófrímerkt í póst.
HAFÐU SAMBAND
OG VIÐ SÆKJUM
520 2800
rannsokn@rannsokn.is
EÐA SENDU
OKKUR UMSLAGIÐ