Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 44
FÓLK|HELGIN
Ertu með nammidag og hvert er
uppáhaldssælgætið þitt? Ég er ekki
með nammidag og reyni frekar að
fá mér lítið í einu og oftar. Ég er
algjör ísfíkill og borða vandræða-
lega oft ís. Sælgæti er mér ekki
jafn mikilvægt.
Hvað maularðu í sjónvarpssófanum
á laugardagskvöldi? Nú, auðvitað
ís!
Heldurðu hvíldardaginn heilagan?
Ég reyni, en það gengur misvel.
Það liggja alltaf fyrir verkefni sem
hafa hlaðist upp yfir vikuna og
þarf að sinna og mér þykja sunnu-
dagar góðir í að ganga frá lausum
endum.
Ferðu til kirkju eða hlustar á út-
varpsmessuna á sunnudagsmorgn-
um? Nei.
Hvað verður með sunnudags-
kaffinu og með hverjum drekkur þú
það? Ég er mikill kaffisnobbari og
elska að hella upp á gott kaffi. Við
Davíð drekkum sunnudagskaffið
saman og okkur finnst nóg að fá
okkur einn sterkan cappucchino.
Meðlæti er óþarfi en ef við fáum
gesti skelli ég í vöfflur.
Til hvers eru helgarfrí, að þínu
mati? Til að gera eitthvað
skemmtilegt með fjölskyldu og
vinum sem ekki gefst tími til í
vinnuvikunni. Einnig finnst mér
nauðsynlegt að hlaða batteríin
þegar maður á helgarfrí.
Hvers vegna steigstu um borð í
Diskólestina? Af því að diskó er
langbesta tónlistin til að dansa og
skemmta sér við. Við ætlum að
sanna það á Spot í kvöld.
Hvert er þitt uppáhaldsdiskólag?
Ég held mikið upp á lagið Septem-
ber með Earth, Wind and Fire.
Ertu diskódís að upplagi? Heldur
betur. Ég hef alltaf elskað diskó.
Diskótímabilið gaf af sér rosalega
flotta söngvara og söngkonur, eins
og Donnu Summer, Díönu Ross,
Stevie Wonder og Patti Labelle,
svo fátt sé upptalið.
Hvert stefnir Diskólestin í sumar?
Við gefum allt í botn á Spot í kvöld
og sjáum svo hvað setur. Áhuga-
samir geta fylgst með okkur á
Facebook. ■ thordis@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Hvað ætlar þú að gera sérstakt um
þessa helgi? Ég fer alltaf í langan
göngutúr með hundana mína.
Mér finnst svo endurnærandi að
komast út, hreyfa mig og hreinsa
hugann í leiðinni. Ég fer reyndar
mikið út að ganga dagsdaglega
en það er alltaf tekin extra löng
ganga um helgar.
Hvað ætlarðu að gera sérstakt um
þessa helgi? Ég verð að spila á út-
gáfutónleikum Baggalúts í kvöld
og skelli mér svo beint á Spot til
að syngja með Diskólestinni. Það
verður megastuð og við í hljóm-
sveitinni erum rosalega spennt
fyrir þessu giggi.
Hvar finnst þér best að vera um
helgar? Mér finnst best að vera
uppi á sviði að syngja.
Vakirðu lengur um helgar? Ég vaki
fram eftir ef ég er að spila á balli.
Annars er ég oftast sofnuð um
miðnætti. Ég er A-manneskja að
eðlisfari.
Ertu árrisul eða sefurðu út? Mér
finnst gott að vakna snemma og
laga gott kaffi. Svo sest ég inn í
stofu og hef það notalegt.
Hver er draumamorgunverðurinn?
Það eru amerískar pönnukökur
með sírópi og melónum.
Hvernig er dæmigert laugardags-
kvöld í þínu lífi? Þegar maður er
starfandi tónlistarmaður er engin
helgi eins. Ég er oftast að syngja
einhvers staðar og verkefnin
eru jafn mismunandi og þau eru
mörg. Það gerir þessa vinnu mjög
skemmtilega.
DISKÓDÍS SEM
ER SÓLGIN Í ÍS
HELGIN Það verður dúndrandi diskóstuð á Spot í kvöld þegar diskódívan
Jóhanna Guðrún fer fyrir spánnýrri Diskólest og rifjar upp Hollywood-árin.
DISKÓDÍS Jóhanna Guðrún rifjar upp stemninguna frá því á diskóárunum í Hollywood
og Broadway í kvöld og spreytir sig á flottustu diskólögum í heimi. MYND/SVEINBI
HELGARSPJALLIÐ | JÓHANNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
Skipholti 29b • S. 551 0770
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU