Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 26
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Fyrir um tíu árum var Þórunn tæplega fertug, einhleyp, barnlaus og lifði fyrir líðandi stundu. Hún var á kafi í nýald-argrúski, markmiðið í lífinu var að vinna í sjálfri sér og lífsstíllinn var dýr og spennandi. Þetta ár tók Þórunn bækling um ABC-hjálparstarf á bensínstöð og ákvað að byrja að styrkja barn með mánaðarlegum greiðslum. Það var byrjunin á gjörbreyttu lífi. „Á þessum tíma hugsaði ég hversu lengi ég ætti að vinna í sjálfri mér án þess að láta gott af mér leiða. Ég var orðin hálf þung- lynd yfir því að líf mitt snerist ein- göngu um mig og mínar þarfir. Því ákvað ég að gera meira en að styrkja barn og bauð fram krafta mína við kynningarmál hjálpar- starfsins.“ Tók ákvörðun á einum mánuði Árið 2006 fór Þórunn svo til Kenía fyrir hönd ABC til að skoða aðstæður fyrir uppbyggingu nýs skóla í fátæktarhverfum Naíróbí. Eftir að hún kom heim úr ferð- inni fylltist hún eirðarleysi. Hún var að undirbúa kaup á nýrri íbúð og hafði hugsað sér að jarðtengja sig hér á Íslandi en einhvers stað- ar fann hún sterkt að hún ætti að fara aftur út til Kenía. „Ég fylgdi innsæinu, birtist á skrifstofu ABC og tilkynnti þeim að ég yrði að fara aftur út. Þann- ig að mánuði eftir að ég kom heim úr ferðinni var ég flutt út til að byggja upp starfið.“ Götubörn með fíknivanda Þórunn hafði aldrei unnið með götubörnum áður. Börnin voru mörg hver með fíknivanda og höfðu lent í miklum áföllum. Umhverfið, menningin og ömurleg fátæktin voru henni líka algjör- lega framandi. En hún dembdi sér út í djúpu laugina. „Ég byrjaði strax á því að taka hús á leigu. Um leið og ég var flutt í það byrjaði ég að taka inn börn. Fyrsta barnið er strákur sem kom til mín að betla og var alveg út úr heiminum af límsniffi. Ég sagði við hann eins og ég hef sagt við svo mörg börn sem ég býð pláss: „Ég skal bara vera mamma þín.“ Hann náði svo í vini sína og svo spurðist þetta út þannig að húsið var fljótt að fyllast.“ Fann ástina í fyrstu vikunni Í fyrstu vikunni var hún komin með fullt hús af börnum og það sem meira er, hún kynntist núver- andi eiginmanni sínum, Samuel Lusiru Gona. „Mér var boðið í brúðkaup og þar var hann. Hann sagði mér síðar að hann hefði séð mig og vitað strax að ég væri konan hans. Eftir að við kynntumst gerðust hlutirnir mjög hratt. Hann byrjaði að vinna sjálfboðastarf hjá mér og hálfu ári seinna vorum við gift. Hann er ómetanleg stoð og stytta í starfinu og ég veit ekki hvar ég væri án hans. Hann þekkir sam- félagið og menninguna sem ryður oft braut mína.“ Baráttan er hörð Í dag ganga rúmlega 600 hundr- uð börn í ABC-skólann í Naíróbí og af þeim búa tvö hundruð börn í heimavist. Þórunn hefur bjarg- að mörgum þeirra sjálf af göt- unni. Nú er hún með áttatíu og sex starfsmenn sem aðstoða við kennslu, umönnun barnanna, rekstur og utanumhald en í augum barnanna er hún alltaf mamman. Mamman þarf að sjá til þess að munnar séu mettir í hverjum mán- uði og hefur baráttan verið ansi hörð frá hruni. „Hrunið olli því að allt í einu vorum við með helmingi minni pening í höndunum og höfðum ekki nóg fyrir launum eða mat. En við brugðumst við því með því að leita Fyrsta barnið er strákur sem kom til mín að betla og var alveg út úr heiminum af límsniffi. Ég sagði við hann eins og ég hef sagt við svo mörg börn sem ég býð pláss: „Ég skal bara vera mamma þín.“ Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Hjálparstarf í Kenýa Bjargar börnum af götum Naíróbí Þórunn Helgadóttir ákvað að breyta gjörsamlega um lífsstíl fyrir átta árum og flytja til Kenía til að byggja upp íslenskt hjálparstarf fyrir götubörn. Í dag rekur hún tvo skóla auk heimavistar fyrir tæplega þúsund börn og er með um nítíu starfs- menn í vinnu. Hún fann ástina og tilgang lífsins í Kenía og segir of margt óunnið til að hún geti flutt aftur heim til Íslands. LANGAR AÐ BJARGA ÖLLUM Fjölmörg börn og foreldrar leita til Þórunnar í von um hjálp. Það að þurfa að hafna slíkum beiðnum er það erfiðasta við starfið að hennar mati. Hún vinnur þó sleitulaust við að stækka skólann og heimavistina til þess að geta tekið á móti fleiri börnum. MYND/GUNNI SAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.