Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 88
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52TÍMAMÓT
MERKISATBURÐIR
1276 Magnus Ladulås er krýndur konungur Svíþjóðar í dóm-
kirkjunni í Uppsölum.
1626 Peter Minuit kaupir Manhattan.
1830 Mæja átti lítið lamb eftir Söruh Josephu Hale kemur út.
1883 Brúin í Brooklyn í New York er opnuð fyrir umferð eftir
fjórtán ár í byggingu.
1930 Amy Johnson lendir í Darwin og er fyrsta konan til að
fljúga ein frá Englandi til Ástralíu.
1973 Mótmælafundur, sá fjölmennasti á Íslandi, er haldinn í
Reykjavík. Um þrjátíu þúsund manns mótmæla flotaíhlutun
Breta vegna útfærslu fiskveiðilögsögunnar í fimmtíu mílur.
1993 Erítrea fær sjálfstæði frá Eþíópíu.
1994 Fjórir menn eru dæmdir í 240 ára fangelsi hver fyrir að
sprengja World Trade Center í New York árið 1993.
1999 Alþjóðaglæpadómstóllinn í Haag í Hollandi ákær-
ir Slobodan Miloševic og fjóra aðra fyrir stríðsglæpi og glæpi
gegn mannkyninu sem voru framdir í Kósóvó.
2001 Temba Tsheri, fimmtán ára sjerpi, er yngstur til að kom-
ast á topp Everest-fjalls.
Fyrsta Eurovision-söngvakeppnin var
haldin á þessum degi í Lugano í Sviss. Eins
og flestir Íslendingar vita er þetta árleg
keppni þar sem Evrópulöndin keppa um
hvaða land á besta lagið.
Keppninni hefur verið sjónvarpað allt
frá árinu 1956 og er einn af langlífustu
sjónvarpsþáttum heims. Þá er þetta einnig
sá viðburður sem hvað mest áhorf er á
í heiminum ef íþróttaviðburðir eru ekki
teknir með inn í jöfnuna. Talið er að eitt-
hvað á milli hundrað til sex hundruð millj-
ónir manna horfi á keppnina árlega sem er
ekki aðeins sjónvarpað til Evrópulandanna
heldur einnig til Ástralíu, Kanada, Egypta-
lands, Indlands, Taílands og Bandaríkjanna
svo dæmi séu nefnd. Keppninni hefur
einnig verið sjónvarpað á netinu síðan árið
2000 á heimasíðu Eurovision.
Fjölmargir listamenn hafa hlotið frægð á
alþjóðavettvangi eftir þátttöku í keppn-
inni, þar á meðal sænska sveitin ABBA,
kanadíska stórsöngkonan Céline Dion og
spænski sjarmörinn Julio Iglesias.
Íslendingar hafa tekið þátt í Eurovision
síðan árið 1986 þegar ICY-flokkurinn flutti
lagið Gleðibankinn í Björgvin í Noregi.
Flokkurinn lenti í 16. sæti eins og fram-
lögin tvö sem komu í kjölfarið og því hefur
talan 16 fylgt Íslendingum síðan. Ísland
hefur best náð öðru sæti í keppninni, fyrst
þegar Selma tók þátt árið 1999 með lagið
All Out of Luck þegar hin sænska Charlotte
Nilsson bar sigur úr býtum og síðan árið
2009 þegar Jóhanna Guðrún flutti lagið Is
It True en hinn norski Alexander Rybak fór
með sigur af hólmi.
Austurríska draggdrottningin Conchita
Wurst sigraði í Eurovision í ár með lagið
Rise Like a Phoenix en framlag Íslands, No
Prejudice með Pollapönki, lenti í 15. sæti.
- lkg
ÞETTA GERÐIST: 24. MAÍ ÁRIÐ 1956
Fyrsta Eurovision-keppnin haldin í Sviss
„Það er mikill heiður fyrir mig að fá að
tala fyrir hönd allra útskriftarnema á
þessum stóra degi,“ segir Katrín Ósk
Ásgeirsdóttir, ræðumaður Íslands árið
2014 og fráfarandi oddviti nemenda-
félags Flensborgarskólans. Hún útskrif-
ast úr Flensborgarskólanum í dag og
flytur ræðu útskriftarnema við athöfn-
ina en það voru samnemendur hennar
sem útskrifast í dag sem völdu hana
hæfasta í verkið.
„Þetta er fyrst og fremst hátíðleg
ræða að lokinni skólagöngu í Flensborg.
Ræða til að þakka þeim sem áttu sinn
þátt í því að leyfa okkur að standa þarna
og útskrifast úr framhaldsskóla; skóla-
stjórn og kennurum sem gerðu okkur
kleift að vera þarna. Án þeirra stæð-
um við ekki þarna í dag. Ég ætla líka að
horfa fram á við í ræðunni og tala um
hvaða tækifæri taka við eftir útskrift,“
segir Katrín.
Katrín hefur verið meðlimur í ræðu-
liði Flensborgarskólans síðan hún var
nýnemi árið 2010. Í ár sat hún einnig
í stjórn Morfís, mælsku- og rökræðu-
keppni framhaldsskóla á Íslandi. Ræðu-
lið Flensborgarskólans sigraði í Morfís-
keppninni í ár, í fyrsta sinn í sögu
skólans, og var Katrín valin ræðumaður
Íslands. Hún er því öllu vön þegar kemur
að ræðumennsku.
„Ég er ekkert stressuð fyrir út-
skriftar ræðunni en auðvitað vil ég gera
vel og mitt besta í þessari seinustu ræðu
á sviði í Flensborg. Ég hef haldið þær
ófáar þar og ég hlakka mikið til.“
Katrín útskrifast ekki aðeins á morg-
un heldur fagnar einnig tvítugsafmæli
sínu. Hún deilir afmælisdeginum með
föðurafa sínum sem hefði orðið sjötug-
ur hefði hann lifað.
„Hann fékk mig í fimmtugsafmæl-
isgjöf en hann lést árið 2004. Hann
hefur alltaf verið mér ofarlega í huga á
afmælis deginum mínum og ég hef allt-
af fagnað deginum með honum. Það er
mjög gaman að eiga svona sérstakan dag
með einhverjum þótt hann sé ekki til
staðar,“ segir Katrín. Dagurinn er pakk-
aður hjá þessari atorkumiklu stúlku.
„Athöfnin í skólanum hefst klukkan
11 og lýkur um hádegi. Þá ætla ég að
halda útskriftarveislu heima með fjöl-
skyldu minni og nánustu vinum. Svo
ætlum við nokkrir útskriftarnemar að
halda útskriftarpartí í Reykjavík. Það
er nóg að gera og þetta er mjög spenn-
andi dagur.“
Þá er Katrín einnig frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Hún
skipar níunda sæti á listanum og því
möguleiki á að hún verði varabæjar-
fulltrúi á næsta kjörtímabili.
„Mér var boðið að sitja í níunda sæti á
listanum og mér fannst það kjörið tæki-
færi fyrir mig til að komast inn í mál
Hafnarfjarðarbæjar aðeins betur. Ég vil
nýta þetta tækifæri og vera virk í félags-
starfinu sem á sér stað í flokknum. Mér
finnst mikilvægt fyrir ungt fólk að það
sitji einhver ungur á lista og mér finnst
mjög gaman að vera fulltrúi unga fólks-
ins,“ segir Katrín en það liggur beinast
við að spyrja hvernig henni hafi tekist að
útskrifast í ljósi þess öfluga félagsstarfs
sem hún er hluti af.
„Ótrúlegt en satt náði ég öllu og er að
fara að útskrifast. Ég þurfti að leggja
mikið á mig á lokasprettinum og það var
mikið af verkefnum og lærdómi sem ég
þurfti að vinna upp til að ég gæti útskrif-
ast. En um leið og ég sá von spýtti ég
í lófana. Þetta hófst á endanum og er
ótrúlega gaman. Ég þakka líka foreldr-
um mínum ótrúlega þolinmæði og stuðn-
ing á meðan á þessu stóð. Þetta hefði ég
aldrei getað gert án þeirra og er ég þeim
óendanlega þakklát.“
En hvað tekur við hjá Katrínu?
„Eftir útskrift ætla ég út á vinnumarkað-
inn í eitt ár. Mig langar einnig að ferðast
aðeins í byrjun næsta árs með vinkonu
minni. Mig hefur lengi dreymt um að
fara í lögfræði við Háskóla Íslands og
ég stefni þangað haustið 2015. Ég hef
einnig mikinn áhuga á að starfa í fjöl-
miðlum þannig að við sjáum hvað gerist
í framtíðinni.“ liljakatrin@frettabladid.is
Deilir afmælisdegi með
afa sínum heitnum
Katrín Ósk Ásgeirsdóttir, ræðumaður Íslands 2014, fagnar ekki aðeins tvítugsafmæli sínu
í dag heldur útskrifast hún einnig úr Flensborgarskólanum.
NÓG AÐ GERA Katrín lætur sér ekki leiðast í lífinu. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ég þurfti að leggja mikið
á mig á lokasprettinum og það
var mikið af verkefnum og
lærdómi sem ég þurfti að
vinna upp til að ég gæti
útskrifast. En um leið og ég sá
von spýtti ég í lófana.
Katrín Ósk Ásgeirsdóttir.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð, vinarhug og hlýju vegna andláts og
útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar og tengdamóður,
HÓLMFRÍÐAR BÁRU MAGNÚSDÓTTUR
Hlíðargötu 20, Sandgerði.
Brynjarr Pétursson
Guðrún Magnea Hafsteinsdóttir Jóhannes Kr. Jónsson
Borghildur Brynjarsdóttir Karl Lúðvíksson
Pétur Brynjarsson Björk Garðarsdóttir
Ingibjörg Brynjarsdóttir Hallur Þorsteinsson
Magnús Brynjarsson Ólöf Björg Kristjánsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HELGA RUNÓLFSDÓTTIR
húsfreyja í Unnarholtskoti,
Hrunamannahreppi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði þann 14. maí. Útför hennar
fer fram frá Hrunakirkju föstudaginn 30. maí
klukkan 14.00.
Hjörleifur Gíslason Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir
Guðlaug Gísladóttir
Hildur Helga Gísladóttir Kristján Rafn Heiðarsson
Unnar Gíslason Hjördís Heiða Másdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma
og langamma,
ERNA GUÐMUNDSDÓTTIR
Jökulgrunni 26,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 27. maí kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
styrktarsjóð skáta,
0701-26-003444, kt. 440169-2879.
Gísli Kristjánsson
Guðrún Gísladóttir Halldór Þórðarson
Kristján Gíslason Ásdís Rósa Baldursdóttir
Guðmundur Torfi Gíslason Ragnheiður K. Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
EDDA HÓLMFRÍÐUR LÚÐVÍKSDÓTTIR
Pósthússtræti 3, Keflavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 17. maí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 27. maí kl. 13.00.
Sigurður Vignir Sigurðsson
Guðrún Sigurðardóttir Annel Borgar Þorsteinsson
Hrafnhildur Sigrún Sigurðardóttir Halldór Einarsson
Sigurður Lúðvík Sigurðsson
barnabörn og langömmubörn.