Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 46
FÓLK|HELGIN
Einfalt og skemmtilegt að gera
RABARBARA- OG JARÐAR-
BERJAKAKA
MEÐ MULNINGI
Í þessa köku eru notaður bak-
aður rabarbari og er það gert á
eftirfarandi hátt.
550 g rabarbari
85 g sykur
Hitið ofninn í 200°C. Þvoið
rabarbarann, þerrið og skerið
enda frá. Skerið hann síðan
niður í fingurlanga bita. Leggið í
eldfastan disk og stráið sykr-
inum yfir. Breiðið álpappír yfir og
bakið í 15 mínútur eða þangað til
rabarbarinn er orðinn mjúkur og
sykurinn hefur breyst í síróp.
Þá er hægt að hefjast handa
við kökuna.
Blandið bakaða rabarbaranum
saman við 250 g af jarðarberjum
sem hafa verið skorin í tvennt.
Fyrir mulninginn
85 g hveiti
50 g sykur
25 g hakkaðar möndlur
50 g smjör, þarf að vera við
stofuhita
Rifinn börkur af einni lítilli
appelsínu
2 lófar furuhnetur
Ofninn á að vera 200°C heitur.
Setjið jarðarberin saman við heit-
an rabarbarann og bakið áfram í
5 mínútur. Hér má skipta
um eldfasta skál eftir
því sem hver vill.
Útbúið muln-
inginn. Blandið
saman hveiti,
sykri, möndl-
um og síðan
smjöri. Hrærið
allt vel saman.
Bætið þá app-
elsínuberkinum
saman við. Dreifið
deiginu gróflega
yfir rabarbarann og
jarðarberin. Loks er
furuhnetunum dreift
yfir. Bakið í 25 mínútur eða þar
til mulningurinn er orðinn gullin-
brúnn og rabarbarinn farinn að
krauma. Berið fram með vanilluís
eða þeyttum rjóma.
RABARBARI MEÐ ENGIFER
Hér er frábær eftirréttur
og ekki síður fallegur.
Upplagður í góðu
veðri eftir grill-
aða steik.
400 g
rabarb ari,
smátt skorinn
Smábiti fersk-
ur engifer, af-
hýddur og mjög
smátt skorinn
75 g sykur
100 ml hvítvín
100 g mascarpone
300 ml þeyttur rjómi
50 g flórsykur
4 bitar þurrkaðir engiferbitar
til skrauts
Setjið rabarbara, ferskan engi-
fer, sykur og hvítvín í pott og látið
suðuna koma upp. Látið malla
undir vægum hita í 4-5 mínútur
eða þar til rabarbarinn er orðinn
mjúkur. Kælið.
Setjið mascarpone í skál og
hrærið rjómanum saman við
ásamt flórsykri. Takið fjórar mat-
skeiðar af rabarbarablöndunni
og bætið út í. Setjið rabarbara í
fjögur glös, mascarpone-blöndu
þar ofan á, aftur rabarbara og
loks mascarpone alveg þar til
allt er búið. Mascarpone-bland-
an á að vera efst. Skreytið með
litlum engiferbitum. Hægt er að
geyma desertinn í ísskáp í nokkra
klukkustundir áður en hann er
borinn á borð.
GÓÐIR EFTIRRÉTTIR
MEÐ RABARBARA
LJÚFFENG Nú er rabarbarinn farinn að kíkja upp úr jörðinni en sagt er að
fyrsta uppskeran sé ávallt sú besta. Það ætti því að vera upplagt að útbúa
góða rabarbaraköku eða sætan eftirrétt um helgina.
RABARBARAKAKA með jarðarberjum og mulningi.
LJÚFFENGUR
DESERT með
rabarbara,
engifer og
mascarpone.
ALMENN LEIÐSÖGN OG GÖNGULEIÐSÖGN
Leiðsöguskólinn sími: 594 4025
Draumastarfið í draumalandinu
LEIÐSÖGU
SKÓLINN
WWW.MK.IS
Ef þér finnst gaman að ferðast um Ísland og umgangast erlenda ferðamenn þá
gæti leiðsögunám verið fyrir þig.
Leiðsögunám er fjölbreytt og skemmtilegt og getur opnað dyr að áhugaverðu
og krefjandi starfi í vaxandi atvinnugrein.
INNRITUN STENDUR TIL 2 .
Kannt þú erlend tungumál?
Meðallestur á Frétta-
blaðinu hvern dag er
meiri en uppsafnaður
lestur á Morgun-
blaðinu í heila viku*
Það þýðir að birting auglýsingar í Fréttablaðinu
einhvern einn dag vikunnar, nær til fleiri lesenda
en auglýsing í öllum Morgunblöðum vikunnar.
* Skv. fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, júl–sept 2013.
Allt sem þú þarft ...