Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 94
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 58
20.00 Fantastar í Brimhúsinu
20.00 WIDE SLUMBER í Tjarnarbíói
20.00 In the Light
of Air– Anna
Þorvaldsdóttir
og ICE ensemble
í Norðurljósasal
Hörpu
21.00 Sidsel
Endresen í Mengi
Þetta eru tæplega fimmtíu verk
eftir jafnmarga listamenn frá tíma-
bilinu 1970 til 2010,“ segir Klara
Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Lista-
safns Reykjavíkur, um sýninguna
Þín samsetta sjón sem opnuð verður
í Hafnarhúsinu í dag. Verkin eru öll
úr safneign Listasafnsins og marg-
ir af þekktustu starfandi listamönn-
um landsins eiga verk á sýningunni.
Þar má nefna Ólaf Elíasson, en tit-
ill sýningarinnar er sóttur í verk
eftir hann, Ragnar Kjartansson,
Gjörningaklúbbinn, Gabríelu Frið-
riksdóttur og Hrein Friðfinnsson.
„Hafþór Yngvason, sem er sýning-
arstjóri, vildi að þetta væru verk
sem komu fram eftir SÚM-kyn-
slóðina,“ segir Klara. „Og það vildi
svo til að elsta verkið, sem er eftir
Sigurð Guðmundsson, er frá 1970.
Það má segja að þetta sé rjóminn af
safneigninni frá þessu tímabili, það
er ekkert beint þema.“
Verkin á sýningunni eru fjöl-
breytt, miðlarnir margir og við-
fangsefnin ólík. Hér má sjá stað-
bundnar innsetningar, minimalíska
skúlptúra, hugmyndalist í ýmsum
miðlum, gjörningatengda vídeólist
og verk byggð á rannsóknum. Við-
fangsefnin eru allt frá sjálfhverfri
íhugun um eðli listarinnar til þjóð-
félagsádeilu og afbyggingar við-
tekinna hugmynda um „norðrið“ og
íslenskan menningararf. „Þetta er
mjög stór sýning og langt síðan sett
hefur verið upp sýning þar sem allir
þessir íslensku listamenn mætast,“
segir Klara. „Þeir eru mjög ólíkir
en eiga það sameiginlegt að spretta
upp úr svipuðum hugmyndagrunni
þannig að það er forvitnilegt að sjá
hvernig þessi verk tala saman.“
Í heild teljast um sautján þús-
und verk til safneignar Listasafns
Reykjavíkur, hvar eru þau milli
þess sem settar eru upp sýningar
á þeim? „Þau eru í geymslum eða
í láni á öðrum sýningum, en það er
eitt af hlutverkum safnsins að lána
verk, sjá til þess að þau komi heil til
baka og varðveita þau,“ segir Klara.
„Þótt sum þessara verka hafi verið
sýnd á undanförnum árum þá er
merkilegt að sjá þau í þessari heild.
Við erum náttúrulega alltaf að leit-
ast við að skrifa söguna og skoða
samhengi hlutanna eða hvort það
sé eitthvert samhengi yfirhöfuð.
Það má vissulega sjá ákveðna sam-
kennd milli verkanna og þótt oft sé
erfitt að setja puttann á það hvað
það nákvæmlega er sem tengir öll
þessi verk er hér komin sýning sem
virkilega reynir á það að maður
skoði samhengið í myndlistarsög-
unni. Ég þykist allavega sjá ákveðna
orðræðu sem hefur skapast hér á
Íslandi þessa hálfu öld og þessi verk
eru sprottin upp úr. SÚM-kynslóðin
breytti viðhorfi fólks til myndlistar
á sjöunda áratugnum og þessi sýn-
ing sýnir vel hvernig þróunin hefur
verið síðan þá.“
Opnunin hefst klukkan 16 í dag
og sýningin stendur til 7. september.
Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Við erum náttúru-
lega alltaf að leitast við
að skrifa söguna og
skoða samhengi hlut-
anna eða hvort það sé
eitthvert samhengi
yfirhöfuð.
12.00 Hringiða í Listasafni
Árnesinga, Hveragerði– opnun &
gjörningur
14.00 Lusus naturae í Hafnarborg
– opnun
15.00 Spegill lífsins, sýning
Ragnars Axelssonar í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur– opnun
16.00 Þrjár Shakespeare Sonn-
ettur – Kammerkór Suðurlands og
Tavener í Norðurljósasal Hörpu
17.00 The Five Live Lo Fi @ Gallerí
Kling & Bang– opnun númer tvö
20.00 Bryn Terfel – einsöngstón-
leikar í Eldborgarsal Hörpu
20.00 Fantastar í Brimhúsinu við
Geirsgötu
20.00 WIDE SLUMBER í Tjarnarbíói
– frumsýning
21.00 Sight Unseen– Lee Ranaldo
og Leah Singer í Silfurbergi Hörpu
LISTAHÁTÍÐ Í DAG
FRUMFLUTNINGUR Lilja Birgis-
dóttir flytur verkið „Hymn“ í Listasafni
Árnesinga í dag kl. 12.30. Þetta er frum-
flutningur í samstarfi við sjö söngkonur.
BRYN TERFEL MYND/NORDICPHOTOSGETTY
LISTAHÁTÍÐ
Á SUNNUDAG
14.00 & 15.00 & 16.00 Innra eyrað
– Hljóðganga í Austurbæjarskóla
15.00 Lusus naturae– tónlistar-
gjörningur í Hafnarborg
16.00 Rýmin og skáldin I Tríó
Sírajón og Ingibjörg Guðjóns-
dóttir í Hannesarholti
ANNA ÞOR-
VALDSDÓTTIR
Sjaldgæft tækifæri til að
skoða samhengi hlutanna
Sýningin Þín samsetta sjón verður opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Þar gefur að líta tæplega fi mmtíu verk úr
safneign Listasafns Reykjavíkur eft ir marga af þekktustu myndlistarmönnum samtímans á Íslandi.
ÞÍN SAMSETTA SJÓN „Það er forvitnilegt að sjá hvernig þessi verk tala saman,“ segir Klara Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Lista-
safns Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Dagskrá Skjaldborgar, hátíðar
íslenskra heimildarmynda, var
birt í gær. Hátíðin verður hald-
in í áttunda sinn um hvítasunnu-
helgina, 6. til 9. júní, og mun að
vanda fara fram í Skjaldborgar-
bíói á Patreksfirði. „Þetta er orðin
ansi rótgróin hátíð sem hefur þá
sérstöðu að frumsýna íslensk-
ar heimildarmyndir,“ segir Haf-
steinn Gunnar Sigurðsson, einn
skipuleggjenda Skjaldborgarhá-
tíðarinnar. „Við munum frumsýna
þrettán myndir í ár, hverja ann-
arri áhugaverðari, og auk þess
erum við með lið sem heitir verk í
vinnslu þar sem kvikmyndagerð-
arfólk kynnir myndir sem eru á
vinnslustigi, sem er oft mjög fróð-
legt bæði fyrir kvikmyndagerð-
arfólkið sjálft og áhorfendur. Í ár
verður sýnt úr fimm myndum á
vinnslustigi. Rúsínan í pylsuendan-
um er svo heiðursgesturinn okkar,
alþjóðlega heimildarmyndagerðar-
stjarnan Victor Kossakavosky, en
þrjár af myndum hans verða sýnd-
ar á hátíðinni.“
Á meðal kvikmyndagerðarfólks
sem á myndir á hátíðinni í ár eru
Ari Alexander Ergis Magnússon,
Árni Sveins, Hulda Rós og Helga
Rakel, Helgi Felixson og fleiri.
Viðfangsefnin eru að sama skapi
fjölbreytt, eða allt frá taílenskum
sjávarsígaunum til Þórðar frá
Dagverðará. Hafsteinn segir dag-
skrána vera ansi þétta og að mynd-
irnar verði sýndar hver á fætur
annarri án afláts. „Við byrjum á
föstudagskvöldi og sýnum myndir
frá 10 á morgnana til 10 á kvöldin
bæði laugardag og sunnudag. Svo
endar hátíðin á mjög svo hressu
dansiballi í félagsheimilinu þar
sem áhorfendaverðlaun Skjald-
borgar, Einarinn, eru veitt. Þetta
er mjög lýðræðislegt og það eru
eingöngu áhorfendur sem velja
bestu myndina, engin dómnefnd,
enda er þessi hátíð fordómalaus og
dagskráin fjölbreytt eftir því.“
Hægt er að kynna sér dagskrána í
heild og lesa umfjöllun um einstak-
ar myndir á heimasíðunni skjald-
borg.com/heimildarmyndir. - fsb
Skjaldborg er fordómalaus
hátíð með fj ölbreyttri dagskrá
Þrettán nýjar íslenskar heimildarmyndir verða frumsýndar á Skjaldborgarhátíðinni á
Patreksfi rði um hvítasunnuna. Auk þess verður sýnt úr fi mm verkum í vinnslu og þrjár
myndir eft ir heiðursgest hátíðarinnar, Victor Kossakavosky.
HAFSTEINN
GUNNAR
„Þetta er
orðin ansi
rótgróin hátíð
sem hefur
þá sérstöðu
að frum-
sýna íslenskar
heimildar-
myndir.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stórsveit Reykjavíkur stendur
fyrir árlegu stórsveitamaraþoni á
veitingastaðnum Munnhörpunni í
tónlistarhúsinu Hörpu á morgun
frá klukkan 13 til 16. Að vanda
býður Stórsveitin til sín yngri
og eldri stórsveitum landsins og
leikur hver hljómsveit í u.þ.b. 30
mínútur.
Að þessu sinni koma eftirfar-
andi stórsveitir fram: Stórsveit
Reykjavíkur, Stórsveit Skóla-
hljómsveita Reykjavíkurborgar,
Stórsveit Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, Stórsveit Tónlistar-
skóla FÍH, Stórsveit Tónlistarskóla
Garðabæjar og Stórsveit Öðlinga.
Stórsveitamaraþonið er nú
haldið í 18. sinn en
þessi skemmtilega
uppákoma er þáttur
í uppeldisviðleitni Stórsveitar
Reykjavíkur. Dagskrá verð-
ur fjölbreytt og skemmti-
leg og gera má ráð fyrir að
flytjendur verði um 120.
Sveitirnar eru á ólíkum
getustigum og aldri; allt
frá börnum til eldri
borgara.
Aðgangur er
ókeypis og öllum
heimill á meðan
húsrúm leyfir,
en áhorfend-
um er frjálst
að koma og
fara á meðan
maraþonið
stendur yfir.
18. stórsveita-
maraþonið
MENNING