Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 24. maí 2014 | HELGIN | 27 HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN GÓÐ KAUP HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN MEÐAL MAS AI-MANNA Í sveitinni berst Þórunn gegn umskurði stúlkna og barnahjóna- böndum. Hún hefur margoft farið heim til stúlkna og boðið foreldrunum að senda þær með henni í skólann án endurgjalds í stað þess að semja um hjóna- band þeirra. MYND/GUNNI SAL BEÐIÐ TIL GUÐS Börnin taka fyrir andlitið þegar þau biðja saman til guðs í samkomusal skólans. Trúin er mikilvæg í starfi ABC því hún gefur börnunum von. MYND/FRÉTTABLAÐIÐ utan Íslands og fá styrktaraðila frá Bandaríkjunum. Nú reynum við að fá tvo styrktaraðila fyrir hvert barn. Þetta er búið að vera basl en þrátt fyrir það höfum við stækkað, fjölgað plássum og réðumst í upp- byggingu nýs skóla í sveitinni.“ Berst gegn umskurði stúlkna Öldungar í Masai-þjóðflokknum leituðu til Þórunnar og báðu um aðstoð við að stofna skóla í þorpi þeirra. Masai-ættbálkar eru mjög frumstæðir þar sem ungar stúlkur eru umskornar og seldar í hjóna- bönd í kringum 12 ára aldurinn. Afar fá börn þar eiga kost á mennt- un. „Við áttum engan pening en maður sér öll börnin, alla þján- inguna og enga möguleika á öðru vísi lífi og það er lífsins ómögulegt að hafna þeim. Við tróðum eins og við gátum í kojur og þau sitja ansi þétt í skólastofunum. Svo höldum við bara fast í trúna og vonum að við getum stækkað og tekið á móti fleirum.“ Trúin gefur von ABC-barnastarf byggist mikið á kristilegum gildum en áður en Þórunn hóf störf hjá ABC var hennar trú byggð á stjörnuspeki og einstaklingshyggju. „Kristin trú hafði alltaf verið mjög fjarlæg mér en svo ákvað ég bara að sjá hvort ég fyndi mig þar, sem ég svo sannarlega gerði. Það er mikilvægt fyrir mig að til- heyra einhverju stærra en bara mér sjálfri og fyrir mér liggur hamingjan þar.“ Þórunn segir trúna einnig mikil- væga börnunum því hún gefi þeim von. „Þessi börn hafa upplifað svo mikla höfnun, verið kastað út af heimilinu og á götuna, verið fyr- irlitin, skítug, lamin og misnotuð. Þau upplifa sig sem algjört rusl. Hjá okkur fá þau skilaboðin að guð hafi skapað þau og þau séu einstök og verðmæt. Það er eitthvað sem þau hafa aldrei upplifað og þannig vex sjálfsvirðing þeirra.“ Fann tilgang lífsins Fyrir utan börnin þúsund sem treysta á Þórunni á hún lítinn dreng, Daníel Heiðar, sem verður sex ára í sumar. „Hann var yfir- gefinn og við fengum hann dags- gamlan. Við fengum loksins ætt- leiðingarskjölin í þessari viku þannig að þetta er frágengið. Hann er lítill kraftaverkadrengur og mikill gleðigjafi.“ Þúsund börn, eiginmaður og sonur. Ætlar Þórunn aldrei að koma aftur til Íslands? „Ætli það nokkuð. Stundum langar mig að flytja heim og fara að vinna í sjoppu, afgreiða pyls- ur og ís. Því stundum er ég alveg uppgefin; bankareikningurinn tómur, biðlistinn óendanlegur og maður vill bjarga öllum. En það kemur bara inn á milli og svo herð- ir maður upp hugann. Það er svo margt eftir hérna og við erum í miðri baráttu. Allt heimsins gull kemur ekki í stað allra barnanna sem við höfum hjálpað og ekkert gæti gert mig glaðari en árangur- inn af starfi okkar. Áður en ég kom hingað snerist líf mitt um að finna sjálfa mig og tilgang lífsins. Það var í raun ekki fyrr en ég hætti leitinni og fór að gefa af sjálfri mér að ég fann þennan blessaða tilgang og sanna hamingju.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.