Fréttablaðið - 24.05.2014, Page 34
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Kópavogur er næststærsta sveitar-
félag landsins. Í byrjun árs voru
íbúar Kópavogs 32.308 talsins og
hefur íbúum fjölgað jafnt og þétt síð-
ustu áratugi, þó mest á fyrsta áratug
aldarinnar.
Kópavogur hefur síðustu kjör-
tímabil einkum verið stýrt af Sjálf-
stæðisflokki og Framsóknarflokki
sem myndað hafa meirihluta, ef frá
er talinn hluti kjörtímabilsins sem
nú er að ljúka.
Nú mynda Sjálfstæðisflokkur,
Framsóknarflokkur og Y-listi meiri-
hluta í bænum. Y-listi býður ekki
fram í kosningunum í vor og þrjú ný
framboð bjóða fram, Píratar, Dögun
og Björt framtíð.
Meirihlutinn fallinn
Meirihlutinn er fallinn í Kópavogi
ef marka má könnun Fréttablaðs-
ins. Sjálfstæðisflokkurinn fær 31,3
prósent atkvæða og er stærsti flokk-
urinn í bæjarstjórn. Það fylgi myndi
koma fjórum mönnum inn í bæjar-
stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn er því
á pari miðað við kosningar árið 2010.
Samfylkingin er næststærsti
flokkurinn með 20,9% atkvæða
og tvo menn kjörna. Afar stutt er
í þriðja mann Samfylkingarinn-
ar samkvæmt könnuninni. Þriðji
maður Samfylkingar er næsti mað-
urinn í bæjarstjórn og afar stutt er í
hann. Því þarf lítið að breytast til að
Samfylkingin nái þremur mönnum.
Björt framtíð mælist með 16,3%
atkvæða og tvo menn kjörna í
bæjar stjórn. Björt framtíð er nýtt
afl á sveitarstjórnarstiginu og virð-
ist vera að festa sig í sessi. Fram-
sóknarflokkurinn og VG koma næst
og ná bæði inn einum manni hvor.
Framsóknarflokkurinn er með
10,2% atkvæða samkvæmt könnun-
inni og VG 8,2%.
Píratar mælast með 7,6% fylgi og
ná einnig inn manni í bæjarstjórn.
Önnur framboð mælast með minna
fylgi og ná ekki inn manni í bæjar-
stjórn samkvæmt þessu.
Málefni barnafólks
Pétur Hrafn Sigurðsson er odd-
viti Samfylkingarinnar. Flokkur-
inn leggur áherslu á húsnæðismál,
skólamál og málefni barnafólks.
„Í fyrsta lagi viljum við auka
þjónustu við barnafólk í bænum,
auka frístundastyrk bæjarins
upp í 30.000. Frístundstyrkur-
inn hefur verið helmingi lægri
í Kópavogi miðað við nágranna-
sveitarfélögin og við viljum leið-
rétta þetta.“
„Húsnæðismálin eru eitt af
stóru málunum, við viljum efla
leigumarkaðinn í Kópavogi í sam-
vinnu við húsnæðis- og samvinnu-
félög og skoða hugmyndir ASÍ um
dönsku leiðina.“
Lækka skatta
Ármann Kr. Ólafsson er oddviti
Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæð-
isflokkurinn telur undanfarin ár
hafa kallað á skynsemi og aðhald
í rekstri Kópavogsbæjar. „Nú
þegar er flutt inn í stóran hluta af
þeim húsum sem fyrst var byrjað
á. Á sama tíma höfum við verið að
lækka skatta og gjöld á íbúa bæj-
arins og við munum halda áfram
á þeirri braut. Þegar allt er talið
hefur á síðustu árum verið lagður
grunnur að nýrri sókn Kópavogs-
bæjar og þar munu fjölskyldu- og
skólamálin verða sett í forgang.“
Frístundakort fyrir eldri borgara
Birkir Jón Jónsson er oddviti
Framsóknarflokksins. „Við vilj-
um koma til móts við þarfir
barnafjölskyldna í Kópavogi. Þar
eru skólamálin fyrirferðarmik-
il sem og íþrótta- og tómstunda-
málin. Við viljum auka þátttöku
ungs fólks í skipulögðu íþrótta-
og tómstundastarfi. Við viljum
frístundakort fyrir eldri borgara
að upphæð 20.000 kr. sem gæti
nýst í sund, tónlistarnám, nám-
skeið eða tómstundir.“
Gegnsæi og sjálfsákvörðunarréttur
Ingólfur Árni Gunnarsson er
oddviti Pírata. „Við píratar í
Kópavogi byggjum öll stefnumál
á tveimur grunnstefjum, gegnsæi
og sjálfsákvörðunarrétti. Við vilj-
um að Kópavogsbær miðli öllum
upplýsingum um rekstur bæjar-
félagsins til bæjarbúa á auðlesinn
hátt. Við viljum einnig að íbúar
fái aukið val um þá þjónustu sem
bærinn veitir.“
Þjónandi forysta
Ólafur Gunnarsson er oddviti VG
og félagshyggjufólks. „Húsnæðis-
mál er höfuðmálið og við höfum
lagt fram tillögu um eitt leigu-
félag á höfuðborgarsvæðinu með
samræmdum reglum fyrir alla.
Við leggjum einnig mjög mikla
áherslu á skólamál og að það
verði skilað inn í kerfið aftur því
fjármagni sem hefur verið lekið
út úr kerfinu frá hruni. Við vilj-
um fyrst og fremst vera þjónandi
forysta, að við séum ekki endilega
yfirvaldið heldur þjónar fólksins
og það eigi að vera grunnstefið í
vinnu bæjarstjórnar.“
Húsnæðis og skólamál
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
er oddviti Bjartrar framtíðar.
„Björt framtíð leggur áherslu á
húsnæðismál og við þurfum að
svara þörfum íbúa í Kópavogi
hvað varðar framboð um minni
íbúðir, leiguhúsnæði og félags-
legt húsnæði. Skólamálin eru
stóra málið og við viljum auka
samvinnu milli skóla, frístunda-
starfs, íþrótta- og tómstunda-
starfs.“
„Við viljum ný viðhorf í þjónustu,
við lítum á Kópavog sem þjón-
ustufyrirtæki,“ segir Theodóra.
Íbúalýðræði og húsnæðismál
Árni Þór Þorgeirsson er oddviti
Dögunar og umbótasinna.
„Húsnæðismál. Það vantar
húsnæði fyrir ungt fólk, minni
íbúðir og að byggja upp leigu-
markaðinn. Það er erfitt ef ein-
staklingar eru kannski að finna
sér leiguíbúðir og þær eru allt
of stórar og dýrar og henta ekki
ungu fólki. Einnig viljum við
nota íbúalýðræðið á þann hátt að
íbúar geti forgangsraðað verkefn-
um sjálfir.“
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR KÓPAVOGUR
FYLGI FLOKKANNA
10,2%
31,3%
20,9%
0,7%
4,2%
8,2%
7,6%
16,3%
Könnun
2014
7,2%
30,2%
28,1%
9,8%
13,8%
10,2%
0,7%
Kosningar
2010
Sjálfstæðisflokkurinn
Framsókn
Vinstri græn og félagshyggjufólk
Samfylkingin
Fjöldi bæjarfulltrúa
Björt framtíð
Píratar
F-listinn
Næstbesti flokkurinn
Listi Kópavogsbúa
Dögun og umbótasinnar
ÁRIÐ 2010
30.357
bjuggu í
Kópavogi
Í DAG
32.308
búa í
Kópavogi
ÁRIÐ 2010
242%
skuldaviðmið
Í DAG
185%
Skuldaviðmið
SKULDIR LÆKKUÐU UM
2 MILLJARÐA Á ÁRINU
Kópavogur
Hafnarfjörður
Reykjavík
AÐFERÐAFRÆÐIN Hringt var í 1.075 þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 21. maí. Svarhlutfallið var 74 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur
skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef
ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Alls tóku 63,5 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
FRAMBOÐSLISTAR Í KÓPAVOGI
D SjálfstæðisflokkurinnB Framsóknarflokkurinn
1. sæti Birkir Jón
Jónsson, fv. alþingis-
maður/MBA
2. sæti Sigurjón
Jónsson markaðs -
fræðingur
3. sæti Guðrún Jónína Guðjónsdóttir,
hjúkrunarfr./lífsstílsleiðbeinandi
4.sæti Kristinn Dagur Gissurarson,
Viðskiptafræðingur
1.sæti Ármann Kr.
Ólafsson, Bæjarstjóri
2.sæti Margrét
Friðriksdóttir, Skóla-
meistari
3.sæti Karen E. Hall-
dórsdóttir, Ms mannauðsstjórnun
4.sæti Hjördís Ýr Johnson, Kynn-
ingarstjóri
SamfylkinginS
1. sæti Pétur Hrafn
Sigurðsson deildar-
stjóri
2. sæti Ása Richards-
dóttir
verkefnastjóri
3. sæti Unnur Tryggvadóttir Flóvenz
háskólanemi
4. sæti Hannes Friðbjarnarson
tónlistarmaður
1. sæti Árni Þór
Þorgeirsson
frumkvöðull
2. sæti Jónína Björk
Erlingsdóttir MPM
3. sæti Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir mannauðsstjóri
4. sæti Baldvin Björgvinsson kennari
Dögun og umbótasinnarT
Vinstri græn og félagshyggjufólkV
1. sæti Ólafur Þór
Gunnarsson,
öldrunarlæknir/
bæjarfulltrúi
2. sæti Margrét Júlía
Rafnsdóttir,
umhverfisfræðingur/varabæjarfulltrúi
3. sæti Sigríður Gísladóttir
dýralæknir
4. sæti Arnþór Sigurðsson, forritari/
varabæjarfulltrúi
1. sæti Hjálmar
Hjálmarsson, leikari
2. sæti Donata H.
Bukowska kennari
3. sæti Ásdís Helga
Jóhannesdóttir, BA í
íslensku
4. sæti Nadia Borisdóttir, ráðgjafi
Mannréttindastofu
Næstbesti flokkurinnX
PíratarÞ
1. sæti Ingólfur Árni
Gunnarsson
háskólanemi
2. sæti Einar Páll
Gunnarsson nemi
3. sæti Gunnar Þór
Snorrason nemi
4. sæti Bjartur Thorlacius stúdent
1. sæti Theódóra S.
Þorsteinsdóttir
lögfræðingur
2. sæti Sverrir Óskars-
son félagsráðgjafi
3. sæti Hreiðar Odds-
son, grunnskólakennari/verslunarstjóri
4. sæti Ragnhildur Reynisdóttir, sölu-
og markaðstjóri
Björt framtíðÆ
D-listi með sama fylgi og 2010
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Y-lista er fallinn samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Líkt og í Hafnarfirði eru aðeins tveir
möguleikar á myndun tveggja flokka meirihluta, Sjálfstæðisflokks annars vegar og Bjartrar framtíðar eða Samfylkingar hins vegar.
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is