Fréttablaðið - 24.05.2014, Page 40
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
Aðfaranótt fyrsta dag nóv-embermánaðar árið 2004 var lögreglan kvödd að fjölbýlishúsi í Kópavogi. Ung kona var látin og eiginmaðurinn játaði á
staðnum að hafa banað konunni. Um
var að ræða fjölskyldufólk sem lifði
hefðbundnu lífi og var ekki í óreglu.
Morðið var ástríðuglæpur, framið í
stundarbrjálæði.
„Oft er um að ræða ástríðuglæp
milli maka eða fyrrverandi maka
þar sem annar aðilinn kemst að því
að hann hafi með einhverjum hætti
svikinn, t.d. haldið fram hjá. Yfir-
leitt er um að ræða skyndilegar
aðstæður sem koma gerandanum að
óvörum. Fórnarlömbin hafa líka oft
verið brotleg í sambandinu með ein-
hverjum hætti.“ Þetta segir Anna
Kristín Newton réttarsálfræðingur.
Ástríðuglæpir skera sig úr
Ástríðuglæpir skera í sig mörg-
um tilfellum úr þegar bakgrunn-
ur afbrotamannsins er skoðaður
eins og var í tilfelli eiginmannsins
í Hamraborg en hann hafði aldrei
komið við sögu lögreglu og þótti
fyrir myndarborgari.
„Oft er um að ræða einstaklinga
sem öllu jöfnu hafa ekki verið að
brjóta af sér með neinum hætti. Það
er ólíkt því sem við sjáum hjá hinni
hefðbundnu afbrotamanneskju sem
er oft í margs konar brotum. Hún
er í neyslu, brýst inn í bíla og stelur
í búðum. Einstaklingar sem fremja
ástríðuglæpi eins og við köllum þá
eru oft bara venjulegt fólk.
Ellefu ára dómur
Eiginmaðurinn í Hamraborg var í
Héraðsdómi Reykjaness dæmdur
til níu ára fangelsisvistar en Hæsti-
réttur þyngdi dóminn um tvö ár.
Foreldrum ungu konunnar fannst
dómurinn yfir eiginmanninum í
fyrstu vera léttvægur.
„Okkur fannst það á sínum tíma
vera lélegur dómur. Við hefðum
viljað hafa hann mikið þyngri. Við
missum stúlkuna og okkur fannst
hann sleppa billega frá þessu. Hann
hafði rétt á að sjá börnin hálfsmán-
aðarlega. Þá þurftum við alltaf að
fara upp á Litla-Hraun í alls kyns
veðrum og stundum leist okkur
ekkert á blikuna. Með tímanum
vorum við farin að vona að þetta
yrði styttra. Þá yrði þetta ekki eins
erfitt fyrir þau. “
Ekkert einsdæmi
Dómurinn sem eiginmaðurinn í
Hamraborg fékk er alls ekkert
einsdæmi þegar kemur að íslensk-
um ástríðuglæpum. Í sambærilegu
máli árið 1961 banaði maður eigin-
konu sinni eftir að hún hrópaði nafn
annars manns í rúmi þeirra og var
sá dæmdur í sex ára fangavist. Þetta
mál var einmitt haft til hliðsjónar í
vörn mannsins. Árið 1992 var ung
kona einnig dæmd í sex ára fangelsi
fyrir að stinga unnusta sinn í stund-
arbrjálæði. Í öllum þessum málum
þóttu sérstakar refsilækkunar-
ástæður eiga við vegna aðstæðna.
Fjallað verður ítarlega um málið
og fleiri hliðum velt upp í lokaþætti
Íslenskra ástríðuglæpa á sunnudag
klukkan 20.50 á Stöð 2.
Oft er um að
ræða einstaklinga sem
öllu jöfnu hafa ekki verið
að brjóta af sér með
neinum hætti.
Anna Kristín Newton
réttarsálfræðingur
ANNA KRISTÍN NEWTON RÉTTARSÁLFRÆÐINGUR.
Innritun í
Suzukitónlistarskólann
í Reykjavík
Innritun fyrir skólaárið 2014-2015 er hafin.
Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík býður
uppá suzukikennslu fyrir nemendur á
aldrinum 4ja til 7 ára.
Kennt er á fiðlu, víólu, píanó, selló og gítar.
Skrifstofa skólans er opin milli kl. 9.00-13.00
mánudaga-föstudaga.
Nánari upplýsingar í síma 551-5777 eða á
postur@suzukitonlist.is
HARMLEIKUR Í HAMRABORG Ung kona fannst látin í íbúði í fjölbýlishúsi í Kópavogi árið 2004 og eiginmaðurinn játaði á staðnum. Um var að ræða fjölskyldufólk sem lifði hefðbundu lífi.
Ástríðuglæpur í stundarbrjálæði
Á Íslandi ganga um 1.600 pör í hjónaband á ári hverju. Árið 2001 var ungt íslenskt par í þessum fjölmenna hópi. Allt lífið
var fram undan og sambandið gekk eins og í sögu fyrst um sinn. Þau komu sér vel fyrir í lítilli íbúð og eignuðust tvö börn.
Þremur og hálfu ári eftir gleðistundina upp við altarið hafði sigið á ógæfuhliðina í hjónabandinu sem endaði með ástríðuglæp.