Fréttablaðið - 24.05.2014, Page 54
| ATVINNA |
Bókari
Félag á byggingamarkaði óskar eftir að ráða
vanan bókara amk tímabundið í 3 mánuði
• Vinnutími sveigjanlegur – möguleiki á framtíðarstarfi.
• Verður að geta hafið störf fljótlega.
Ferilskrá óskast send á box@frett.is fyrir 28. maí
Yfirlæknir
fyrir heilsugæslustöðina
í Laugarási!
Laus er til umsóknar starf yfirlæknis við heilsugæslustöðina
í Laugarási. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf
1.október eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2014.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heilsugæslulækna er m.a.: Almennar lækningar,
heilsuvernd, vaktþjónusta og kennsla nema.
Hæfnikröfur
- Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun
í heimilislækningum.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
Starfs- og stjórnunarreynsla er metin.
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla
af teymisvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands
og fjármálaráðherra.
Góður læknisbústaður er í Laugarási og umhverfið
stórfenglegt.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar
sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar
um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknar-
störf. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögn-
um og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSu við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Reykdalsson framkvæmda-
stjóri lækninga HSu (oskar@hsu.is) í síma 8681488 og
læknarnir í Laugarási þeir Pétur Skarphéðinsson
(peturska@hsu.is) og Gylfi Haraldsson (Gylfi@hsu.is)
í síma 4805300
Umsóknir berist til Óskars Reykdalssonar, framkvæmda-
stjóra lækninga, HSu v/Árveg, 800 Selfossi.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu
heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi.
Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20.000 íbúa á Suðurlands-
undirlendinu.
Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi
með 28 legu- og dagdeildarrúm og 40 hjúkrunarrúm.
Stofnunin sinnir ennfremur heilbrigðisþjónustu á Litla Hrauni.
Alls eru um 226 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Lausar stöður í grunnskóla
Áslandsskóli (585 4600 leifur@aslandsskoli.is)
• Almenn kennsla í yngri deild
Hraunvallaskóli (664 5872 lars@hraunvallaskoli.is)
• Kennsla á yngsta stigi
• Kennsla á miðstigi
• Enskukennsla
• Þemakennsla(samfélagsfr., náttúrufr. og lífsleikni)
• Kennsla í sviðslistum (leiklist og dans)
• Sérkennsla
Hvaleyrarskóli (565 0200 helgi@hvaleyrarskoli.is)
• Umsjónarkennsla á miðstigi
• Náttúrufræðikennsla á unglingastigi
• Heimilisfræðikennsla
• Sérkennsla
• Skólaliði
Lækjarskóli (664 5877 haraldur@laekjarskoli.is)
• Umsjónarkennsla á yngsta og miðstigi
• Sérkennsla
• Skólaliði
• Kennsla í móttökudeild (50%)
• Deildarstjóri með reynslu af sérkennslu
Setbergsskóli (565 1011 maria@setbergsskoli.is)
• Íþróttakennsla
• Skólaliðar/baðvarsla
• Stuðningsfulltrúi
Víðistaðaskóli (595 5800 hronn@vidistadaskóli.is)
• Umsjónarkennsla á yngsta stigi
• Sérkennsla
• Kennsla í upplýsinga- og tæknimennt
• Kennsla á unglingastigi í íslensku, og samfélagsfræði
• Skólaliði
• Stuðningsfulltrúi
Öldutúnsskóli (555 1546 valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is)
• Náttúrufræðikennsla á unglingastigi
• Stærðfræðikennsla á unglingastigi til áramóta
• Sérkennsla
• Dönskukennsla
Allar upplýsingar gefa skólastjórar viðkomandi skóla.
Sjá nánar á heimasíðum skólanna.
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2014.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Fræðslustjóri
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
Óskar að ráða starfskraft til afgreiðslustarfa.
Hlutastarf kemur til greina. Reynsla nauðsynleg.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfang
Snyrtivorur@simnet.is fyrir 30.maí
Álfheimum 74 • s. 568 5170
Öldrunarheimili Akureyrar
Öldrunarheimili Akureyrar óska eftir hjúkrunarfræðingum,
bæði til sumarafleysinga og til framtíðar. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 50-100% störf þar sem unnið er á morgun-,
kvöld- og helgarvöktum, mislangar vaktir annars vegar og
næturvöktum hins vegar. Viðkomandi þarf að vera í stakk
búinn til að axla ábyrgð á hjúkrun á fleiri deildum en sinni
eigin og er því farið fram á nokkra starfsreynslu.
Á Öldrunarheimilum Akureyrar fer fram fjölbreytt og
áhugaverð starfsemi sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir
Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan
heimilsbrag og lífsgæði íbúanna.
Skipulögð fræðsla er fyrir nýtt starfsfólk.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar www.akureyri.is þar sem sótt er um
rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2014
Baadermaður
HB Grandi óskar ef tir að ráða mann til að hafa y firum-
sjón með viðhaldi á Baadervélum í f iskiðjuveri félagsins
í Reykjavík. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af
viðhaldi Baadervéla. Menntun í vélvirkjun er æskileg.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Gunnarsson í síma
858 1054. Umsóknir skal senda á póst fangið
sigurður@hbgrandi.is
24. maí 2014 LAUGARDAGUR6