Fréttablaðið - 24.05.2014, Side 96
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
„Við erum með verk eftir ung tón-
skáld sem eru framtíðarfólkið
okkar,“ byrjar Hilmar Örn Agn-
arsson kórstjóri þegar hann er
beðinn að lýsa í stórum dráttum
tónleikum Kammerkórs Suður-
lands í Hörpu. Hann nefnir fyrst
Pál Guðmundsson á Húsafelli sem
samdi lagið Ég heilsa þér Kjarval
við ljóð eftir afa sinn og nafna.
„Páll leikur á flautu sem hann
bjó til úr sjö ára gömlum rabar-
bara og er með hreinum tón eins
og úr samblandi af panflautu og
trompet,“ segir Hilmar Örn og
heldur áfram. „Magga Stína á eitt
nýju laganna. Hún hefur verið á
æfingum með okkur að elta sánd-
ið. Strákurinn minn, Georg Kári,
sem er í framhaldsnámi í Banda-
ríkjunum, er með lag sem heitir
Nótt. Vala Gestsdóttir er með ynd-
islegt verk við stórkostlegan texta
eftir ömmu sína, móður Þórunn-
ar og Lilju Valdimars. Jack White
fékk Sjón til að semja texta við sitt
verk sem fjallar um vatn í öllum
myndum og miklar dansæfingar
hafa staðið yfir hjá kórnum því
hann er á hreyfingu meðan hann
flytur það.“
Þá er komið að tónlist Sir Johns
Tavener og Hilmar Örn nefnir
strax Patriciu Rozario sópransöng-
konu sem hann segir á heimsmæli-
kvarða. „Patricia frumflutti flest
verk Taveners. Ég bauð henni á
tónleikana okkar í London í fyrra
og það er eins og hún hafi alla tíð
þekkt okkur. Hún syngur um hina
eilífu sólarupprás og ég fékk bar-
rokkhljómsveit til að spila með
henni. Svo höldum við áfram með
Tavener, meðal annars Shake-
speare-sonnettur hans. Það er
frumflutningur á Íslandi og stór
viðburður. Sonnetturnar voru það
síðasta sem Tavener samdi og í
textanum stendur: Ekki syrgja
mig þegar ég er farinn. Hann dó
einmitt þremur dögum áður en við
sungum í London.“
Hilmar Örn telur upp fleiri lista-
menn sem koma fram með kórn-
um: Adrian Peacock djúpbassa-
söngvara, Björgu Þórhallsdóttur
sópran, Elísabetu Einarsdóttur
sópran og Hrólf Sæmundsson barí-
tón. Einnig Tuiv Hirv sópran, sem
syngur einsönginn í Shakespeare-
sonnettunum. „Ég var að kom-
ast að því að Tuiv og Patricia eru
miklir vinir.“ segir hann. „Svona
eru tengingar í allar áttir.“
Er kórstjórinn ekkert stressað-
ur fyrir svona stórtónleika? „Ég er
ótrúlega rólegur. Þetta er svo gott
fólk sem er með mér og ég finn
fyrir mikilli eftirvæntingu.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
16 í dag í Norðurljósasal Hörpu.
Þeir eru á dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík og verða endurteknir
28. maí í Skálholti. gun@frettabladid.is
Miklar dansæfi ngar hafa
staðið yfi r hjá kórnum
Kammerkór Suðurlands heldur tónleika í Hörpu í dag. Þrjár Shakespeare-sonn ettur eft ir Sir John
Tavener munu hljóma og er um frumfl utning á Íslandi að ræða. Einnig verða fl utt verk eft ir ung tónskáld,
Páll á Húsafelli leikur óð til Kjarvals á rabarbarafl autu og Patricia Rozario syngur með barrokksveit.
Í HÖRPU Hilmar Örn kórstjóri og Patricia Rozario sópransöngkona búa sig undir
tónleikana full eftirvæntingar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Þetta er sumarsýning Ketil-
hússins og það er mikill fengur
að henni,“ segir Ármann Agn-
arsson sýningarstjóri um yfir-
litssýningu Gísla B. Björns-
sonar, sem opnuð verður í
Ketilhúsinu á Akureyri klukk-
an 15 í dag. Hún nefnist Fimm
áratugir í grafískri hönnun.
Þar er horft yfir feril Gísla og
sýnd gömul myndbrot af auglýs-
ingastofu hans en hann er einn
atkvæðamesti grafíker íslenskr-
ar hönnunarsögu. Mörg af
þekktustu vörumerkjum lands-
ins eru hans smíð. Má þar nefna
merki Sjónvarpsins, Norræna
félagsins og Hjartaverndar.
Á morgun, sunnudag, klukk-
an 14 heldur Gísli fyrirlestur í
Ketilhúsinu undir yfirskriftinni
Góð merki og ekki. Aðgangur er
ókeypis bæði að sýningunni og
fyrirlestrinum.
Sýningin kemur frá Hönnunar-
safni Íslands. - gun
Hönnun Gísla B
í Ketilhúsinu
HÖNNUÐURINN Mörg af þekktustu
vörumerkjum landsins eru eftir Gísla.
MYND/HÖNNUNARSAFN ÍSLANDS
• Breyta reglum þannig að nýta megi allan styrkinn á einum
stað, þar með talið í tónlistarnám
• Nýta íþróttahúsin betur í tengslum við dægradvöl og styðja
við aukna fjölbreytni hennar
• Byggja nýtt íþróttahús við Vatnsendaskóla
• Hafa frítt í sund fyrir eldri borgara og börn 10 ára og yngri
Við munum
tvöfalda íþrótta- og
tómstundastyrkinn
Áfram Kópavogur!