Fréttablaðið - 24.05.2014, Síða 120
NÆRMYND
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Bryn Terfel á Listahátíð
á morgun. Óseldir
miðar á tónleikadags-
tilboði 2 fyrir 1.
Sala hefst kl. 10:00.
www.listahatid.is
Aron Jóhannsson
Knattspyrnumaður
ALDUR: 24
FORELDRAR: Helga Guðmundsdóttir
og Jóhann Gíslason
Knattspyrnukappinn Aron Jóhannsson
verður fyrsti Íslendingurinn til að spila í
heimsmeistarakeppninni í fótbolta en hann
var í vikunni valinn í 23 manna HM-hóp
bandaríska landsliðsins. Mótið fer fram í
Brasilíu í sumar en Aron valdi sem kunnugt
er að spila fyrir bandaríska liðið frekar en
það íslenska.
„Aron er mikill húmoristi og alltaf
léttur í lund. Þó er alltaf stutt í vit-
leysuna hjá honum. Aron er mikill vinur
vina sinna og þrátt fyrir allan þennan
léttleika er mikill metnaður í því sem
hann tekur sér fyrir hendur. Ef við
förum út í gallana þá er hann,
samkvæmt kærustunni,
algjörlega laus við það
að vera rómantískur.
Svo kom hann auðvitað
í veg fyrir það að Fjölnir
ynni KR í úrslitaleik árið
2009.“ Magnús Agnar
Magnússon,
umboðsmaður
„Aron er ótrúlega góður við fólkið í
kringum sig og hann er 100% með
hjartað á réttum stað. Hann er alltaf
boðinn og búinn að hjálpa hverjum
sem er. Aron er ótrúlega metnaðar-
fullur en kann ekki að fara í nammi-
bindindi. Ef ég kem frá Íslandi með
Þristapoka og Nóa Kropp þá hverfur
það strax. Hann er þó með þann
hrikalega galla að vera alltaf
í símanum, á Twitter,
Instagram og Facebook.
Það er alveg hrikalega
illa séð þegar maður er
að reyna að eiga róman-
tíska stund með honum.“
Bryndís Stefánsdóttir,
kærasta
„Aron er ofboðslega góður og hlýr
og er alveg yndislegur sonur. Hans
stærsti kostur er eflaust sá að hann
kann ekki að skrökva. Aron er mjög
heiðarlegur gagnvart okkur og gagn-
vart sjálfum sér og svo er
hann ofboðslega mikill
húmoristi. Hann er hins
vegar ferlegur í því að
taka til og ryksuga.“
Helga Guðmundsdóttir,
móðir