Fréttablaðið - 13.08.2014, Side 6
13. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| fRéttIR | 6
1. Hlut í hvaða fyrirtæki hyggjast
Arion banki og lífeyrissjóðir selja?
2. Hver er forstjóri Sjúkratrygginga?
3. Hve mikið hefur innflutningur
nautakjöts aukist frá því í fyrra?
SVöR
1. Bakkavör 2. Steingrímur Ari Arason
3. Innflutningur hefur tífaldast
EfnAhAGSMál Samkvæmt árs-
hlutauppgjöri Hagsýslu ríkisins
fór Landsbókasafn/Háskólabóka-
safn 106 milljónir fram úr fjár-
heimildum á fyrri hluta ársins.
„Við kaupum áskriftir að erlend-
um fræði- og vísindatímaritum,
fyrir skóla landsins, stofnanir
og bókasöfn og tryggjum að allir
landsmenn hafi aðgang að þessu
efni í gegnum vefinn Hvar.is
Undanfarin ár höfum við sent út
reikninga fyrir þessum áskrift-
um í júní en í ár dróst það fram í
júlí og það skýrir 60 til 70 millj-
ónir af framúrkeyrslunni,“ segir
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
landsbókavörður.
Ingibjörg segir að það sé nokk-
uð flókið reiknilíkan á bak við
áskriftarreikningana, sem hafi
byggst á tölum frá Hagstofunni.
Það hafi hins vegar orðið niður-
skurður á Hagstofunni og stöðu-
gildi þess sem sá um tölurnar
hafi verið lagt niður. „Niður-
skurður á Hagstofunni orsakaði
vandræði hjá okkur,“ segir lands-
bókavörður.
Hún segir að það hafi því
dregist að senda út reikningana.
Menntamálaráðuneytið hafi loks
útvegað tölur inn í reiknilíkanið
og þá hafi verið hægt að senda
út reikningana. Reikningarnir
verði væntanlega greiddir innan
skamms.
Ingibjörg segir að kjarasamn-
ingar sem gerðir voru á fyrri
helmingi árisins hafi líka sett
strik í reikninginn auk annarra
kostnaðarhækkana en þrátt fyrir
það eigi hún von á að þegar árið
verður gert upp í heild verði
Landsbókasafn/Háskólabóksafn
innan fjárheimilda.
Veðurstofa Íslands fór 123
milljónir króna fram úr heimild-
um á fyrri helmingi ársins, sam-
kvæmt útreikningum Hagsýsl-
unnar. Veðurstofan hafnar því
og segir að rekstur Veðurstofu
Íslands sé að miklu leyti fjár-
magnaður með sértekjum eða
sem nemur tæpum 60 prósent af
heildarfjármögnun stofnunarinn-
ar og má þar nefna þjónustu við
alþjóðaflugið, Ofanflóðasjóð og
þjónustu- og rannsóknarverkefni.
Vegna þessa er dreifing tekna
innan ársins ójöfn og er reynt að
gera ráð fyrir því í greiðsluáætl-
un ársins. Umfjöllunin í fréttum
byggist á ársfjórðungsstöðu fjár-
reiða ríkissjóðs en ekki var búið
að færa allar sértekjur fyrstu sex
mánuði ársins til tekna í bókhaldi
stofnunarinnar þegar staðan var
tekin út, sem skýrir frávikið.
johanna@frettabladid.is
100 milljónir fram
úr fjárheimildum
Niðurskurður á Hagstofunni varð til þess að Landsbókasafn/Háskólabókasafn gat
ekki sent út reikninga á réttum tíma. Það varð til þess að Hagsýsla ríkisins segir
safnið hafa farið 100 milljónir króna fram fjárheimildum á fyrri hluta ársins.
fjáRlAGAnEfnD Fjárlaganefnd Alþingis kom saman til fundar í gær. Á fundinn voru kallaðir fulltrúar ráðuneyta sem bera
ábyrgð á stofnunum sem eru komnar fram úr fjárheimildum ársins. FréttAblAðið/Vilhelm.
Fjárlaganefnd kom til fundar í gær til að ræða framúrkeyrslu stofnana á
vegum ríkisins. Komið hefur fram hjá formanni og varaformanni nefndar-
innar að framúrkeyrsla stofnana sé litin alvarlegum augum.
Fulltrúar þriggja ráðuneyta komu til fundar við nefndina að þessu sinni;
mennta- og menningarmálaráðuneytinu, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyt-
inu og umhverfisráðuneytinu.
Vigdís hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði að þessi þrjú
ráðuneyti hefðu fært nægar skýringar á framúrkeyrslum sinna undir-
stofnana og því ekki þörf á að forstöðumenn stofnana þyrftu að koma
fyrir nefndina.
Fulltrúar velferðarráðuneytis og innanríkisráðuneytis koma á fund
nefndarinnar þann 25. ágúst en undir þeim ráðuneytum eru Sjúkratrygg-
ingar og Vegagerðin sem stefna hvað lengst fram úr fjárheimildum.
fjárlaganefnd fundar um framúrkeyrslu
UtAnRíKISMál Anders Fogh
Rasmussen, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, kemur
til Íslands í dag í boði Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsætis-
ráðherra. Heimsóknin er liður í
undirbúningi fyrir leiðtogafund
bandalagsins, sem haldinn verður
í Wales dagana 4.-5. september.
Jafnframt er um kveðjuheimsókn
framkvæmdastjórans að ræða, en
hann lætur af störfum í lok næsta
mánaðar. Anders Fogh Rasmus-
sen mun meðal annars eiga fundi
með forsætisráðherra og Gunn-
ari Braga Sveinssyni utanríkis-
ráðherra og heimsækja Alþingi á
meðan á heimsókn hans stend-
ur. Framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins heldur af landi
brott að morgni fimmtudags. - jhh
Anders Fogh til Íslands:
Hittir ráðherra
og alþingismenn
KEMUR í DAG heimsóknin er í kveðju-
skyni. NordicphotoS/AFp
SAMfélAGSMál Sala á nema-
kortum fyrir veturinn 2014-2015
hjá Strætó bs. hófst í gær. Alls
seldust 4.161 nemakort á síð-
asta vetri. Kortið kostar 42.500
og gildir til 31. ágúst 2015. Séu
farnar tvær ferðir á dag fimm
sinnum í viku jafngildir það því
að hver ferð kosti 82 krónur.
Námsmenn sem skráðir eru
til náms í framhaldsskóla eða
háskóla á höfuðborgsvæðinu og
með lögheimili í einu þeirra sveit-
arfélaga sem aðild eiga að Strætó
bs. eiga þess kost að kaupa kort-
in sem veita þeim aðgang að
almenningsvögnum Strætó bs. á
höfuðborgarsvæðinu. - jhh
Hagstæð kjör fyrir nema:
Sala á nema-
kortum hafin
StRætó Það er ódýrara fyrir náms-
menn að fá far en aðra borgarbúa.
FréttAblAðið/VAlli
ÞInGEyjARSVEIt Fyrirhugaðar eru framkvæmd-
ir við Goðafoss fyrir um 30 milljónir króna.
Deiliskipulagsvinna er langt á veg komin.
Tillögurnar eru unnar af Landslagi ehf. og
Glámu-Kím arkitektum fyrir Þingeyjarsveit.
Tillögurnar eru nú í vinnslu og búið er að
kynna þær fyrir landeigendum og í skipulags-
og umhverfisnefnd Þingeyjarsveitar og hafa
þær alls staðar fengið jákvæðar undirtektir.
Stefnt er að því að endanleg tillaga að deili-
skipulagi fari í formlegt deiliskipulagsferli
síðar á þessu ári.
Búið er að veita styrki til verkefnisins úr
Framkvæmdasjóði ferðamannastaða upp á 15
milljónir króna vegna stígagerðar, merking-
ar og uppgræðslu samkvæmt deiliskipulagi.
Einnig var veittur jafn hár styrkur vegna
átaks til uppbyggingar á ferðamannastöðum
2014.
Helga Erlingsdóttir, fyrrverandi sveitar-
stjóri Hörgársveitar, hefur verið ráðin tíma-
bundið sem sérstakur verkefnisstjóri til að
halda utan um framkvæmdirnar við Goðafoss.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur lýst
ánægju sinni með verkefnið þar sem Goðafoss
sé fjölsóttasti ferðamannastaður sveitarfélags-
ins og telur brýnt að laga aðgengi ferðamanna
við fossinn. - sa
Uppbygging bættrar aðstöðu ferðamanna með stígagerð og nýju bílastæði fyrirhuguð við Goðafoss:
30 milljónir í framkvæmdir við Goðafoss
GoÐAfoSS búið er að veita 15 milljóna króna styrk til
verkefnisins. FréttAblAðið GVA
Undan-
farið ár höfum
við sent út
þessa reikn-
inga fyrir
þessum
áskriftum í
júní en í ár dróst það fram
í júlí og það skýrir 60-70
milljónir af framúr-
keyrslunni.
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
landsbókavörður.
ARGEntínA, AP Bandaríska stór-
fyrirtækið RR Donnelly, sem er
á lista yfir 500 stærstu fyrirtæki
heims, hefur lokað verksmiðju
sinni í Argentínu og sagt upp 400
manns.
Þetta fengu verkamenn fyrir-
tækisins skyndilega að vita í
gær, þegar þeir mættu til vinnu.
Engar skýringar voru gefnar
aðrar en þær að efnahagsvandinn
sé orðinn óviðráðanlegur.
Þá eru þúsundir flugfarþega
strandaglópar í höfuðborginni
Buenos Aires vegna verkfalls
flugmanna, sem krefjast 35 pró-
senta launahækkunar.
Greiðsluþrot argentínska ríkis-
sjóðsins nýverið hefur ekki bætt
úr skák. - gb
Róður þyngist í Argentínu:
Uppsagnir og
verkföll herja á
SAGt UPP Verkamaður stendur við
hjólbarða, sem kveikt hefur verið í fyrir
utan höfuðstðvar rr donelly í buenos
Aires. FréttAblAðið/Ap
KEflAVíKURflUGVöllUR Farþegum
sem koma til landsins hefur fjölgað
stórlega á undanförnum árum. Þar með
fjölgar starfsmönnum. FréttAblAðið/GVA
SAMGönGUR Starfsmenn Isavia í
sumar eru alls 1.135 í 1.056 stöðu-
gildum sem er 6,5% aukning frá
sama tíma í fyrra. Þessi fjölg-
un starfsmanna fylgir auknum
fjölda ferðamanna sem fer um
Keflavíkurflugvöll, en fjöldinn
fór yfir 500 þúsund í júlí.
Meðalfjöldi starfsmanna utan
háannatíma er að jafnaði 884 í
791 stöðugildi. Sumarstarfsmenn
eru alls 283 og langflestir í Kefla-
vík eða alls 254.
Þá hafa 14 nýir nemar í flug-
umferðarstjórn tekið til starfa
hjá Isavia en þar starfa alls um
100 flugumferðarstjórar í flug-
stjórnarmiðstöðinni í Reykja-
vík og flugturnunum í Keflavík,
Reykjavík og á Akureyri. - jhh
Nærri 300 í sumarstörfum:
Starfsmönnum
Isavia fjölgar
VEIStU SVARIÐ?