Fréttablaðið - 13.08.2014, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. ágúst 2014 | SKOÐUN | 15
Systurdóttir mín er fædd í
febrúar 2004. Hún er bráðger
og er ári á undan í skóla. Hún
æfir fótbolta og frjálsar með
Breiðabliki og fylgir sínum
bekk í íþróttum þ.a. hún er
einnig einu ári á undan þar.
Ekki af því að hún sé eitt-
hvað yfirburða góð heldur út
af félagslega þættinum, þar
eru hennar vinkonur.
Nú hefur það gerst í tví-
gang að hún hefur ekki feng-
ið að keppa á mótum með
vinkonum sínum vegna þess að
hún er ári yngri. Mikil tilhlökkun
hefur því breyst í vonbrigði. Bæði
á Ungmennalandsmóti UMFÍ sem
fór fram fyrstu helgina í ágúst
og á Meistaramóti FRÍ 11-14 ára
sem fram fer á Akureyri
næstu helgi er gerð krafa
um að börn séu 11 ára á
almanaksárinu og engar
undanþágur veittar.
Ég skil að það verða
að vera skýrar reglur
en menn verða samt að
hugsa. Innan við 1% barna
er ári á undan í grunn-
skóla. Það gefur augaleið
að vinahópur þeirra er
yfirleitt krakkar sem eru
með þeim í árgangi. Er
það ekki næg ástæða til að þau fái
undanþágu? Þessi mót færu varla á
hliðina út af örfáum krökkum sem
hugsanlega bættust við!
Þarna er einnig ósamræmi milli
sérgreinasambanda því í hópíþrótt-
um s.s. fótbolta, handbolta og körfu-
bolta þykir það ekkert tiltökumál að
krakkar „spili upp fyrir sig“ eins og
það kallast. Stífni UMFÍ og FRÍ er
umhugsunarverð, sérstaklega af
því að velferð barna og unglinga á
alltaf að vera í hávegum höfð innan
íþróttahreyfingarinnar. Börn eru
ekki rúðustrikað blað eða reglu-
gerðir.
Ég vona að UMFÍ og FRÍ endur-
skoði þessa hluti, því þetta er ekki
í takti við það góða starf sem fer
fram innan þessara hreyfinga.
Þvergirðingsháttur og kassa-
hugsun UMFÍ og Frjálsíþrótta-
sambands Íslands.
Nú get ég ekki orða bundist.
Ég hef alltaf verið full aðdá-
unar á læknum og hjúkrun-
arfólki á Íslandi. Þessa dag-
ana fæ ég að fylgjast með
störfum þeirra í návígi og
ekki minnkar aðdáun mín.
Fyrir stuttu greindist
eiginmaður minn með mjög
erfiðan lífshættulegan sjúk-
dóm. Hann var strax lagður
inn á Landspítala - háskóla-
sjúkrahús og meðferð hafin
án tafar.
Augljóst var að læknar vissu hvað
þeir yrðu að gera og þeir brugðust
hiklaust við og hófu sína vinnu við
að berjast við óvininn. Færni þeirra
er greinilega mjög mikil, eftirfylgn-
in alger og eiginmaður minn nýtur
stöðugra rannsókna mörgum sinn-
um á dag. Meðferð lækna virðist
stýrast af líkamlegum styrk hans
eða veikleika. Hann er styrktur
líkamlega, gefnar blóðflögur og
séð um sýkingavarnir. Allt eins og
niðurstaða rannsókna gefur tilefni
til að bregðast við hverju sinni. Ég
skynja vel að meðferðarteymið veit
nákvæmlega hvað það er að gera og
hikar aldrei í sinni vinnu.
Ég er svo þakklát fyrir
hæfni þessa fólks og eftir-
fylgni þess við að freista
þess að vinna bug á sjúk-
dómnum.
Því finnst mér svo sorg-
legt að hlusta enn einu sinni
og aftur og aftur á umfjöll-
un stjórnmálamanna sem
hugsa fyrst og fremst um
sparnað og niðurskurð.
Við heyrum enn og aftur
um yfirkeyrslu í fjárhag
heilbrigðiskerfisins. Formaður fjár-
laganefndar Alþingis hefur hafið
upp raust sína og skammar stofn-
anir fyrir að fara yfir fjárheimildir
sínar og einstaka nefndarmenn hafa
fylgt í kjölfarið.
Ég þakka fyrir þá þjónustu sem
við erum að fá núna og að yfirstjórn
spítalans skuli ekki hafna meðferð
vegna þess að það megi ekki kosta
of mikið að koma fólki til bjargar.
Ég er ekki hissa þegar ég heyri í
fréttum að meðalaldur læknastétt-
arinnar sé að hækka. Ungir læknar
hafa miklu meiri tækifæri erlendis,
miklu betri laun og auðvitað veigra
þeir sér við því að koma heim að
námi loknu. Hér er umræðan nei-
kvæð og eilíft þvarg um að kostn-
aðurinn sé of mikill. Fjárframlög-
in allt of lág, allt skorið við nögl.
Alþingi skammtar allt of naumt
og svo er fólk skammað fyrir yfir-
keyrslu.
Ég varð bara að koma þessu á
framfæri og bið nú þá sem eiga að
stjórna málum hér að fara að gera
það á uppbyggilegan hátt og með
virðingu fyrir því góða starfi sem
unnið er um allt í samfélagi okkar.
Hættið niðurrifstali og neikvæðni.
Stöndum með og styðjum við vel
unnin og óeigingjörn störf lækna,
hjúkrunarfólks og alls starfsfólks
Landspítala - háskólasjúkrahúss og
allra annarra í samfélagi voru. Við
eigum þessu fólki mikið að þakka.
Það á að fá hrós og klapp á bakið en
ekki neikvæða og hundleiðinlega
umfjöllun. Hjartans þakkir.
Dásamleg læknisþjónusta
Frá grunni að viðurkenndum bókara
Það hefur vakið athygli hversu margir nemendur
okkar hafa fengið vinnu eftir að hafa lokið
bókhaldsnámi.
Viðurkennt bókaranám er bæði skemmtileg og
krefjandi námsbraut sem býr nemendur undir
próf sem leiðir til vottunar frá efnahags- og
viðskiptaráðuneytinu sem Viðurkenndur bókari.
Helstu námsgreinar
Verslunarreikningur - 24 stundir
Excel-töflureiknir - 30 stundir
Bókhald - 36 stundir
Tölvubókhald í Navision - 54 stundir
Excel við áætlanagerð - 30 stundir
Launakerfi - 24 stundir
Lánardrottnar og viðskiptamenn - 12 stundir
Fyrningar - 12 stundir
Virðisaukaskattur - 6 stundir
Lán - 18 stundir
Gerð og greining ársreikninga - 24 stundir
Lokaverkefni - 36 stundir
Skattaskil - 18 stundir
Reiknishald, viðbætur - 36 stundir
Upplýsingatækni, viðbætur - 6 stundir
Upprifjun fyrir próf - 24 stundir
Lengd námskeiðs:
2 annir - 390 kennslustundir - kennt tvisvar í viku
Verð:
384.000 kr. - kægt er að dreifa greiðslum
Næstu námskeið:
Morgunnámskeið byrjar 1. og 2. okt.
Kvöldnámskeið eru fullbókuð.
VIÐURKENNT
BÓKARANÁM
Ný staðsetning
í Mörkinni 4
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100
PIPA
R\
PIPA
R
AA
TBW
A
BW
A
BW
A
BW
A
••• SÍA
S SÍA
SÍA
• 1424
57
SAMFÉLAG
Drífa
Kristjánsdóttir
bóndi
➜ Augljóst var að læknar
vissu hvað þeir yrðu að gera
og þeir brugðust hiklaust við
að berjast við óvininn.
➜ Nú hefur það gerst í
tvígang að hún hefur ekki
fengið að keppa á mótum
með vinkonum sínum.
SAMFÉLAG
Orri Þórðarson,
yfi rþjálfari
yngri fl okka FH í
knattspyrnu.