Fréttablaðið - 13.08.2014, Side 10
13. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| fRéttIR | 10
ÍslAMsKt RÍKI
Samtök vígamanna sem vilja þröngva
eigin öfgatúlkun trúarinnar upp á
múslima, en vekja almennt frekar ótta
en aðdáun. Þessi hópur nefndi sig
áður Íslamskt ríki í Írak og Sýrlandi,
en þar áður kölluðu forverar þeirra sig
Al Kaída í Írak. Gegndarlaust ofbeldi
þeirra gekk meira að segja fram af Al
Kaída, samtökum Osama bin Ladens,
sem vildu ekkert hafa með þennan
hóp vígamanna að gera.
sjÍA-ARAbAR
Um 60 prósent íbúa Íraks eru sjíatrú-
aðir arabar. Þeir eru því með drjúgan
meirihluta í landinu og fara létt með
að sigra í kosningum. Núrí al Malíki,
sem verið hefur forsætisráðherra í tvö
kjörtímbail, er sjía-múslimi.
súnnÍ-ARAbAR
Um fimmtungur íbúa landsins eru súnní-
arabar. Þeir eru í minnihluta og hafa
verið hafðir útundan við stjórn landsins
undanfarið. Einræðisherrann Saddam
Hússein var súnní-arabi en tókst að
beygja aðra þjóðernishópa undir sig.
KúRDAR
Kúrdar eru tæplega fimmtungur lands-
manna. Flestir eru þeir súnní-múslim-
ar, en meðal þeirra er einnig að finna
sjía-múslima. Þeir hafa nokkra sjálfs-
stjórn og vilja helst stofna sjálfstætt
ríki í norðurhluta landsins.
jAsÍDAR
Jasídar teljast til Kúrda en aðhyllast
trúarbrögð sem eiga rætur í kenningum
Zaraþústra en hafa orðið fyrir marg-
víslegum áhrifum frá flestum öðrum
trúarbrögðum í Mið-Austurlöndum, þar
á meðal kristni, íslam og gyðingdómi.
AssýRÍUMenn
Kristnir menn hafa verið um fimm
prósent íbúa Íraks. Flestir eru þeir
Assýríumenn, en sumir eru Armenar.
Þeir búa víða um landið, en flestir
þó í norðurhlutanum og hafa hrakist
tugþúsundum saman undan sókn
Íslamska ríkisins.
túRKMenAR
Túrkmenar eru skyldir Tyrkjum. Þeir
hafa verið eitthvað innan við tíu pró-
sent landsmanna og eru þriðji stærsti
þjóðernishópur landsins, næst á eftir
Aröbum og Kúrdum. Þeir eru ýmist
súnnítrúar eða sjíar.
www.volkswagen.is
Nú bjóðum við Volkswagen Tiguan Sport & Style drekkhlaðinn af sportbúnaði,
á freistandi tilboði sem erfitt er að standast. Komdu og reynsluaktu þessum frábæra bíl.
Það kæmi okkur ekki á óvart ef þú vildir taka hann með þér heim eftir rúntinn.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
VW Tiguan. Kominn
í sportgírinn.
6.750.000
kr.
Tiguan Spo
rt & Style D
iesel 2.0 TD
I
á freistandi
tilboði:
Þú sparar 7
15.000 kr.
ÞjóÐfloKKAR oG tRúARhópAR Í ÍRAK
ÍRAK
sáDI-ARAbÍA
ÍRAn
sýRlAnD
tyRKlAnD
KúVeIt
bAGDAD
KIRKUK
MosUl
fAllúDjA
Efrat
Tígris
ÍRAK Þúsundir Jasída eru enn
innikróaðar í fjöllunum í norðan-
verðu Írak. Þeir hafa verið þarna
í meira en tíu daga, að mestu
matar- og vatnslausir og margir
orðnir illa haldnir.
Vígasveitir herskárra íslam-
ista hröktu þá frá bænum Sind-
sjar, sem þeir náðu á sitt vald í
byrjun mánaðarins. Tugir þús-
unda flúðu frá bænum og margir
þeirra hafa nú komist yfir landa-
mærin til Sýrlands, en Samein-
uðu þjóðirnar segja lífsnauðsyn-
legt að útvega þeim sem enn eru
á hrakningi aðstoð.
Fjölmargir kristnir íbúar Íraks
hafa einnig hrakist á flótta undan
ofbeldi hinna herskáu íslamista
sem nú hafa mánuðum saman haft
stóra hluta landsins á sínu valdi.
Stjórn Núrís al Malíkis hefur
verið kennt að nokkru um ólguna
í landinu, sem minnkað hefur
mótstöðuna gegn vígasveitum
samtakanna Íslamsks ríkis. Mal-
íki hefur dregið taum sjía-mús-
lima en hunsað að stórum hluta
hagsmuni súnnía, Kúrda og ann-
arra þjóðernishópa í landinu.
Forseti landsins hefur nú
ákveðið að fela Haider al Abadi,
flokksbróður Malíkis, að mynda
ríkisstjórn, en Malíki hefur
engan hug á að gefa eftir for-
sætisráðherraembættið. Honum
hefur samt ekki tekist að afla
sér stuðnings annarra á þingi til
að mynda nýja ríkisstjórn eftir
þingkosningarnar í vor. - gb
Jasídar enn
innikróaðir
Sameinuðu þjóðirnar segja lífsnauðsynlegt að útvega
þeim, sem enn eru á hrakningi í fjallshlíðunum hjá
bænum Sindsjar, næringu og vatn sem allra fyrst.
hRAKnInG-
AR Þúsundum
flóttamanna
hefur tekist
að komast yfir
landamærin
til Sýrlands.
NOrdicpHOTOS/AFp
núRÍ Al
MAlÍKI
hefur verið
forsætis-
ráðherra
síðan 2006
og hefur
engan áhuga á að gefa eftir
embættið, þótt hann njóti
ekki stuðnings meirihluta
þingsins lengur.
Íbúar Íraks eru rúmlega þrjátíu milljónir, en skiptast í ólíka hópa eftir þjóð-
ernum og trúarbrögðum. Þeir helstu eru sýndir á kortinu. innbyrðis spenna og
átök milli þessara hópa hafa verið viðloðandi og hætta talin á að landið klofni
á endanum í tvö eða jafnvel þrjú ríki.