Fréttablaðið - 13.08.2014, Side 36
13. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 20
Við ætlum að
dreypa á gylltum veigum
óperubókmenntanna
fyrir hlé og verðum með
nokkrar stórar bombur
eftir Mozart, Puccini
og Dvorák. Eftir hlé
dembum við okkur í
léttara efni og flytjum
kabarettmúsík.
Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.
Torfhús og tíska nefnist sýning
sem opnuð verður á Torgi Þjóð-
minjasafnsins á föstudaginn. Þar
eru níu myndir sem sænski ljós-
myndarinn Lisen Stibeck tók á ferð
sinni um landið sumarið 2013. Á
myndunum eru fyrirsætur í fatnaði
eftir Steinunni Sigurðardóttur fata-
hönnuð við gömul hús sem tilheyra
húsasafni Þjóðminjasafnsins.
Þorbjörg Gunnarsdóttir er sýn-
ingarstjóri og hún segir að með
myndum sínum vilji Lisen Stibeck
sýna einstakt samspil íslenskrar
náttúru, menningararfs og tísku.
„Stibeck heillaðist af landinu fyrir
mörgum árum og hefur farið víða
um það og myndað,“ segir Þor-
björg. Hún hefur eftirfarandi setn-
ingu eftir Lisen Stibeck: „Ef land
væri ljóð, þá væri það land Ísland.“
- gun
Samspil náttúru, tísku
og menningararfs
Hin sænska Lisen Stibeck ferðaðist um Ísland í fyrra
og tók myndir. Afraksturinn er á sýningu sem opnuð
verður í Þjóðminjasafninu á föstudaginn.
EIN MYNDANNA Flott við gamla sæluhúsið við Jökulsá á Fjöllum. MYND/LISEN STIBECK
25-60%
afsláttur
ÚTSALA
KABARÍUR í Ólafsfjarðarkirkju 14. ágúst klukkan 20
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran
Hrönn Þráinsdóttir, píanó
TRÍÓ SUNNU GUNNLAUGS í Ólafsfjarðarkirkju 15. ágúst klukkan 20
Sunna Gunnlaugs, píanó
Þorgrímur Jónsson, kontrabassi
Scott McLemore, trommur
Tríó Sunnu verður líka með tónleika á Hornbrekku, dvalarheimili aldraðra,
klukkan 14.30
LOKATÓNLEIKAR BERJADAGA í Tjarnarborg klukkan 20
Sérstakur gestur: Maríus Hermann Sverrisson tenór– „Ég er kominn heim“
Dagskrá Berjadaga 14. til 16. ágúst
„Við Hrönn ætlum að vera með dálít-
ið blandað prógramm,“ segir Hall-
veig Rúnarsdóttir söngkona, þegar
ég næ í hana á kaffihúsinu Bláu
könnunni á Akureyri og bið hana að
lýsa því sem fram undan er á Berja-
dögum á Ólafsfirði. Hún verður þar
í stóru hlutverki bæði á upphafstón-
leikunum annað kvöld klukkan 20
og lokatónleikunum á föstudaginn.
Kveðst hafa verið með kabarettpró-
gramm syðra fyrir nokkru en ákveð-
ið að klassíkera það örlítið nú.
„Við bjóðum upp á Kabaríur.
„Ætlum að dreypa á gylltum veig-
um óperubókmenntanna fyrir hlé og
verðum með nokkrar stórar bomb-
ur eftir Mozart, Puccini og Dvorák.
Eftir hlé dembum við okkur í létt-
ara efni og flytjum kabarettmús-
ík eftir Schönberg og bandarísk-
an mann sem heitir Bolcom. Síðan
verða söngleikjalög eftir Sondheim,“
lýsir hún.
Á öðru kvöldi tónleikanna fá þær
Hallveig og Hrönn að njóta þess
sem Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur í
farteskinu. Það verða aðallega tón-
smíðar eftir liðsmenn tríósins og
einhverjar ábreiður kunna að slæð-
ast með.
Á lokakvöldinu á föstudag verð-
ur blásið til sannkallaðrar tónlist-
arveislu fyrir alla fjölskylduna þar
sem listamenn hátíðarinnar leika
á als oddi í fjölbreyttri dagskrá.
„Þá verð ég með í öllu havaríinu,“
segir Hallveig og kveðst geyma
aríuna sína úr Carmen þangað til.
„Þar verður líka söngleikastjarna
Íslands, Maríus Sverrisson, tríó-
ið hennar Sunnu og hinir og þessir
gestasöngvarar. Þetta verður rosa
skemmtilegt,“ segir hún spennt.
Hallveig kveðst aldrei hafa sung-
ið á Ólafsfirði áður en hún þekki
þar fullt af fólki. „Ég hef verið þar
í fríum en aldrei komið þar fram.
Ólafsfjörður er heimabær söng-
kennarans míns, Jón Þorsteinsson-
ar, og þar líður honum best í heimin-
um. Hann er einn þeirra sem ætla að
troða upp á lokakvöldi Berjadaga,“
segir Hallveig og heldur svo áfram
ferðinni í fyrirheitna fjörðinn.
gun@frettabladid.is
Við bjóðum upp á Kabaríur
Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari kanna lendur kabarettsins og
óperunnar á fyrsta kvöldi Berjadaga, menningarhátíðar á Ólafsfi rði, sem hefst annað kvöld í kirkjunni.
Í STUÐI Hrönn og Hallveig æfðu sig vel áður en þær héldu norður til Ólafsfjarðar þar sem þær taka virkan þátt í Berjadögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég vil að fólk geti nálgast ljóðin
mín óhindrað,“ segir ljóðskáldið
Bragi Páll Sigurðarson sem hefur
ákveðið að gefa pdf á netinu af
ljóðabókum sínum, Fullkominni
ljóðabók og Holdi. Þær komu út
fyrir jólin 2012 og 2013 og sú
fyrrnefnda olli talsverðu umtali
vegna umdeilds ljóðs um Davíð
Oddsson. Bækurnar eru báðar
uppseldar í bókabúðum og bara
nokkur eintök til hjá söfnum.
„Það virðist vera áhugi fyrir bók-
unum en það stendur ekki til að
prenta þær aftur,“ segir Bragi
Páll, sem kveðst hafa verið að
senda fólki bækurnar í netpósti
en það sé alltof mikil vinna. „Ég
set þær þannig upp að þær verði
til niðurhals til frambúðar. Ljóð
eru nógu lítið lesin þótt maður sé
ekki að flækja aðgengi að þeim
fyrir fólki. Nú getur fólk fengið
sér eins margar bækur og það
vill.“
Bragi Páll kveðst hafa þá sýn
að eftir að hann sé búinn að gefa
eitthvað út séu verkin ekki lengur
hans eign. Fólki sé jafnvel frjálst
að breyta ljóðunum og gera við
þau það sem það vill. „Mér finnst
eignarhald á menningu ekkert
sniðugt.“ - gun
Örlátur á eigin verk
SKÁLDIÐ Mér finnst eignarhald á
menningu ekkert sniðugt,“ segir Bragi
Páll.
MENNING