Fréttablaðið - 13.08.2014, Page 37
MIÐVIKUDAGUR 13. ágúst 2014 | MENNING | 21
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is
í smáralind og glæsibæ
Hjólaútsala
30-50%
af öllum hjólum
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
„Við flytjum eigin tónsmíðar. Þær
eru dálítið tregafullar en tiltölu-
lega einfaldar. Grípandi laglínur
en vafðar spuna. Við erum allir
búnir að vera í djassnámi og spinn-
um mikið kringum tónsmíðarnar,“
segir Kristinn Smári Kristinsson
gítarleikari sem er í tríóinu Minua,
ásamt þeim Luca Aaron, sem einn-
ig leikur á gítar, og Fabian Will-
mann bassaklarinettuleikara. Þeir
félagar eru nú á tónleikaferð um
landið og koma fram víða.
Kristinn er Reykvíkingur. Hann
byrjaði að spila á selló fimm ára
en skipti yfir í gítarinn um tólf ára
aldurinn. Nú er hann nýútskrifað-
ur úr tónlistarháskólanum í Basel
í Sviss og hyggst færa sig yfir til
Bern í enn frekara nám.
Kristinn kveðst hafa kynnst
þeim Fabian og Luca í Basel og
hlakka til að sýna þeim landið sitt.
Hægt er að fylgjast með ferðum
Minua á Facebook-síðu tríósins sem
og heimasíðunni www.minua.net.
Grípandi laglínur vafðar spuna
Tríóið Minua er á ferð um landið með tónlist sína og kemur fram í fl estum lands-
hlutum. Tríóið hóf leikinn í gærkveldi á Akranesi en verður á Patreksfi rði í kvöld.
MINUA TRÍÓ Þeir Luca Aaron, Fabian Willmann og Kristinn. MYND/ÚR EINKASAFNI
Grátbroslegar vísur Svantes eftir
danska skáldið Benny Andersen
verða fluttar í Norræna húsinu 14.
ágúst klukkan 20.20. Þær fjalla
um örlög Svíans Svantes Svend-
sen sem bjó í Danmörku frá unga
aldri eftir að hann varð viðskila
við foreldra sína í ferjunni milli
Svíþjóðar og Danmerkur.
Kormákur Bragason túlk-
ar Svante og leikur á gítar. „Ég
kynntist þessu efni fyrst 1976
þegar ég var í lýðháskóla í Kung-
älv í Svíþjóð. Mér fannst mús-
íkin flott og textarnir frábærir og
Svante hefur loðað við mig síðan.
Síðar var ég við kennslu í Kung-
älv ásamt dönskum götuleikhús-
manni. Við settum Svantesviser á
fóninn og þá sagði hann: „Nú veit
ég hvar þú hefur lært dönsku Kor-
mákur.“
Þeir sem spila með Kormáki
eru Karl Pétur Smith á slagverk,
Einar Sigurðsson á kontrabassa,
Helgi Þór Ingason á píanó og
Eðvarð Lárusson á gítar. Aðgangs-
eyrir er 1.500 krónur og miðar
eru seldir við innganginn. - gun
Vísur Svantes
KORMÁKUR Vísur Svantes hafa loðað
við hann síðan 1976.
14. Sjóræningjahúsið Patreksfirði
kl. 21.00
15. Menningarhúsið Berg Dalvík
17. Akureyrarkirkja kl. 17.00
18. Sláturhúsið Egilsstöðum
kl. 21.00 (Ormsteiti 2014)
19. Tónlistarmiðstöð Austurlands
kl. 20.00
20. Pakkhúsið Höfn kl. 21.00
26. KEX Hostel kl. 20.30
➜ Tónleikastaðir
Minua í ágúst
Í tilefni þess að hundrað ár eru
liðin frá fæðingu finnsk-sænska
rithöfundarins og listamannsins
Tove Jansson, skapara Múmínálf-
anna, mun Forlagið í haust end-
urútgefa hina sígildu sögu Hvað
gerist þá?
Bókin er þýdd af Böðvari Guð-
mundssyni og kom síðast út árið
1992. Hún verður mikill happa-
fengur fyrir hina fjölmörgu aðdá-
endur Múmínálfanna.
Sígild saga
endurútgefi n
MÚMÍNÁLFUR Tove skrifaði ekki
aðeins bækur sínar, hún myndskreytti
þær líka.