Fréttablaðið - 13.08.2014, Qupperneq 40
13. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Höllu Þórlaugar
Óskarsdóttur
Það er algjörlega
kominn tími til að taka
upp þráðinn með
Stelpunum.
Óskar Jónasson
leikstjóri.
Akkuru?
Systurdóttir mín er á áhugaverðum aldri. Eða öllu heldur aldri hins óbilandi
áhuga. Ja, eða enn frekar aldri hinna ótelj-
andi spurninga. Hún tekur engu sem sjálf-
sögðum hlut.
„Akkurru ætlarðu að vera í þessari
peysu?“ „Af því að ég er með gæsahúð.“
„Akkurru ertu þá með hettuna?“
HÚN setur spurningarmerki við allt.
Svörin líka. Bróðursonur minn er
nokkrum árum eldri og ekki alveg jafn
hissa á heiminum. Ég veit svo sem ekki
hvort hann hafi fengið svör við öllum
sínum spurningum en frænka mín telur
hann allavega hafa þau á reiðum hönd-
um. Og yfirleitt er hann fljótur til svars.
„Akkurru er pabbi þinn með skegg
hér?“ „Það bara vex á körlum.“
Á átjándu spurningu getur verið
freistandi að svara með hinu
aldrepandi „afþvíbara“. Kannski
ættum við samt oftar að staldra
við og taka þessi spurulu börn
til fyrirmyndar, vegna þess að
mörgu má alveg velta fyrir sér.
Af hverju ganga strákar ekki í kjólum? Af
hverju mála stelpur sig? Af hverju eru gler-
flöskur endurunnar en ekki endurnýttar?
LITLA frænka mín truflar mig við þessar
heimspekilegu vangaveltur og rekur frétta-
síðu framan í mig. „Akkurru dó þessi leik-
ari?“ Mér finnst svo mikilvægt að spyrja
spurninga og þess vegna reyni ég alltaf að
svara þegar frænka mín spyr. En stundum
rekur mig í rogastans. Ég hika og horfi á
myndina af Robin Williams. „Hann … hann
var bara orðinn svo rosalega lasinn. Í hjart-
anu.“ Hún horfir á myndina. Lítur svo á
mig. „Er hann til í alvörunni?“ „Já.“ „Akk-
urru var hann veikur?“ Aftur hika ég.
„Umm … Það er góð spurning. Sumir verða
veikir.“
VIÐ sitjum þegjandi í dálitla stund og brátt
hefur hún gleymt sér í tölvuleik. Skyndi-
lega dettur mér í hug að snúa vörn í sókn.
„Af hverju gerirðu svona?“ segi ég og
bendi á skjáinn. Frænka mín lítur upp með
vanþóknunarsvip og horfir á mig í dálitla
stund áður en hún yppir öxlum og heldur
áfram í leiknum. Sumar spurningar eru
einfaldlega ekki svaraverðar.
LUCY 6, 8:20, 10:20(P)
NIKULÁS LITLI 3:50
HERCULES 8, 10:10
THE PURGE: ANARCHY 10:20
TEMJA DREKANN SINN 2D 5
22 JUMP STREET 8
ÍSL TAL
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
BEINT Á TOPPINN Í USA!
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SAN FRANCISCO CHRONICLE
MOVIEPILOT.COM
HITFIX WASHINGTON POST NEW YORK DAILY NEWS
MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 12 ÁGÚST: 20.00
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
LUCY
LUCY LÚXUS
GUARDIAN OF THE GALAXY 3D
GUARDIAN OF THE GALAXY 3DLÚXUS
SEX TAPE
DAWN _PLANET OF THE APES 3D
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D
VONARSTRÆTI
KL.. 3.10 - 5.40 - 8 - 10.10
KL. 10.40
KL. 3.10 - 5 - 8 - 10.40
KL. 5 - 8
KL. 8 - 10.10
KL. 8 - 10.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5.20
LUCY
NIKULÁS Í FRÍI
SEX TAPE
DAWN_PLANET OF THE APES 3D
22 JUMP STREET
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI
VONARSTRÆTI
KL. 5.50 - 8-10.10
KL. 5.45 - 8
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 10.15
KL. 10.40
KL. 5.20
8KL.
Miðasala á:
EIN ÓVÆNTASTA SPENNUMYND ÁRSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
„Það er algjörlega kominn tími
til að taka upp þráðinn með Stelp-
unum,“ segir Óskar Jónasson,
leikstjóri Stelpnanna, en æfingar
fyrir gamanþáttaröðina eru í full-
um gangi. Þátturinn snýr aftur á
skjáinn nú í haust eftir að nærri
áratugur er liðinn frá því fyrsti
þátturinn leit dagsins ljós.
Óskar segir alltof mikið af
fyndnum sketsum til. „Þetta er
mikil tilraunastarfsemi og þá er
ágætt að geta valið úr þegar við
fáum fjarlægð á þetta.“
Æfingaferlið er gríðarlega mik-
ilvægt. „Bæði til þess að velja
sketsa og til þess að ákveða hver
leikur hvað.“ Á meðan á æfinga-
ferlinu stendur eru senur endur-
skrifaðar og æfðar í þaula. „Við
fáum oft nýjar hugmyndir og
þegar hópurinn hittist þá gerast
hlutirnir á miklu markvissari
hátt. Það er miklu meira gaman
að skrifa saman,“ segir Óskar og
hlær.
„Ég get lofað því að það verða
nokkrir gamlir karakterar en
mikið af nýjum,“ segir Óskar dul-
arfullum rómi en vill ekki gefa of
mikið upp. Hann gefur aðdáendum
þáttanna þó eitt til að hlakka til:
Ofnæmiskona Ilmar Kristjánsdótt-
ur kemur aftur á skjáinn. „Nú er
hún búin að opna lífsstílsbúð, það
er að segja heilsubúð.“
nanna@frettabladid.is
Ofnæmiskonan snýr
aft ur í Stelpunum
Gamanleikkonur Íslands sameinast á ný í Stelpunum. Leikstjóri þáttanna segir
gamla karaktera skjóta upp kollinum en einnig sé fullt af nýjum.
BRUGÐIÐ Á LEIK Nýir leikarar bregða á leik í þáttaröðinni í bland við þá sem sáust í þeirri fyrri. Þar má nefna grínleikara á borð
við Björn Jörund Friðbjörnsson, Þorstein Bachmann og Maríönnu Klöru Lúthersdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ENDURSKRIFA SENUR Á meðan á æfingaferlinu stendur endurskrifa leikararnir
senur eftir því sem nýjar hugmyndir koma upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR