Fréttablaðið - 17.09.2014, Page 10
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is
GERÐU
FRÁBÆR
KAUP
DACIA DUSTER 4x4
Nýskr. 12/12, ekinn 29 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.390 þús.
Rnr. 320188.
NISSAN QASHQAI+2 SE - 7 manna
Nýskr. 06/11, ekinn 67 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.990 þús.
Rnr. 142315.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
OPEL INSIGNIA COSMO
Nýskr. 06/13, ekinn 11 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 131184.
RENAULT KANGOO fólksbíll
Nýskr. 02/14, ekinn 6 þús km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.690 þús.
Rnr. 131140.
HYUNDAI IX35
Nýskr. 07/10, ekinn 63 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.290 þús.
Rnr. 120460.
CHEVROLET CAPTIVA 7 manna
Nýskr. 05/13, ekinn 25 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.990 þús.
Rnr. 120451.
TOYOTA AURIS SOL HYBRID
Nýskr. 03/11, ekinn 26 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.190 þús.
Rnr. 281960.
Verð
4.790 þús.
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
Góð nýjung
Morgnar eru til þess að njóta! Byrjaðu daginn með skál af
Havrecrunch sem bæði bragðast dásamlega og uppfyllir
hollustukröfur Skráargatsmerkisins. Prófaðu Havrecrunch ef þér
finnst bragðið skipta að minnsta kosti jafnmiklu máli og heilsan.
Bragðgóð máltíð.
Trefjaríkar
flögur og stökkt
granóla
Nýtt!
njÓttu Hollustu
ÚKRAÍNA, AP Úkraínuþing staðfesti
í gær samstarfssamning við Evr-
ópusambandið, en upphaf ólgunn-
ar í landinu má rekja til þess að
þáverandi forseti, Viktor Janúk-
ovítsj, hætti við að undirrita slík-
an samning.
Þingið samþykkti einnig að
veita aðskilnaðarsinnum í austur-
hluta landsins takmarkaða sjálf-
stjórn til þriggja ára. Með þessu er
gengið lengra til móts við aðskiln-
aðarsinna en ráð var gert fyrir í
vopnahléssamningi, sem gerður
var nýverið með milligöngu Rússa.
Aðskilnaðarsinnar fá meðal ann-
ars yfirstjórn yfir lögreglumálum
og geta haft áhrif á það hverjir eru
skipaðir í dómara- og saksóknara-
embætti.
Jafnframt var mörgum aðskiln-
aðarsinnum veitt sakarupp-
gjöf, þótt ekki nái hún til þeirra
sem gerst hafa sekir um morð,
skemmdarverk, nauðganir, mann-
rán, hryðjuverk og aðra stórglæpi.
Alexander Sakhartsjenkó, tals-
maður uppreisnarmanna, tók
frekar vel í þessi tíðindi og sagði
að félagar sínir myndu skoða vel
þessi tilboð, en til þessa hafa upp-
reisnarmenn tekið afar dræmt í
allt sem frá Úkraínustjórn hefur
komið.
Mikil ánægja ríkti í Kænugarði
með samninginn við Evrópusam-
bandið, þrátt fyrir eftirgjöf gagn-
vart uppreisnarmönnum.
Rússnesk stjórnvöld hafa hins
vegar verið mjög andvíg því að
Úkraína tengist Evrópusamband-
inu nánari böndum. Til þess að
ergja ekki Rússa um of ákváðu
Evrópusambandið og Úkraínu-
stjórn að fríverslun Úkraínu við
ESB-ríkin hefjist ekki fyrr en
árið 2016, hið fyrsta.
Öðrum hlutum samnings-
ins, sem snúast um pólitískar
og efnahagslegar umbætur í
Úkraínu, verður þó ekki frestað.
Eitthvað hefur verið um átök
í landinu síðustu daga, þrátt
fyrir vopnahléið. Sprengju var
varpað á strætisvagn í Donetsk
á mánudag og lét þar að minnsta
kosti ein kona lífið. Sonur henn-
ar sagði blaðamönnum að móðir
sín hefði drifið sig upp í strætis-
vagninn þegar skothríð hófst í
hverfinu.
„Hún reyndi að sleppa þaðan út,
en sprengjan lenti samt á henni,
þremur strætisvagnastöðvum
síðar,“ segir sonurinn, sem heitir
Evgení Medvedev.
gudsteinn@frettabladid.is
Fá meira sjálfstæði
Úkraínustjórn hefur að hluta gefið eftir og veitt aðskilnaðarsinnum í Donetsk og
Luhansk takmarkað sjálfstæði. Jafnframt hafa margir þeirra fengið sakaruppgjöf.
PETRÓ POROSJENKÓ Úkraínuforseti ánægður með samstarfssamninginn við
Evrópusambandið, sem þingið staðfesti í gær. NORDICPHOTOS/AFP
➜ Til þess að ergja ekki
Rússa um of ákváðu Evr-
ópusambandið og Úkraínu-
stjórn að fríverslun Úkraínu
við ESB ríkin hefjist ekki
fyrr en árið 2016, hið fyrsta.