Fréttablaðið - 17.09.2014, Qupperneq 20
| 2 17. september 2014 | miðvikudagur
Umsókn Fríhafnarinnar ehf. um
áframhaldandi rekstur tískuvöru-
verslunarinnar DutyFree Fashion
í Leifsstöð hefur verið hafnað og
versluninni verður lokað á næsta
ári.
Fríhöfnin, sem er dótturfélag
Isavia, var á meðal umsækjenda
í forvali ríkisfyrirtækisins um
aðstöðu til veitinga- og verslunar-
reksturs í fl ugstöðinni. Stjórnend-
um félagsins var tilkynnt í ágúst
síðastliðnum að Isavia ætlaði ekki
í samningaviðræður við þá vegna
reksturs DutyFree Fashion.
Ákvörðun Isavia kom stjórnend-
um og starfsmönnum Fríhafnar-
innar mikið á óvart, samkvæmt
upplýsingum Markaðarins. Ástæð-
an sé ekki síst sú að dótturfélagið
var ekki valið í hóp þeirra umsækj-
enda sem nú bíða átekta eftir niður-
stöðum samningaviðræðna Isavia
við þau fyrirtæki sem báru af í
mati umsókna. Nokkrum dögum
eftir að ákvörðunin lá fyrir sagði
Ásta Dís Óladóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Fríhafnarinn-
ar, starfi sínu lausu.
Fríhöfnin hefur rekið DutyFree
Fashion, áður Saga Shop, í brottfar-
arsal fl ugstöðvarinnar frá júlímán-
uði 2010. Félagið tók við rekstrinum
af Icelandair og var verslunin þá
stækkuð og vöruúrval aukið. Versl-
unin hefur meðal annars selt föt
frá Boss og Burberry og íslenskar
hönnunarvörur frá Farmers Mar-
ket og Kron Kron.
Stjórnendur Fríhafnarinnar
fengu, samkvæmt heimildum, rök-
stuðning fyrir ákvörðun Isavia. Í
honum segir meðal annars að fjár-
hagsáætlun verslunarinnar hafi
verið óraunhæf.
Friðþór Eydal, talsmaður Isavia,
vill ekki staðfesta að fyrirtæk-
ið hafi hafnað umsókn Fríhafnar-
innar. Hann segir Isavia ekki veita
upplýsingar um hvaða fyrirtæki
sóttu um aðstöðu í Leifsstöð og þá
ekki hvort ákveðin fyrirtæki hafi
komist áfram í samningaviðræð-
urnar.
„Forvalið er samkvæmt ítar-
legu og fastmótuðu ferli sem var
kynnt í upphafi og allir þátttakend-
ur samþykktu það með undirskrift
sinni. Áfrýjunarnefnd útboðsmála
hefur hafnað kröfu sem sett var
fram um stöðvun forvalsins, enda
snúist það um leigu á aðstöðu en
ekki kaup á verki, vöru eða þjón-
ustu,“ segir Friðþór.
Forvalið er sam-
kvæmt ítarlegu og
fastmótuðu ferli sem var
kynnt í upphafi og allir
þátttakendur samþykktu
það með undirskrift sinni.
VERSLUN
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
Fríhöfnin fær ekki að
reka verslun í Leifsstöð
Versluninni DutyFree Fashion í Leifsstöð verður lokað. Umsókn Frí-
hafnarinnar um verslunarrými var hafnað af móðurfélaginu Isavia.
Framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar hætti nokkrum dögum síðar.
HÆTTI Í ÁGÚST Ásta Dís Óladóttir var ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar í september
2010. MYND/OZZO
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Miðvikudagur 17. september
➜ Þjóðskrá - Upplýsingar um
leiguverð íbúðarhúsnæðis
Fimmtudagur 18. september
➜ Hagstofan - Samræmd vísitala
neysluverðs í ágúst 2014
➜ Hagstofan - Verðmæti sjávarafla
í janúar-júní 2014
Mánudagur 22. september
➜ Hagstofan - Vísitala lífeyris-
skuldbindinga í ágúst 2014
➜ Hagstofan - Vísitala kaupmáttar
launa í ágúst 2014
Þriðjudagur 23. september
➜ Þjóðskrá - Viðskipti með
atvinnuhúsnæði í ágúst
Miðvikudagur 24. september
➜ Hagstofan - Vinnumarkaður í
ágúst 2014
VERSLUNIN Frí-
höfnin opnaði
DutyFree
Fash ion eftir
gagngerar
endurbætur í
júlí 2011.
Magnús Kristinsson
534 1020
TIL LEIGU
GLÆSILEGT
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Rannsóknarsetur verslunarinnar
hefur í fyrsta sinn birt veltuvísi-
tölu í byggingavöruverslun í Smá-
söluvísitölu sinni.
Greinilegur vöxtur hefur þann-
ig verið í byggingavöruverslun
það sem af er þessu ári, en í ágúst
var 9,8 prósenta meiri velta en í
sama mánuði í fyrra að raunvirði.
Á fyrstu átta mánuðum ársins var
velta byggingavöruverslana 11,6
prósentum meiri en á sama tíma-
bili í fyrra.
Þessi vöruflokkur er einn af
þremur stærstu vörufl okkunum í
smávöruverslun samkvæmt tölum
úr virðisaukaskattsfl okkun Hag-
stofunnar.
Á heildina litið urðu ekki mikl-
ar breytingar á veltu í smásölu í
ágúst, samanborið við sama mánuð
fyrir ári. Þó jókst áfengisverslun
um 7,5 prósent á föstu verðlagi og
um 9,7 prósent þegar leiðrétt hefur
verið fyrir vikudaga- og árstíða-
bundnum þáttum. Verð á áfengi
hefur haldist nokkuð óbreytt það
sem af er þessu ári. - fb j
Velta í smásöluverslun í ágúst helst nokkuð óbreytt frá því fyrir ári:
Birta veltuvísitölu í
byggingarvöruverslun
VÖXTUR Á fyrstu átta mánuðum ársins var velta
byggingavöruverslana 11,6% meiri en í fyrra.
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 130,00 -16,2% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 262,0 -15,8% 0,0%
Fjarskipti (Vodafone) 27,25 20,7% 1,1%
Hagar 38,4 17,3% 0,1%
Icelandair Group 18,20 -5,5% -4,9%
Marel 133,00 -26,1% -0,3%
N1 18,90 -0,5% -1,1%
Nýherji 3,65 39,7% 2,0%
Reginn 15,55 -1,9% -1,6%
Tryggingamiðstöðin* 32,05 -25,0% -1,6%
Vátryggingafélag Íslands** 10,79 -24,0% -0,7%
Össur 229,00 40,2% 0,3%
HB Grandi 27,70 11,9% 2,6%
Sjóvá 13,50 -10,4% -1,3%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.259,60 -9,4% -1,5%
First North Iceland
Century Aluminum 1. 150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 13,25 50,9% 2,4%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 9,0% 0,0%
*fyrsta verð 08. maí 2013 **fyrsta verð 24. apríl 2013
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR
40,6% frá áramótum
HB GRANDI
2,6% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
MAREL
-26,1% frá áramótum
ICELANDAIR
-4,9% í síðustu viku
5
7
2
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS