Fréttablaðið - 17.09.2014, Page 38
Hin
BJARNVEIG
EIRÍKSDÓTTIR HDL.
hliðin
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE 100
6.792,00 -11,97
(0,18%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
Ég heyrði af því um daginn að ísbúð
ein í Reykjavík flokkaði viðskiptavini
sína eftir þjóðerni. Þar á bæ væri lagt
meira á túristaís en annan ís. Þetta er
vonandi flökkusaga. Frásögn af athæfi
nokkurra vel þekktra fjölþjóðlegra
bílaleigufyrirtækja í Evrópu er ekki
flökkusaga. Þau mismuna eftir þjóð-
erni. Viðskiptavinir þessara fyrirtækja
sem ekki verða nafngreind hér munu
hafa ítrekað lent í því þegar þeir bóka
bílaleigubíl í öðru landi í gegnum
internetið að fá ekki jafn hagstætt
verð og íbúar í heimaríki bílaleigunn-
ar. Sumar bílaleigur flokka nefnilega
viðskiptavini sem panta á netinu eftir
IP-tölu eða upplýsingum um heimili.
Þessir viðskiptavinir fá sjálfkrafa hærri
verð hjá bókunarvél eða geta jafnvel
ekki pantað þjónustu. Skiptir ekki
máli þótt þeir ætli að nota bifreiðina
í viðkomandi ríki þar sem bílaleigan
er staðsett.
Sameiginlegur markaður?
Þrátt fyrir sameiginlegan markað og
sameiginlegar leikreglur blasa enn
hindranir við einstaklingum og fyrir-
tækjum sem stunda viðskipti milli
ríkja í EES. Evrópudómstóllinn er öfl-
ugur málsvari neytenda. Vel þekkt er
mál Englendinganna sem laumuðust
til að kaupa sér afruglara frá Grikk-
landi til að geta horft á grískar gervi-
hnattarsendingar frá ensku meistara-
deildinni en áskriftargjöld í Grikklandi
voru lægri en hjá Sky sem hafði
einkarétt til sýninga í Bretlandi. Gríska
sjónvarpsstöðin og Meistaradeildin
fóru í mál við Englendingana. Málið
fór í forúrskurð hjá Evrópudómstóln-
um sem stóð með Englendingunum
þar sem áskriftin var til einkanota.
Sagði dómstóllinn slíkar hindranir á
sölu á afruglurum milli ríkja vera brot
á samkeppnisreglum og reglum um
þjónustufrelsi. Vegna forúrskurðarins
hóf framkvæmdastjórn ESB nýverið
rannsókn á dreifingarsamningum
bandarískra kvikmyndafyrirtækja við
stóru sjónvarpsfyrirtækin í Evrópu.
Sagði framkvæmdastjóri samkeppnis-
mála að skoða þurfi hvort þessir
dreifingarsamningar hindruðu ein-
staklinga í að fá aðgang að áskriftar-
sjónvarpi í öðrum ríkjum og hvort
samningarnir sem skipta upp mörk-
uðum eftir landamærum standist
samkeppnisreglur.
Hvað er til ráða?
Fjölmargir neytendur hafa kvartað
undan fjölþjóðlegu bílaleigunum.
Framkvæmdastjórn ESB hefur sent
bílaleigunum bréf og hvatt þær til
að breyta þessum viðskiptaháttum
þar sem þeir brjóti gegn þjónustutil-
skipun ESB. Eftirlitsaðilar neytenda-
mála í hverju landi hafa eftirlit með
svona viðskiptaháttum. Neytendur
sem telja að fyrirtæki í öðru landi hafi
brotið á sér geta farið á heimasíðu
neytendaeftirlits í EES sem heitir
EEC-Net og fundið þarlendan eftir-
litsaðila. Sameiginlegur markaður
myndast ekki með sameiginlegum
reglum einum saman. Neytendur og
fyrirtæki þurfa að standa vörð og láta
í sér heyra.
Vandræðagangur
á interneti
F
A
S
TU
S
_H
_3
4.
09
.1
4
Hágæða uppþvottavél undir borð fyrir atvinnueldhús
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Með allt á hreinu
undir borði
Veit á vandaða lausn
Með Comenda Redline uppþvottavélinni nærðu fram margþættri hagræðingu. Bæði tekur
uppþvottavélin lítið pláss þar sem hún fer undir borð en einnig hafa verkfræðingar Comenda
náð að þróa uppþvottavél sem fer sparlega með rafmagn og vatn.
Þægileg, umhverfisvæn og aðgengileg vél. Falleg og fáguð hönnun úr ryðfríu stáli.
• Hurðaop 530 x 375 mm
• Mjög hljóðlát - með hljóðfilter skv. CE stöðlum
• Hurð með öryggislokun
• Sjálfvirk vatnshæðarstilling
• Hitastýrð vatnslögn
• Vatnsdæla fyrir þvott og skolun bæði uppi og niðri
Verð nú kr. 241.200,- án vsk.
20%
afsláttur
Tilboð gildir meðan birgðir endast
13.09.14 Af hverju er enginn búinn að stofna
hollvinasamtök ÁTVR nú þegar sótt er að þeirri
stofnun sem hefur glatt svo marga í gegnum
tíðina? Mér þykir rétt að við sem stóðum
klukkutímunum saman í biðröð fyrir
utan Ríkið á Lindargötunni og Snorra-
braut ættum að taka okkur saman
og berjast gegn þessari aðför að
ÁTVR. Brynjar Níelsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
USD 118,68
GBP 192,17
DKK 20,637
EUR 153,65
NOK 18,535
SEK 16,637
CHF 127,17
JPY 1,108
600 MILLJÓNIR
Dýr áburðarverksmiðja
Áburðarverksmiðjan sem Þorsteinn
Sæmundsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, hefur lagt til að ríkið
kanni hagkvæmni og möguleika á að
reisa, á að kosta 120 milljarða króna
samkvæmt greinargerð með frum-
varpinu. Ef 200 störf verða til í verk-
smiðjunni þýðir það að 600 milljóna
króna fjárfesting sé á bak við hvert
framtíðarstarf.
5,5% HÆKKUN
Aflamark í ágúst
Heildarafli íslenskra skipa var 5,5%
meiri í ágúst 2014 en í sama mánuði
árið 2013. Afli jókst í öllum botnfisk-
tegundum nema ýsu. Samanburður
á 12 mánaða tímabilum á milli
ára leiðir í ljós að botnfiskafli er
svipaður á milli ára á meðan 33%
samdráttur hefur orðið í uppsjávar-
afla á tímabilinu.
36 FULLTRÚAR MÆTTIR
Þriðja þing ASÍ-UNG
Þing ASÍ-UNG var haldið í síðustu viku undir yfir-
skriftinni: „Samfélag fyrir alla … líka unga fólkið.“
Þingið samþykkti ályktun þar sem meðal annars
kemur fram að það krefjist þess að sveitarfélög
hafi leikskóla opna yfir sumartíma, starfsdagar
og aðrir frídagar í leik- og grunnskólum verði
samræmdir, heimild fáist til að nýta hluta af eigin
veikindarétti til að sinna veikindum barna og að
fæðingarorlof verði lengt, þakið hækkað og
80% hámark afmunið.