Fréttablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 6
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
VINNUDEILUR Læknar landsins eru á
leið í verkfall takist samningar ekki
á næstunni.
Annað kvöld hefst atkvæða-
greiðsla meðal lækna um hvort
boðað verði til verkfalls. Verði sam-
þykkt að fara í verkfall hefst það að
óbreyttu 27. október.
Læknisþjónusta í landinu leggst
þó ekki af þó læknar fari í verkfall.
Samkvæmt lögum verður að halda
uppi neyðarþjónustu. Á hverju ári
er gefinn út svokallaður undanþágu-
listi en á honum er skilgreint hverjir
eigi að sinna vinnuskyldu í verkfalli.
„Ef læknar fara í verkfall verð-
ur náttúrulega skert þjónusta þann
tíma sem verkfallið varir. Við
munum auðvitað reyna að tryggja
það eftir fremsta megni að það bíði
enginn skaða af verkfallinu. Við
leggjum áherslu á það,“ segir Þor-
björn Jónsson, formaður Lækna-
félags Íslands. Kjarasamningur
lækna rann sitt skeið á enda fyrir
rúmum átta mánuðum og síðan hafa
þeir verið samningslausir. Læknar
segjast orðnir langþreyttir á því
sem þeir kalla ábyrgðarleysi stjórn-
valda við að tryggja heilbrigðisþjón-
ustuna. - jme
Ef
læknar fara í
verkfall
verður
náttúrulega
skert þjónusta
Þorbjörn Jónsson,
formaður Læknafélags Íslands
1. Í hvaða sæti lenti íslenska lands-
liðið í kotru á Evrópumótinu?
2. Hvaða leikrit setur Listafélag Verzló
upp í vetur?
3. Við hvaða lið hefur Jón Arnór Stef-
ánsson gert samning?
SVÖR:
1. Í fi mmta sæti. 2. Rómeó og Júlíu.
3. Unicaja Malaga.
Hér er
auðvitað ný
stofnun á
ferðinni og
augljóst mál
að það þarf að
skoða það
hvort þetta sé dæmi um
nýja stofnun sem gæti
verið annars staðar en á
höfuðborgarsvæðinu.
Þóroddur Bjarnason,
formaður stjórnar Byggðastofnunar
Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun allra lækna hefst á fimmtudagskvöld:
Á leið í verkfall í mánaðarlok
BANDARÍKIN Búið er að greina
fyrsta tilfelli ebólu á bandarískri
grund. BBC greinir frá.
Heilbrigðisyfirvöld í Dallas í
Texas staðfestu það í gærkvöldi.
Talið er að maðurinn hafi smitast
í Líberíu en hafi var einkennalaus
þar til hann kom til Bandaríkj-
anna.
Hingað til hafa nokkrir banda-
rískir heilbrigðisstarfsmenn
greinst með ebólu en hafa náð
heilsu eftir að flogið var með þá til
Bandaríkjanna til meðferðar. - ih
Smitaðist líklega í Líberíu:
Ebóla greinist í
Bandaríkjunum
LÖGREGLUMÁL Grunur leikur á
að lögreglumaður við embætti
lögreglunnar á Seyðisfirði hafi
brotið af sér í starfi með alvar-
legum hætti. Málið kom upp í lok
ágúst og var tilkynnt til ríkis-
saksóknara sem fól í framhaldinu
lögreglunni á Eskifirði að rann-
saka málið.
Jónas Wilhelmsson, yfirlög-
regluþjónn á Eskifirði, segir
brotið ekki snúa beint að skjól-
stæðingum lögreglunnar en vildi
annars lítið tjá sig um málið.
Ekki er búið að yfirheyra lög-
reglumanninn. - ak
Lögregla til rannsóknar:
Grunaður um
alvarlegt brot
NEW YORK, AP Samkvæmt alþjóð-
legri skýrslu þar sem tekin eru
með í reikninginn efnahagslegt
öryggi, heilsa og fleiri atriði, þá
hefur eldra fólk í Noregi það best
allra í heiminum. Ísland er í sjö-
unda sæti en í því neðsta er Afgan-
istan. Skýrslan Global AgeWatch
Index var birt í gær en hún var
sett saman af fyrirtækinu Hel-
pAge International. Tilgangur þess
er að hjálpa öldruðum við að vinna
gegn mismunun, koma í veg fyrir
fátækt og að lifa öruggu og við-
burðaríku lífi. Auk Noregs voru
í fimm efstu sætunum Svíþjóð,
Sviss, Kanada og Þýskaland. - fb
Alþjóðleg skýrsla birt í gær:
Öldruðum líður
best í Noregi
Í RÆKTINNI HIn áttræða Marianna
Blomberg stundar líkamsrækt í Stokk-
hólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?
STJÓRNSÝSLA Allar líkur eru á að
ný stjórnsýslustofnun sem á að
taka yfir málefni Barnaverndar-
stofu, Fjölmenningarseturs, rétt-
argæslumanna fatlaðs fólks auk
verkefna sem félagsmálaráðu-
neytið sinnir, verði höfð á lands-
byggðinni.
„Það er talað um mikilvægi
þess í stjórnarsáttmálanum að
flytja opinber störf út á land,“
segir Eygló Harðardóttir félags-
málaráðherra.
Eygló hefur skipað nefnd til að
endurskoða stjórnsýslu á sviði
félagsþjónustu og barnaverndar.
Í erindisbréfi nefndarinnar
segir að hún eigi að vinna að
nauðsynlegum lagabreytingum,
leggja fram tillögur að nýrri
stjórnsýslustofnun, staðsetningu
höfuðstöðva hennar og annarra
starfsstöðva.
Formaður nefndarinnar er
Þóroddur Bjarnason, formaður
stjórnar Byggðastofnunar.
Þóroddur segir að samkvæmt
byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar
eigi að stefna að því að draga úr
ójafnri dreifingu ríkisstarfa um
landið.
„Þetta hefur náttúrulega verið
töluvert í umræðunni. Menn hafa
talað um að það sé auðveldara að
gera það með nýjar stofnanir en
gamlar. Hér er auðvitað ný stofn-
un á ferðinni og augljóst mál að
það þarf að skoða það hvort þetta
sé dæmi um nýja stofnun sem
gæti verið annars staðar en á
höfuðborgarsvæðinu. Það er alls
ekki víst og það þarf að tala við
alla aðila og kanna málið vand-
lega,“ segir Þóroddur.
Eygló Harðardóttir segir að
með þessu vonist hún til að það
verði hægt að bæta barnavernd
og félagsþjónustu á landinu öllu.
Hún segir að það hafi komið
fram fjölmargar ábendingar
um að það séu ýmsar brotalam-
ir þegar kemur að þessum mála-
flokkum.
„Það eru ekki til nein viðmið
um hvað sé góð félagsþjónusta
eða barnavernd. Það þarf að skil-
greina það. Það verður að koma
upp sérstökum gæðastöðlum á
þessum sviðum, líkt og menn
hafa gert í heilbrigðisþjónust-
unni,“ segir Eygló.
Hún segir að það sé þar af leið-
andi mjög mikilvægt að koma á
laggirnar sérstakri stjórnsýslu-
stofnun sem hefði það verkefni
með höndum að styðja við sveit-
arfélögin og tryggja að þjónusta
þeirra á sviði barnaverndar og
félagsþjónustu verði með sem
bestum hætti.
Þóroddur segir að vinna nefnd-
arinnar snúist fyrst og fremst
um skjólstæðingana.
„Þetta er spurning um það
hvernig við getum tryggt sem
best þá þjónustu fyrir þá sem
hennar njóta um allt land. Þá er
þetta spurning um það hvernig
við stillum af þessi samskipti
milli ríkis og sveitarfélaga,“
segir Þóroddur.
johanna@frettabladid.is /
sveinn@frettabladid.is
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og
aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös
3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Snýttu
þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni.
Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið.
Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í
gegnum nefið eða munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti,
næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan
eða hraðan púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Ný ríkisstofnun verður
staðsett á landsbyggðinni
Ný stofnun sem á að búa til á meðal annars að taka yfir málefni Barnaverndarstofu og fatlaðra. Stofnuninni
verður líklega komið fyrir á landsbyggðinni. Ráðherra vill bæta barnavernd og félagsþjónustu á landinu öllu.
ÚT Á LAND Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að það eigi að flytja opinber
störf út á land. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það eru
ekki til nein
viðmið um
hvað sé góð
félagsþjón-
usta eða
barnavernd.
Það þarf að skilgreina
það. Það verður að koma
upp sérstökum gæða-
stöðlum á þessum
sviðum, líkt og menn
hafa gert i heilbrigðis-
þjónustunni.
Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra