Fréttablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 10
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
5.990.000 kr.
Kia Sportage X-Tra
Árgerð 2/2014, ekinn 37 þús. km, dísil,
1.995 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
fjór hjóladrifinn, eyðsla 6,9 l/100 km.
3.590.000 kr.
Kia cee’d EX
Árgerð 3/2014, ekinn 7 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, beinskiptur,
eyðsla 4,3 l/100 km.
6.190.000 kr.4.990.000 kr.
Kia Sorento ClassicKia Sportage EX
Árgerð 7/2013, ekinn 36 þús. km, dísil,
2.199 cc, 198 hö, sjálfskiptur,
fjór hjóladrifinn, eyðsla 6,7 l/100 km.
Árgerð 6/2013, ekinn 33 þús. km,
dísil, 1.995 cc, 136 hö, beinskiptur,
fjór hjóladrifinn, eyðsla 5,7 l/100 km.
2.390.000 kr.
Kia cee’d LX
Árgerð 4/2013, ekinn 78 þús. km,
dísil, 1.396 cc, 90 hö, beinskiptur,
eyðsla 4,4 l/100 km.
*Á
by
rg
ð
er
í
7
á
r
fr
á
sk
rá
n
in
ga
rd
eg
i b
if
re
ið
ar
Afborgun aðeins 36.000 kr. á mánuði m.v. 239.000 kr.
útborgun og 90% bílalán frá Lykli í 84 mánuði. 9,15%
vextir, 10,87% árleg hlutfallstala kostnaðar og lán til
84 mánaða. Nánar á lykill.is
Útbo
rgun
aðe
ins:
239.
000
kr.
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia*Ábyrgð fylgir!
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
HEILBRIGÐISMÁL Verktökulæknar
sem fara út á land í afleysingar
á heilsugæslustöðvum fá um 900
þúsund krónur í laun á viku, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Víða á landsbyggðinni eru heilsu-
gæslustöðvar mannaðar með því
að fá lækna til starfa í verktöku.
Til að fylla allar fastar stöður
heimilislækna úti á landi með
fastráðnum læknum vantar um 40
lækna.
Ýmsir fastráðnir sérgreina-
læknar og heimilislæknar á höfuð-
borgarsvæðinu fara til starfa úti
á landi í skamman tíma. Það gera
þeir í sumarleyfum, í vaktafríum
eða þegar þeir hafa safnað upp
frítökurétti. Menn geta því drýgt
föstu launin sín með því að fara út
á land.
Menn vilja ekki ræða opinskátt
um hvað læknar fá í laun, en lækn-
ir sem hefur tekið að sér að skipu-
leggja slíka þjónustu fyrir heil-
brigðisstofnanir á landsbyggðinni
segir að verktökulaunin geti verið
900 þúsund krónur á viku. Þá er
miðað við að læknirinn sé á sólar-
hringsvöktum alla vikuna og sjái
sjálfur um að greiða skatta og
önnur gjöld af launum sínum.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra segir að launatölur upp
á 900 þúsund á viku hljómi nokk-
uð háar við fyrstu sýn. „Það verð-
ur þó að hafa í huga að inni í þess-
ari tölu, eftir því sem ég best veit,
er gert ráð fyrir launatengdum
gjöldum, lífeyrisskuldbindingum,
sumar- og námsleyfum auk þess
sem viðkomandi hefur ekki rétt á
launuðu veikindaleyfi.
„Ég tel að við núverandi aðstæð-
ur sé þetta úrræði nauðsynlegt.
Það er betra að hafa lækni á staðn-
um en hafa engan lækni,“ segir
ráðherra og bætir við að þeir sem
stjórni heilsugæslunni telji þetta
ódýrara en að hafa fastráðna
lækna á staðnum og hafi fært fyrir
því ágætis rök.
„Það breytir hins vegar ekki
þeirri staðreynd að við viljum að
sjálfsögðu hafa fastráðna heimilis-
lækna úti á landi,“ segir Kristján.
„Við höfum mannað norðanvert
Snæfellsnesið með verktökulækn-
um. Þessir staðir eru mannaðir
með læknum sem eru í fullu starfi
annars staðar en nota frítökurétt-
inn sinn til að koma til starfa hjá
okkur,“ segir Þórir Bergmunds-
son, yfirlæknir hjá Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands.
Hann segir launakjör verktöku-
læknanna trúnaðarmál en það sé
hagkvæmt að fá þá til starfa. Það
sé enginn halli á rekstrinum þar
sem verktökulæknar séu við störf,
þar sé reksturinn í jafnvægi.
„Ef við berum þetta saman
við að hafa fastráðna lækna þá er
þetta mjög hagkvæmt fyrir stofn-
unina. Við sleppum við að greiða
launatengd gjöld, veikindarétt,
námsfrí og annað sem læknar eiga
rétt á samkvæmt kjarasamning-
um,“ segir Þórir. Hann segir þó að
þetta sé ekki sú staða sem menn
kjósi.
„Okkur vantar heimilislækninn
sem viðhefur hin gömlu og góðu
gildi. Hann þekkir sjúklingana
og fjölskyldur þeirra og hefur
því mikla yfirsýn yfir sjúkrasögu
þeirra,“ segir Þórir.
Á Heilbrigðisstofnun Norður-
lands á Blönduósi hafa menn fjög-
urra ára reynslu af því að manna
lausar stöður heimilislækna með
verktökulæknum.
Valbjörn Steingrímsson, for-
stöðumaður tekur undir með Þóri
að það sé hagkvæmt að manna
með verktakalæknum. Það kosti
minna en vera með fastráðna
lækna.
„Þetta kerfi hefur reynst afar
vel hér. Þetta eru frábærir læknar
sem koma til okkar og manna þær
stöður sem eru lausar. Á meðan
verktökulæknarnir koma hingað
þá er ekki hægt að tala um lækna-
skort hér,“ segir Valbjörn og bætir
við hann telji að fólk fái að mörgu
leiti betri þjónustu með þessu
kerfi.
„Hér kemur hjartalæknir,
lungnalæknir, innkirtlafræðing-
ur og fleiri sérgreinalæknar. Það
kemur fjölbreyttur hópur lækna
með mismunandi reynslu. Að fá
svo fjölbreyttan hóp lækna er gott
fyrir það fólk sem við þjónum hér
í Húnavatnssýslum,“ segir Val-
björn. johanna@frettabladid.is
Verktökulæknar sem fara út á
land fá um 900 þúsund á viku
Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt fyrir heilsugæsluna á landsbyggðinni að fá verktökulækna eins og staðan sé í dag. Stjórnendur
tveggja heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni segja hagstæðara að fá verktökulækna til starfa en vera með fastráðna heilsugæslulækna.
LÆKNASKORTUR Ráðamenn segja nauðsynlegt fyrir heilsugæsluna á landsbyggð-
inni að fá verktökulækna til starfa. Án þeirra væri læknaskortur á landsbyggðinni.
MYND/GETTY
Ég tel að
við núverandi
aðstæður sé
þetta úrræði
nauðsynlegt.
Það er betra
að hafa lækni
á staðnum en hafa engan
lækni
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra