Fréttablaðið - 01.10.2014, Qupperneq 22
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
eiginkonu minnar og móður okkar
ÓLAFAR BIRNU KRISTÍNARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Land-
spítalans á göngudeild 10E, kvenlækninga-
deild 21A, og gjörgæsludeild 12B fyrir
einstaka umhyggju og alúð.
Kristinn Freyr Þórsson
Kristín Helga Kristinsdóttir
Ólöf Erla Kristinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HÓLMGEIR JÚLÍUSSON
Hringbraut 2b, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 28. september.
Kristjana Björg Þorsteinsdóttir
Kristján Hólmgeirsson Guðrún Sigurðardóttir
Júlíus Hólmgeirsson Sveinrún Bjarnadóttir
Guðbjörg S. Hólmgeirsdóttir Egill Kolbeinsson
Jónas Hólmgeirsson Rebekka Þórisdóttir
Harry Þór Hólmgeirsson Ólöf Jónsdóttir
Sveinbjörn Hólmgeirsson Hanna Björk Hafþórsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar,
SIGRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
Skarðshlíð 8a, Akureyri,
er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að hennar ósk.
Börn og fjölskyldur.
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
önnumst við alla þætti þjónustunnar
Þegar andlát ber
að höndum
Með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Reynsla – Umhyggja – Traust
Faðir, stjúpfaðir, afi og langafi,
ÓSKAR SÖRLASON
til heimilis að Furugerði 1, Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti
miðvikudaginn 17. september. Útförin fer
fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn
2. október kl. 13.00.
Ingvar Jón Óskarsson Jóna Karen Pétursdóttir
Kristinn Már Emilsson Margrét Alexandersdóttir
Guðný Garðarsdóttir Ólafur Sæmundsson
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ASTRID BJÖRG KOFOED-HANSEN
Efstaleiti 10, Reykjavík,
sem andaðist á heimili sínu í faðmi
fjölskyldu, ættingja og vina mánudaginn
22. september, verður jarðsungin
fimmtudaginn 2. október kl. 13.00. Útförin fer fram
frá Háteigskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar
Landspítalans í Kópavogi.
Einar Þorbjörnsson
Agnar Már Einarsson Andrea Isabelle Einarsson
Þorbjörn Jóhannes Einarsson Kathrine Espelid
Axel Kristján Einarsson Laufey Sigurðardóttir
Einar Eiríkur Einarsson Jamaima D´Souza
og barnabörn.
Þennan dag árið 1936 varð Francisco
Franco leiðtogi fasistastjórnar uppreisnar-
manna á Spáni. Franco fæddist í bænum
El Ferrol árið 1892. Hann gekk í herskóla
fjórtán ára gamall og sannaði sig snemma
sem hæfur stjórnandi í nýlenduskærum
Spánverja í Marokkó. Þar forframaðist
hann á skömmum tíma. Árið 1931 var
konungsvaldið afnumið á Spáni. Franco
féll í ónáð hjá frjálslyndum leiðtogum
lýðveldisins og var lækkaður í tign. Hann
hlýddi möglunarlaust.
Íhaldsmenn komust aftur til valda í
kosningunum 1933 og Franco var hækk-
aður í tign yfirhershöfðingja og síðar
herráðsforingja. Í kosningum árið 1936
komst samsteypustjórn vinstri flokka til
valda og Franco var sendur til Kanaríeyja.
Af ótta við að ríkisstjórnin myndi greiða
götu marxískrar byltingar lögðu yfirmenn í
hernum á ráðin um valdarán. Eftir nokkurt
hik ákvað Franco að ganga til liðs við þá. Í
júlí árið 1936 hófst uppreisn í Marokkó og
breiddist yfir á meginland Spánar daginn
eftir. Undir stjórn Francos sölsaði herinn
undir sig nokkur héruð landsins.
Í þeirri trú að sigur væri í sjónmáli
völdu uppreisnarmenn Franco leiðtoga
ríkisstjórnar sinnar en borgarastyrjöld
stóð í tvö ár enn, þar til Spánn var allur á
valdi Francos. Hann stjórnaði landinu með
harðri hendi til ársins 1975.
ÞETTA GERÐIST 1. OKTÓBER 1936
Franco kemst til valda
„Ég tel það hafa mikið gildi að ungt
fólk sitji nefndarfundi bæjarins. Það er
bæði þroskandi fyrir unga fólkið sjálft
og hollt fyrir stjórnsýsluna,“ segir
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, um það fyrirkomu-
lag að ungmenni eigi fulltrúa í öllum
stærstu nefndum bæjarins. „Við höfum
góða reynslu af því frá því í fyrra og
nú tekur nýr hópur við. Þetta samrým-
ist þeirri lýðræðislegu hugmynd að fá
íbúa inn í umræðuna. Allir eru ánægð-
ir með það, bæði formenn nefnda og
við í bæjarstjórninni.
Ásgerður segir unga fólkið koma
með ný viðhorf, til dæmis inn í skipu-
lagsmálin og æskulýðs- og íþróttamál-
in og hafa náð að breyta vissum hlut-
um. „Ég get nefnt að í fyrra lagði það
fram fyrirspurn í skólanefndinni um
hvort möguleiki væri að opna bóka-
safnið eða fá afnot af byggingu skól-
ans þegar fólk á menntaskólaaldrinum
væri í prófum. Það atriði fékk jákvæð-
ar undirtektir og gekk í gegn.“
Nefndarfundir eru ýmist haldnir
mánaðarlega eða annan hvern mánuð,
misjafnt eftir nefndum. „Það eru átta,
níu fundir á ári sem hver og einn situr.
Ungmennin hafa verið dugleg að mæta
og taka virkan þátt þótt þau séu ólaun-
uð.“
Það er ungmennaráð Seltjarnarness
sem skipar í nefndirnar. Ásgerður
segir það vera virkt ráð sem hafi til
dæmis starfað ötullega að jafningja-
fræðslu. „Ungt fólk innan bæjarins
hefur meðal annars verið í fjögur ár
með tölvukennslu fyrir eldri borgara
á sumrin og gert það vel. Bakar stund-
um kökur til að koma með í tíma og
útbýr flott skírteini í lok námskeiða.
Svo langaði ungmennaráðið að halda
áfram að hitta eldra fólkið og nú býður
það því til fagnaðarfunda í Ungmenna-
húsinu eitt kvöld í mánuði til að spila,
syngja og dansa.“
gun@frettabladid.is
Gott að hafa unga
fólkið með í ráðum
Á Seltjarnarnesi sitja ungmenni í helstu nefndum bæjarins og hafa þar málfrelsi og
tillögurétt. Ásgerður bæjarstjóri telur það gott fyrirkomulag bæði fyrir þá eldri og yngri.
BÆJARSTJÓRINN
Ásgerður segir
unga fólkið koma
með ný viðhorf
inn í bæjarpól-
itíkina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Anna Lilja Björnsdóttir og Victor Levi
Ferrua Teitsson í íþrótta- og tóm-
stundanefnd, Lillý Óladóttir og Tómas
Helgi Kristjánsson í menningarnefnd,
Kristján Hilmir Baldursson og Ísak Arnar
Kolbeinsson í skipulags- og mannvirkja-
nefnd, Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir
og Benedikt Bjarnason í skólanefnd
og Victor Levi Ferrua Teitsson og Geir
Zoëga í umhverfisnefnd.
Þau sitja í nefndum í vetur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR BERGSTEINN ÓLAFSSON
Hringbraut 136c,
andaðist á Sjúkrahúsi Keflavíkur þann
28. september. Útför hans fer fram frá
Keflavíkurkirkju þann 3. október kl. 13. Blóm
og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja.
Elín Júlíusdóttir
Júlíus Ólafsson Helga Björk Jóhannsdóttir
Ólafur Bergsteinn Ólafsson Sóley Margrét Ingvarsdóttir
Guðmunda Ólafsdóttir Ólafur Jónatan Ólafsson
Elín Ólafsdóttir Ragnar Már Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.